Land & synir - 01.05.1998, Qupperneq 9
ALLT LEYFILEGT: „Það eru engarfomiúlur til í tilraunamyndum, engar "platónskar frummyndir" um það
hvemig kvikmynd eigi að vera" segir ÞorvarðurÁrnason meðal annars. Myndramminn er tír verki Len Lye,
Free Radicals, frá árinu 1957.
fólki kleift að reyna á allan mögulegan og ómögulegan
hátt á þanþol miðilsins áður en það ákvæði hvar í flokki
það ætlaði sér að endingu að setjast.
SBH: íritgerðþinni "Augans snarpa hugsun" (TMM
1995:4) heldur þú því fram að heimildarmynda-
gerðarmenn og þeir sem geri sögumyndir (bíó-
myndir) reyni að öllu jöfnu að "halda hinum
"sýnilega" þœtti myndavélarinnar í algjöru lágmarki,
annars gcetu áhorfendur farið út af "sögusporinu" -
misst þráðinn og/eða glatað "innlifun" sinni í
verkið." Þessi lýsing minnir á endursögn kvikmynda-
frœðingsins Dudley Andreuis (Concepts in film
theory) á kenningum mamfrœðingsins Levi-Strauss
um frásagnarlist oggoðsagnir, en Levi-Strauss heldur
því fram að í endursögn goðsögunnar sé áherslan
ekki á þann sem segir söguna heldur á karaktera og
uppákomur í sögunni. Hvaða þýðingu telur þú að
þessi vöntun á hinutn "sýnilega þœtti myndavélar-
innar" í heimildamyndum hafi fyrir heimildar-
myndagerð?
ÞÁ: Mér eru nú ekki alveg Ijós skilin á milli "sögu" og
"goðsögu", nema ef vera skyldi að sú síðari hefði lengri
h'ftíma og meiri álirif. Og kannski meiri tilhneiginu til að
sveipa um sig skikkju sannleikans - það er að villa á sér
heimildir - þykjast vera annað en saga. Það kann hins
vegar vel að vera rétt að sá sem reiðir fram goðsögu geri
það á annan hátt en ef um "hreinan" skáldskap væri að
ræða. Og þar komum við meðal annars að þeim mun
sem jafnan er dreginn á milli sögumyndar og
heimildarmyndar - sú fyrri fæst við tilbúinn, skáldaðan
veruleika en hin síðari við lýsingu á einhverjum
fyrirbærum eða atburðum í raunveruleikanum. Þessi
mörk virðast við fyrstu sýn afar skýr og afgerandi en
þegar nánar er gáð kemur þó annað í ljós. Miðilinn
sjáffur - kvikmyndahstinn og allt sem henni tilheyrir - er
þannig nánast ósýnilegur í báðum tilfellum. Þeir sem
ætia að segja sögur vilja ekki að miðillinn trufli
frásögnina - en hér verð ég að skjóta því að, að þessi
meintu "truflunaráhrif" eru í sjálfu sér hálfgerð goðsaga.
Þeir sem á hinn bóginn ætla að lýsa "lífinu og
sannleikanum" vilja heldur ekki láta miðilinn trufla,
ekki þó fyrst og fremst til að fyrirbyggja truflun á
söguflæðinu sem slíku, heldur til að forðast það að
áhorfandinn átti sig á þeim sögulestri sem í
heimildarmyndinni á sér óhjákvæmilega stað. Vitund
um miðil kallar á vitund um miðlun - þ.e.a.s. að
heimildarmyndin sé ekki hlutlaus, náttúrleg lýsing á
raunverulegum staðreyndum - heldur veruleikinn
khpptur og myndskorinn eftir höfði þess sern á véhnni
heldur. Hér sjáum við aðra "kvikmyndamýtu" á
ferðinnni - að sannleiksgildi heimildarmyndar ráðist af
því að áhorfandinn sé ómeðvitaður um frásagnar- eða
túlkunarþáttinn í myndinni. Þessi skoðun er auðvitað
gjörsamlega út í hött!
SBH: Telur þú að þessi "tök sögusporsins" á
kvikmyndagerðarmönnum sé til þess að hefta
tilraunir með kvikmyndina og þar með gerð á
tilraunarkvikmyndum? Ef svo er, telur þú að við
eigum einhver meðöl til við að slíta þessa jjötra?
ÞÁ: Tilraunamyndir eiga það flestar (en alls ekki
allar) sameiginlegt að setja hinn sjónræna þátt
kvikmyndarinnar í öndvegi en skeyta minna um texta
eða söguþáttinn sem slíkan. Hugsunin hér er sú að
kvikmyndin sé í eðli sínu fyrst og fremst sjónrænn rniðill
og því sé það "fyrsta skylda" hennar að hlúa að því sem
að auganu snýr. Sumir, t.a.m. Stan Brakhage, ganga
lengra og vilja Iíta á kvikmyndina sem einskonar
"holdgervingu sjónarinnar" en þar af leiðandi verður
kvikmyndagerð viss rannsókn á því hvað augað getur
séð og það að sjá sem mest verður höfuðatriði. Önnur
hugsun og nátengd þeirri fyrri er að beina sjónurn
einkunt að miðlinum sem slíkum - hvað honum sé
eiginlegt, hvað geri kvikmynd að kvikmynd - og í því
sambandi hafa jnenn t.a.m. vilja forðast allt "laumuspil"
með tæknina. Ákveðin tegund af tækni er kvikmyndinni
eiginleg og sú tækni á þar af leiðandi að vera sýnileg
eða jafnvel sett undir smásjá (gagn)rýnandans. Áherslan
á söguna hefur á sér tvær hliðar sem hvor um sig er í
vissri andstöðu við þá sjónrænu/sjálfhverfu eða
"reflexífu" hugsun sem áður var nefnd. Annars vegar
höfum við "söguna" sem ákveðinn texta eða tiltekið
flæði leiks og atburðarásar í sögumynd. í daglegu tali
virðist rnér þetta vera það sem menn eiga við þegar þeir
tala um "handritið" sem alltaf er svo brýn þörf á að laga.
Hættan hér er sú að áherslan á þennan þátt beri hið
sjónræna ofurliði - að hinn sjónræni þáttur fái ekki
notið sín sem skyldi vegna þess að hann "trufli" söguna
sem verið er að segja með leik, látbragði og orðum.
Hins vegar höfum við "söguna" sem sjálfan flutning
tiltekinnar frásagnar - hér skiptir ekki meginmál hvað
er sagt eða gert heldur einfaldlega sá "gjörningur" að
með þessu er verið að segja mönnum einhverja sögu. Ef
þessi hhð sögunnar er með öllu "fahn" sjónum, eins og
venja er, þá skapast ákveðin hætta á blekkingu sem
t.a.m. setur sanngildi heimildarmyndarinnar í töluvert
uppnám. Sjálfur tilverugrundvöllur heimildarmyndar
byggist á því að birta mönnum "sannleika" af vissum
toga en hvemig er hægt að telja frásögn trúverðuga ef
hún neitar því að hún sé í eðli sínu saga? Nú, þú spyrð
mig um meðöl ems og ég sé eitthvert kvikmynda-
fræðilegt apótek! Ég held að það sé útilokað að gefa
einhverjar forskriftir, hvað þá resept, uppá slíkt - og það
væri raunar í andstöðu við aðrar skoðanir mínar sem
hér hafi verið tíundaðar. En ef við tölum á mjög
almennum nótum, þá mættu menn að mínu viti hætta að
einblína á "handritið" sem einhvern Akkilesarhæl en
vera þess í stað heldur uppfinningasamari og djarfari í
sjónrænum efnum. Það kann vel að vera að v.ið
íslendingar séum "söguþjóð" en frásagnargleðin getur
ein og sér aldrei skapað fullburða kvikmynd. Ofangreint
gildir bæði um sögu- og heimildarmyndir en þeir sem
fást við þær síðarnefndu mættu gjarnan "líta meira í
eigin barm" varðandi þann margvíslega sannleika sem
heimildarmyndin verður - ekki síst sjálfs síns vegna - að
gera trúverðug skil.
Leikarar og starfslið Myrkrahöfðingjans
LEIKARAR:
Sérajón: Hilmir Snær Guðnason
Þórkatla: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Snorri: Gunnar Jónsson
Þórmundur: Sveinn M. Eiðsson
Þuríður: Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Sveinn: Atli Rafn Sigurðarson
Páll eldri: Jón Sigurbjörnsson
Páll yngri: Jón Trj'ggvason
Guðmunda: Marta Hauksdóttir
Magnús: Hallgrímur Helgason
Christina: Alexandra Rapaport
Gamli biskup: Höskuldur Skagfjörð
Leikarar i upþhafi og enda:
Sérajón eldri: Benedikt Árnason
Brynjólfur Biskup: Kjartan Gunnarsson
Ungurpresturl: Emil G. Guðmundsson.
Ungurpr. 2: Þröstur Leó Gunnarsson
Varðmenn með sýslumanni:
l.varðmað/skrifari: Guðmundur Bogason
2. varðmaður: Kristján Jónsson
3. varðmaður: Jens Pétur Högnason
Vinnufólk á bœ Sérajóns:
1. vinnukona: Svanhvít Magnúsdóttir
Dóttir 1. vinnukonu: Lilja Valgerður
2. vinnukona: Þórey Aðalstcinsdóttir
1 vinnumaður: Ámi Salomonsson
2 vinnum: Ómar Bragi Walderhaug
3. vinnumaður: Gunnar Arnason
Prestlcerlingar í upphafi og enda:
Ungur Pr. 3: Sigurður Ólafsson
Ungur pr. 4: Þorgeir Tryggvason
Skólasveinar að útskrifast:
Óttar Proppc
FinnurÞór Vilhjálmsson
Stefán Hörður Biard
Vésteinn Valgarðsson
STARFSLIÐ:
Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson.
Framleiðandi: Ari Kristinsson fyrir
íslensku kvikmyndasamsteyijuna..
Aðstoðarleikstjóri: Sigrún Sól. Fram-
kvæmdastjóri: Hrönn Kristinsdóttir.
Tökustaðastjóri: Kristinn Arason.
Kvikmyndataka: Ari Kristinsson. Focus
puller: Hálfdán Theodórsson.
Clapper/loader: Júlía Katrínardóttir.
Skrifta: Bryndís Jónsdóttir. Ljósameistari:
Örn Marinó Arnarson. Best boy: Krist-
ófer Dignus Pétursson. Gripill: Ólafur
Jónasson. Aðst.ljósamaður: Ingvar
Stefánsson.
\
Leikmyndahönnuður: Árni Páll
Jóhannson. Leikmunavörður: Þórir
Theódórsson. Leikmunasmíði: Þór
Vigfússon. Aðst.v.leikmunasmíði: Þorkell
Harðarson. Brellumeistari: Eggert
Ketilsson. Handlangari/aðst.sfx: Behnam
Valadbeygi. Handlangari/aðst.sfx: Daniel
Howard. Handlangari/smiður: Bárður
Kristjánsson. Búningar: Ólafur Egill
Egilsson. Aðstoð v/ búninga: Linda
Garðarsdóttir. Förðun: Christina
Öhlund. Aðst. förðun: Susanne Maresch.
Sérstök förðun: Stefán Jörgcn Ágústsson.
Aðst. sérstökförðun: Sigurjón F.
Garðarsson.
Hlaupari: Garún. Umsjón m. mat: Kristín
Eysteinsdóttir.
Hestaumsjón: Jens Pétur Högnason.
Dýratemjari: Asta Dóra Ingadóttir. Umsjón
m. öryggi: Guðmundur Bogason. Kristján
Jónsson.
Stand in /Áhættul.: Valdimar Jóhannsson.
Stand in: Geir Magnússon. Stunt f/
Christinu: Steinunn Hilmarsdóttir.
Málverk: Per Lundgren.
Lanú&sy m r 9