Land & synir - 01.08.1996, Page 6

Land & synir - 01.08.1996, Page 6
er ekki nóg til að geta skrifað. Fjölmiðla- heimurinn fæst við fólk sem er í sviðsljósinu. Flest af þessu fólki hefur lagt mikið á sig til að ná fullkomnun í sínu fagi. Fjölmiðlaheim- urinn er fullur af fólki, sem hefur það helst til að bera að vera einhverskonar hitamælar á frægð og persónuleika annarra. En gleymir að fulkomna sig í sínu eigin fagi. Þegar talað er um heimildarmynd, dettur þessu fólki helst í hug að iáta tökulið elta fræga stjörnu. Born twice Ég hafði verið að bíða eftir einhverju bita- stæðu heimildarefni í dagskrá sjónvarps um nokkurt skeið, þegar þáttur í þáttaröðinni Horizon var sýndur í RÚV, “'Bom Bvice”. Tvær mæður sögðu frá reynslu sinni af fósturaðgerð, þar sem annað fóstrið lifði, hitt dó. Læknar af ýmsu tagi, t.d. úr rannsóknum, stofiiunum og lýtalækningum, komu fram með sín viðhorf, Og það var meira að segja dregin fram kven- maður sem óttaðist að konan yrði óþörf. Dæmigert efni sem venjuleg sjónvarpsstöð hefði gert að flatneskju. í þessum þætti var að- ferðum heimildarmyndarinnar beitt á einkar fagmannlegan hátt. Þátturinn var samsettur úr nokkrum heimildarmyndabútum, hver með sinni aðalpersónu. Hver persóna var fuhtrúi fyrir sitt sjónarmið og um leið þjónaði hver persóna sem kafli í þessum samsetta þætti. Þarna var heimildar- þátturinn orðinn að sérstakri listgrein, því hver myndþáttur var í sterku sambandi (kontrapunkti) við hina þænina Viðtölin voru hluti af ævisögu hverrar persónu, full af tilflnn- ingu og upplýsinum. Þau spegluðu viðhorf þeirra, vanda og markmið um leið og þau komu áleiðis nauðsynlegum staðreyndum. Með þessum myndbrotum (heimildarmyndum) dregin upp ný sýn af heiminum, sem er framundan, þar sem togast á grundvallarspum- ingar í vísindasiðlræði. Hvað gerist þegar hægt verður að framleiða menn eins og hverja aðra vöru? Þessi mynd yrði seint boðin fram á kvik- myndahátíðum sem framúrskarandi heimildar- mynd eða homsteinn í þróun kvikmyndalislar, en hún er glæsilegt dæmi um það, hvað hægt er að gera, þegar vönduð blaðamennska sjón- varps mætir frásagnarlist heimildarmyndagerð- armanna (hvflíkt orð). Framboð sjónvarpsstöðvanna Meirihlutinn af íslensku efrii sjónvarpsstöðv- anna er tekið upp í ratmvemleikanum og er því skilt heimildarmyndinni. Sama er að segja um margt af því efni sem sjónvarps- stöðvarnar “kaupa" og sýna í áróð- ursskyni fyrir félög og stofnanir. En gæðin á þessu efni em svo fátækleg að maður veigrar sér við að nota orðið heimfldannvtnd um afúrð- ina. íhaldsemi eða hrærigrautur Nú eru nýjir tímar sem kalla á nýjar að- ferðir. En aðferðir sem byggja ekki á því besta úr fortíðinni eru til lítils. Þegar ég var að byrja fannst manni eldri kynslóðin þjást af íhaldsemi. Það mátti ekki klippa á hreyf- ingu. Það mátti ekki blanda saman ólíku efni. Heildarstíll og snurðulaust rennsli var aðalatriði. Nú er í tísku að kbppa hvar sem mönnum dettur í hug. Blanda öllu saman í einn hrærigraut. Þessi mghngur á lítið skylt við kvikmyndalist. Þá er hst að setja allt sem maður finnur í einn pott og hræra í. Nú heita heimildarmyndir gjarnan ekki því nafiti, heldur þættir, dagskrár, samantektir, efni, dagskrárliðir. Þannig má líka komast hjá því að áhorfendur geri kröfur. Þetta er bara efni. Heimildamyndin sem fulltrúi vandvirkni Stemningin nú er yfirborðinu í hag. Það er ekki fínt að kafa ofan í hlutina, rannsaka, mynda sér rökstudda skoðun, skapa rétta stemningu, heild, samræmi. Síðustu árin hef- ur þótt meira varið í að vera kaldur, harður, ófyrirleitinn, Ðeyta kerlingar á yfirborðinu, daðra við hugmyndir, komast létt frá verkefn- um. Viss tegund af fúski, sem enginn tekur eftir. Yflrflæðið er svo mikið að menn týnast í ringulreiðinni. Upplýsingar flóa út úr öllum gáttum og enginn tími til að vanda sig í leit- inni að samileikanum. Enda engin ástæða til eftir að búið er að breyta sjónvarpsdag- skránni úr sjálfstæðri menningarafurð í aug- lýsingapláss. Að láta efnið njóta sín hefur glatast. Að leita að hinum rétta tóni hefur týnst. Að finna samræmi er hallærislegt. Gamla hugsjónin um heimildarmyndina er fulltrúi vandvirkni, sem nú um skeið hefur ekki verið í u'sku. Að minnsta kosh ekki í fjöl- miðlun. En eins og um alla strauma í samfé- laginu verða yfirflæði og óðagot lítils metin þegar þeirra tími er liðinn. Þá kemur kannski tími heimiidarmyndarinnar aftur. Hver veit? Höfundur útskrifaðist 1971 sem stjómandi tximildarmyndafrá Kvikmyndaskólanum í Prag. ospio Framhald Nokkrar athugasemdir um skýrslu starfshóps um endurskoöun á útvarps- lögum í síðasta tölublaði lands og sona birtist grein Böðvar Bjarka um skýrslu starfshóps um endurskoðun á útvarpslögum (frá apríl 1996). Einnig hafa birst í dagblöðum viða- miklar ályktanir frá a.m.k. tveimur kvik- myndafélögum þar sem farið er lofsamlegum orðum um skýrslu þessa. Ég var því búin að koma mér upp miklum vænhngum þegar ég loks settist niður við lesturinn. MENNINGARLEG SJÓNARMIÐ IFYRIRRUMI? Væntingarnar minnkuðu ekki þegar ég blaðaði í fljótheitum í gegnum skýrsluna og sá hversu margorðir skýrsluhöfundar eru um innlenda dagskrárgerð. Þeir benda á að ljós- vakamiðlar hafa mikilvægu hlutverki að gegna við mótun og varðveislu íslenskrar menningar. Þessvegna sé nauðsynlegt að mæta auknu framboði á erlendum sjónvarpsrásum með því að gera veg innlends efnis meiri. Minnt er á að sérstaða RÚV felst í því að bjóða upp á vandað innlent efni, bæði eigin framleiðslu og ann- arra. En þess skuli einnig minnst að einka- stöðvarnar geta gegnt menningarhlutverki, séu þeim búin rétt skilyrði. Þetta eru sjónarmið sem allir geta örugg- lega tekið undir. En þegar grannt er skoðað þá eru þetta bara sjónarmið. Það er ekki verið að benda á neinar áþreifanlegar leiðir til að efla framleiðsluna og auka framboð á inn- lendu sjónvarpsefni í þessari skýrslu. Þrátt fyr- ir fúllyrðingar í þá átt. UM AÐ RETTA AF HALLANN A MARKAÐINUM Boðskapur starfshópsins er einfaldur og hann er í stuttu máli sá að það þurfi að lag- færa, eða leiðrétta, rekstrarskilyrði innlendra sjónvarpsstöðva, aðallega með því að jafna að- stöðumun einkarekinna og ríkisrekinna stöðva. Þegar afkoma einkarekinna stöðva batnar hafa þær loks efni á því að framleiða dagskrárefni - sem er forsendan fyrir því að þær geri það. Jafnframt telur starfshópurinn að hið opinbera ætti ekki að beita lagaþving- unum UI að fá stöðvarnar Ul að framleiða og sýna innlent efni, heldur hvatningu. Til dæmis með því að veita sérstök „menningarverðlaun ljósvakamiðla" til stöðva sem framleiða eða sýna vandað innlent efni. HINN PENINGALEGIRAUNVERULEIKI Mér er mjög til efs að sjálfstæðir framleið- endur taki undir þessa skoðun, svo sem að verðlaunaveitingar muni skipta sköpun þegar kemur að því að auka framleiðslu sjónvarps- efnis á íslandi. Frá sjónarhóli framleiðenda er kjarni máls- ins sá að íslensku sjónvarpsstöðvunum býðst nóg af erlendu efni sem er búið að borga sig upp á öðrum mörkuðum. Það er algengt að stöðvarnar greiði þetta 1.000 krónur fyrir mínútuna af erlendu efni. En framleiðslu- kostnaður innlends efnis er á bilinu 75.000 U1 500.000 mínútan. Hið raunverulega vandamál er smæð íslands, smæð markaðarins, smæð málsvæðisins. Og aðstöðumunurinn sem vert er að hafa áhyggjur af er aðstöðumunur inn- lendra og erlendra framleiðenda. Ekki að- stöðumunur einkarekinna og ríkisrekinna sjónvarps-stöðva. KAKAN ER ALLTAF JAFNSTÓR Eftir því sem sjónvarpsstöðvum fjölgar minnkar fjárhagslegt svigrúm þeirra. Afleið- ingin er sú að hlutfall erlends efnis hækkar. Á þetta benda skýrsluhöfúndar í inngangi, rétti- lega. Stjórnvöld geta ekki bætt afkomu sjón- varpsstöðva. En stjórnvöld geta minnkað tekj- ur RÚV til þess að einkareknar stöðvar geti aukið sínar. Það er þetta sem skýrsluhöfundar eru að fara fram á. Þeir eru einfaldlega að tala um að skipta kökunni öðruvísi. Slíkar tilfæringar hafa eflaust ýmislegt sér til ágætis en þær stuðla alls ekki að því að efla framleiðslu á vönduðu innlendu sjónvarpsefni og auka hlut þess í dagskránni. En þetta er það sem skýrsluhöfundar halda sífelldlega fram (eða réttara sagt ýja að), rétt eins og eitt- hvað verði satt bara með því að endurtaka það nógu oft. HLUTVERK FRAMLEIÐENDA Það hefði verið athygflsvert ef skýrsluhöf- undum hefði dottið í hug að það mætti ef til vill stækka kökuna flka. Aðrar Evrópuþjóðir hafa brugðist við hækkandi hlutfalli erlends efnis í sjónvarpi með því að styrkja stöðu sjálfstæðra framleið- enda með ráðum og dáð, því það er leiðin til að stækka kökuna. Sjálfstæðir framleiðendur eru reiðubúnir til að fara yflr landamæri til að afla fjármagns til innlendrar framleiðslu. Það er fyrirhöfn sem sjónvarpsstöðvar hafa aldrei talið þess virði að leggja á sig. Hvorki einka- reknar né ríkisreknar. Media nýsköpunaráætl- unin var sett á stofn í því augnamiði að efla og auka sjálfstæði framleiðenda. fs- land hefttr verið aðifl í fjögur ár. Er nú ekki kominn tími til að íslensk stjórnvöld taki upp þessa stefnu í reynd og fari að styrkja sjálfstæða framleiðendur rneð mark- vissum hætti? OKKAR MAÐUR Tómas Ingi Olrich alþing- ismaður er sá eini í starfs- hópnum sem vill almennilega kannast við það að ríkið þurfi að styrkja gerð innlends sjón- varpsefnis. í séráliti sínu ítrekar hann að það sé nauðsynlegt að stofna dagskrárgerðarsjóð. Böðvar Bjarki kallar Tómas „okkar mann“, sem er vissulega rétt. Tómas á heiður skiflð fyrir að halda nafni dagskrárgerðarsjóðs á lofti. En ég held að hlutverk stjórnmálamanna sé fyrst og fremst að útvega dagskrárgerðarsjóði tekjustofn og marka honurn skýrt hlutverk. Það ætti að fela fagmönnum að móta lögin um sjóðinn og starfsrammann. Með fagmönnum á ég við sjálfstæða framleiðendur og forsvars- menn dagskrárframleiðsludeilda sjónvarps- stöðvanna. Það eru þessir menn sem hafa inn- sýn í framleiðsluumhverfið og vita hvernig svona sjóður á að fúnkera innan þess. „Menningarsjóðsmódelið" tilheyrir öðru tímabili íslandssögunnar og er löngu orðið úrelt. Menningarsjóður útvarpsstöðva var rek- inn eins og sjálfstæð stofnun, sjálfstæður handhafi dagskrárvalds. Hann gerði fltið ann- að en að rekast í hornin á þeim sem eiga hagsmuna að gæta, framleiðendum og sjón- varpsstöðvum. Nú er runnið upp nýtt skeið. Hlutverk dag- skrárgerðarsjóðs yrði að greiða fyrir sam- framleiðslu, eða réttara sagt samfjármögnun, og vera þannig virkur í að auka framleiðslu vandaðs efnis. En til þess að svo megi verða þurfa hagsmunaaðilar að byrja á því að gera með sér samkomulag um leikreglumar. Ekki talast við í gegnum stjórn- málamenn, embættismenn og Iögfræðinga. ENN UMTÓMAS Að lokum vil ég vekja at- hygli á nýrri hugmynd sem Tómas Ingi kemur með í sínu séráliti. Hún er sú að dagskrárgerðarsjóður hafi tvöfaldan tekjustofn, að stöðvarnar greiði gjald í sjóðinn og að ríkissjóður leggi Uka eitthvað til hans. Sjálfri finnst mér sjálf- sagt að sjónvarpsstöðvamar (sem allar hafa tekjur sínar aðallega af því að dreifa er- lendu efni) leggi nokkuð af mörkum í nýsköpunarsjóð sem á að efla innlenda fram- leiðslu. En það er alveg nauðsynlegt að tryggja að hver stöð eigi tiltölulega auðvelt með að fá að minnsta kosti jafn mikið úr sjóðnum og hún leggur til hans. Þetta er frumskilyrði ef sjóðurinn á að vera starfhæfur. Þess vegna er nauðsynlegt ríkið leggi eitthvað til hans flka, t.d. 60-70% af samanlögðu framlagi stöðvanna ár hvert. Ég nefni þetta alveg sérstaklega vegna þess að mér hefur ekki fundist hugmyndir síðustu útvarpslaganefndar bera þess vott að menn hafi lært mikið af reynslunni af Menningar- sjóði útvarpsstöðva. En þessi tillaga Tómasar er mjög góð, bæði praktísk og raunsæ. Það var þá ekki alveg til einskis að lesa þessa skýrslu. EFTIR ÖNNUTH. RÖGNVALDSDÓTTUR 6 Land&syra/-

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.