Land & synir - 01.11.1999, Side 7

Land & synir - 01.11.1999, Side 7
Anna G. Magnúsdóttir: Konsúlentarnir geta miðlað samböndum Gallarnir við úthlutunarkerf- ið, eins og það hefur verið heima að minnsta kosti, eru þeir að það er ekki hægt að sækja um nema einu sinni á ári og það er ekki hægt að ræða við mennina í nefndinni eða þróa verkefnin áfram í samtali við neinn. Maður bara sendir inn umsókn og fær síðan svar. Ef maður fær ekkert þarf að bíða í heilt ár. Þetta er mjög erfitt vegna þess að til að geta stundað framleiðslu af einhverju viti þá verður maður að hafa ein- hverja samfellu. Hvernig hefur sænska kon- súlentakerfið reynst þér? Mjög vel, sérstaklega fyrst. Þegar ég kom hingað, 1993, var Sænska Kvikmyndastofn- unin nýbúin að koma nýju formi á fjárveitingar til kvik- myndagerðar til að stuðla að því að koma á iðnaði, að koma á samfelldari kvikmynda- framleiðslu. Áður hafði hún verið með nefndir og fram- leitt sjálf. Konsúlentarnir fá hver sína fjárveitingu og styrkja verkefni að eigin vali, það sem þeir hafa persónu- lega trú á. En samt sem áður þurfa skýrar samskiptareglur að vera fyrir hendi. Fyrstu konsúlentarnir sáu til þess að fyrir væri teymi, höfundur eða leikstjóri og framleið- andi. Slíkt teymi þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að þróa verkið samhliða, annarsvegar handritið og hinsvegar að þróa sjálft verkefnið og fjármagna það. Það er mjög mikil- vægt að þetta tengist. En síðar hafa verið að taka við konsúlent- ar sem hafa verið að slíta þetta í sundur, þennan þrí- hyrning. Þá eru í raun færri verkefni sem komast áfram. Það hafa miklir peningar far- ið í handrit en það gerist ekkert með handritin vegna þess að þau eru ekki tengd framleiðslueiningunum. Hafa konsúlentar í Sviþjóð fengið á sig gagnrýni úr bransanum fyrir klíkuskap? Nei, það hefur ekki mikið borið á því. Hinsvegar hefur maður heyrt - það er náttúr- lega alltaf kjaftað - að sum- um framleiðendum hafi verið settur stóllinn fyrir dyrnar. Ég veit ekki hvað er mikið til í því. Þetta er náttúrlega rosalega erfitt starf. Þetta er ekki starf sem gerir nokkurn mann vinsælan. Fremur en að vera í úthlutunarnefnd. En konsúlentakerfið er samt betra kerfi vegna þess að þetta eru menn sem eru í fullri vinnu og geta verið tengiliðir milli fólks. Tengiliðir milli hverra, framleiðenda og leikstjóra? Já, til dæmis, þeir geta miðl- að samböndum. Allt byggist þetta á persónulegum sam- böndum. Konsúlentarnir sitja á sínum stað, sitja í Kvikmyndastofnuninni á hverjum degi og þeir eru í miklum tengslum við brans- ann. íslenskir kvikmyndagerðar- menn virðast ekki hafa mikla trú á að það finnist hæftfólk til að gegna þessu starfi. Ég er viss um að það finnst hæft fólk á íslandi ef sett eru skýr markmið um hvernig þetta eigi að virka. Það er með þetta eins og annað, það eru til vandaðar manneskjur og manneskjur sem eru ekki svo vandaðar, svona etískt og allt það. Það sem mér finnst skipta mestu máli fyr- ir konsúlent er að hann hafi góða yfirsýn yfir bransann, geti fúnkerað sem viðmæl- andi og hafi einhverja sýn á það hvernig megi styrkja iðnaðinn. Og að hann geti hjálpað fólki til að finna leið- ir. Það sem mér finnst vera vandamálið hér, stundum, er að konsúlentana skortir lang- tímamarkmið gagnvart iðn- aðinum. Það finnst mér vera aðalmarkmiðið þegar verið er að byggja upp svona kerfi, ekki bara horfa á eitthvað einstakt verkefni, einstakt ár, einstakan leikstjóra. Per- sónulega finnst mér það líka vera mikilvægur eiginleiki hjá konsúlenti að geta gefið skýr og greinargóð svör og það fljótt. Já eða nei og ef það er já, undir hvaða kring- umstæðum þá og hvaða skil- yrði þurfi að uppfylla og hvenær. Konsúlent sem get- ur gert þetta stuðlar að því að gera alla vinnu í bransan- um faglegri og skilvirkari, alla forvinnuna og skipulagið fyrir kvikmyndagerð. Anna G. Magnúsdóttir er framleiðandi i Stokkhólmi. Fyrirtæki hennar, Little Big Productions, hefur framleitt heimildar- myndir, stuttmyndir og bíómyndir og er nú að þróa „sit-com" fyrir sjónvarp. Þorfinnur Guðnason: Það þyrfti tvo konsúlenta hið minnsta Konsúlentakerfið yrði mun skilvirkara en úthlutunar- nefndakerfið, einfaldlega vegna þess að umsóknartím- inn yrði þá allan ársins hring. Það gefur líka kost á sam- vinnu milli umsækjenda og konsúlenta sem er ekki fyrir hendi í þessu úthlutunar- nefndakerfi. Menn væru þá ekki að eyða allri þessari orku í umsóknir sem eru fyr- irfram dauðadæmdar því að konsúlentarnir eru í og með leiðbeinendur á frumstigi hugmynda og jafnvel á með- an handritið er að mótast. Það sem er líka dálítið spenn- andi við þetta konsúlenta- kerfi eru áherslurnar sem menn koma með inn í störfin. Þetta getur reyndar verið fremur neikvætt líka. Við þekkjum það til dæmis úr Norræna sjóðnum þegar Dag Alveberg fór að leggja mikla áherslu á „commercial” gildi kvikmynda. Þetta fer nefni- lega allt eftir því hver situr við stjórnvölinn. Ákvarðan- vniar endur- spegla per- sónulegan smekk, það er óhjá- kvæmilegt. Akkúrat. En það sem mælir með konsúlentakerfinu er að umsóknartíminn dreifist yfir allt árið. Eins og er sitja menn oft auðum höndum og bíða með öndina í hálsinum í marga, marga mánuði. Þessi tímafaktor skiptir miklu máli upp á framleiðsluna að gera. Uthlutunarnefndirnar fá 20- 30 umsóknir bara vegna framleiðslu á bíómyndum, við erum að tala um 2-3 þúsund blaðsíður lágmark, plús það að fara ofan í saumana á kostnaðaráætlunum, plús all- ar hinar umsóknirnar. Ég held að þetta sé alltof mikil vinna á alltof stuttum tíma. Treystir þú konsúlenti til að lesa allar umsóknir vandlega? Ég mundi segja að það þyrfti tvo konsúlenta í það minnsta. Og að þeir skipti með sér verkum, eitthvað svipað og þeir gera í Norræna sjóðn- um. Hver telurðu að sé helsti ókosturinn við að hafa konsúlenta? Ef það er eitthvað, þá er það sú staðreynd að þetta er svo lítið samfélag. Og því hætta á öfund og klíkuskap. En ég held að þetta sé mun betra kerfi og að kostirnir við það séu miklu fleiri en ókostirnir. ' "Ti Porfinnur Guðnason er kvikmyndatöku- J . f maður og framleiðandi. Hann gerði nátt- úrulifsmyndirnar Húsey og Hagamúsin a —, * og er nú að vinna að langri heimildar- Land&symr 7

x

Land & synir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.