Land & synir - 01.11.1999, Page 13

Land & synir - 01.11.1999, Page 13
FRIÐRIK ÞÓR og starfsfólk Englanna við upptökur í Bankastræti. Ingvar stendur fyrir framan vélina. Englar alheimsins FRIÐRIK Þór Friðriksson mun frum- sýna sjöttu bíómynd sína, Engla al- heimsins, þann 1. janúar næstkomandi. Myndin er byggð á samnefndri verð- launaskáldsögu Einars Más Guðmunds- sonar, sem jafnframt gerir handrit myndarinnar ásamt Friðriki Þór. í myndinni er sögð þroskasaga Páls (Ingvar E. Sigurðsson), sem þjáist af geðsjúkdómi og viðbrögðum umhverfís- ins við honum. í upphafi kynnumst við fjölskyldu hans, æskuvini og stúlkunni sem hann elskar (Halldóra Geirharðs- dóttir), en fylgjum honum seinna inn á Klepp. Á geðspítalanum koma við sögu sálufélagar hans, Óli bítill (Baltasar Kor- mákur), sem heldur að hann hafi samið öll bítlalögin og sent Bítlunum þau sem hugskeyti, Viktor (Björn Jörundur) sem stundum breytist í Hitler en ber með sér vissa menntun og fágun og Pétur (Hilm- ir Snær Guðnason), herbergisfélagi Páls, sem farið hefur yfir um á sýru og trúir því að hann hafi skrifað doktorsritgerð um Schiller í Kína. Tökur myndarinnar fóru fram í Reykjavík og nágrenni nú síðsumars en verkið hefur verið í vinnslu í á sjötta ár. Aðspurður um tilurð verksins segir Friðrik að hann hafi vitað að sagan yrði gott efni í kvikmynd þegar Einar hófst handa við ritun skáldsögunnar. Þetta er þriðja bíómyndin sem þeir Einar vinna saman, hinar voru Börn náttúrunnar og Bíódagar. Rjóminn af karlleikurum landsins af yngri kynslóðinni leikur “Englagengið”, þeir Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Baltasar Kormákur og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Ennfremur eru Halldóra Geirharðsdóttir og Mar- grét Helga Jóhannsdóttir í stórum hlut- verkum. Kostnaður við myndina nemur tæp- um tvö hundruð milljónum króna. Framleiðandi er Islenska kvikmynda- NYJAR MYNDIR ENGLAR ALHEIMSINS ' Leikstjóri Friðrik Þór Friðriksson Handrit Einar Már Guðmundsson Kvikmyndataka Harald Gunnar Paalgard Framkv.stj./Framleiðandi Hrönn Kristinsdóttir Leikmyndahönnuður Jón Steinar Ragnarsson Búningahönnuður Helga Stefánsdóttir Hljóðhönnuður Kjartan Kjartansson Klippíng Sigvaldi J. Kárason Skule Eriksen Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson Aðst. leikstjórar Fahad Falur Jabali María Sigurðardóttir Annar aðst. leikstjóri Gagga Leikmunameistari Guðrún A. Óskarsdóttir Aðst. leikmyndahönnuður Þórir Marrow Theódórsson Hljóðmaður Birgir Mogensen Hár og förðun Ragna Fossberg Skrifta Helga Jónsdóttir Aðst. búningahönnuður María Valsdóttir Rafvirki Sigurður Steinarsson Helstu leikarar Ingvar E. Sigurðsson Baltasar Kormákur Björn J. Friðbjörnsson Hilmir Snær Guðnason Halldóra Geirharðsdóttir Margrét Helga Jóhannsdóttir Theódór Júlíusson Sara Mikaelsdóttir Friðrik Steinn Friðriksson samsteypan í samvinnu við Zentropa í Danmörku, Peter Rommel í Þýskalandi og Filmhuset í Noregi, auk þátttöku sjón- varpsstöðvanna ZDF og ORB í Þýskalandi og ARTE í Frakklandi. Auk íslenska kvikmyndasjóðsins styrktu Eurimages, Norræni sjóðurinn, Norska kvikmyndastofnunin og þýski sjóð- urinn Nordhreine Westfalen verkefnið. 101 Reykjavík BALTASAR Kormákur hefur komið víða við á fremur stuttum ferli. Hann er einn vinsælasti og virtasti leikari íslands jafnt á sviði sem og í kvikmyndum, hann hefur leikstýrt tíu leikhúsuppfærslum, hér heima sem erlendis og stofnaði við annan mann leikhúsið Loftkastalann. Sem leikstjóri hefur hann sýnt fádæma fjöl- breytni og virðist jafnfær á að setja upp létta söngleiki á borð við Hárið og Rocky Horror, sem og þyngri og listrænni verk eins og Hamlet og Leitt hún skyldi vera skækja. Nú rær Baltasar hinsvegar á ný mið, því 101 Reykjavík er frumraun hans á sviði kvikmyndaleikstjórnar og gerði hann jafnframt handrit að myndinni. Myndin er byggð á skáldsögu Hall- gríms Helgasonar og er svið þessarar svörtu kómedíu tryllt skemmtanalíf Reykjavíkur nútímans. Söguhetjan, eða réttara sagt andhetjan, er Hlynur, ungur maður í tilvistarkreppu. Hann nýtur þess að búa á Hótel Mömmu og lifa hinu þrönga og tilbreytingalitla lífi glaums og gleði í miðbæ Reykjavíkur, á póstsvæði 101. í stöðugri leit sinni að nýjum og æsilegri rekkjunautum lendir hann loks í rúminu með konu sem hann kemst síðar að raun um að er ástkona móður sinnar, konu sem hugsanlega ber barn hans und- ir belti. Það er Hilmir Snær Guðnason sem Land&syrar 13

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.