Víkurfréttir - 22.03.2018, Blaðsíða 16
16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. mars 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
Fyrsta bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur, Elsku
besta Binna mín, kom út haustið 1997, fyrir ríflega
20 árum. Kristín Helga hefur alla tíð síðan feng-
ist við ritstörf; skrifað bækur, pistla og einnig kennt
ritlist í Listaháskóla Íslands og í Háskóla Íslands.
Áður starfaði Kristín Helga sem fréttamaður um ellefu
ára skeið. Aðallega í erlendum fréttum í útvarpi og sjón-
varpi, Stöð tvö og Bylgjunni. Hún nam blaðamennsku og
spænsku í Bandaríkjunum og á Spáni.
Kristín Helga hefur eins og aðrir horft upp á hryllinginn í
Sýrlandi frá því að borgarastyrjöldin hófst þar árið 2011.
„Ég hef líka horft í gegnum tíðina, úr okkar þægilegu, vest-
rænu fjarlægð, á ótal átök um allan hnöttinn. Þessi átök
blossa upp af fáránlegum ástæðum og allskonar fólk með
andstyggilega hagsmuni viðheldur stríðsmaskínunni á meðan
börn og saklausar manneskjur deyja. Mig langaði að nota
mitt verkfæri, sögugerð, og minn bakgrunn sem fréttamaður,
til að miðla þessum veruleika – upp að því marki sem ég
get miðlað, verandi hvít forréttindakona í
friðsömu samfélagi,“ segir Kristín.
Bókin Vertu ósýnilegur – flóttasaga
Ishmaels kom út fyrir jólin 2017 og hefur
notið verðskuldaðrar athygli. Sagan
fjallar um flótta unglingsdrengsins
Ishmael frá Aleppo í Sýrlandi og einnig
hvernig fjölskyldu á Íslandi gengur að
fóta sig í nýju samfélagi.
Kristín Helga segir það vera lykilinn
að mennskunni að geta sett sig í spor
annara. Þegar manneskjan hættir að
geta það þá hefur hún misst allt. Í
bókinni segir Kristín Helga því í raun
sögu margra en hún viðaði að sér
eins miklum upplýsingum og hún
mögulega gat við vinnslu bókarinnar.
„Ég tók viðtöl við Sýrlendinga sem eru
nýkomnir hingað og líka þá sem hafa
verið lengi, talaði við hjálparstarfs-
menn, safnaði sögum, las bækur og
lá yfir fréttum og fréttaþáttum, hlustaði á viðtöl og
frásagnir og dró saman í mína frásögn. Ég reyndi að vera
eins nákvæm og ég mögulega gat. Þannig eru persónurnar
í sögunni skáldaðar, en þær byggja á mörgum manneskjum
og allt sem þær upplifa hefur gerst og er að gerast í raun og
veru. Því lengra sem ég kafaði ofan í efnið því mikilvægara
fannst mér að hafa alltaf sannleikann að leiðarljósi. Það hefði
verið vanvirðing við þetta fólk að sitja hér uppi á Íslandi og
reyna að skálda í einhverjar eyður. Þannig eru staðhættir og
staðreyndir samkvæmt heimildum. Tilfinningar og upplifun
og jafnvel nokkuð mörg samtöl byggja einnig á raunveru-
leikanum, fréttum og frásögnum.“
Vertu ósýnilegur hefur hlotið Fjöruverðlaunin og Bók-
salaverðlaunin og einnig verið tilnefnd til Hinna íslensku
bókmenntaverðlauna og Barna- og ungmennabókaverð-
launa Reykjavíkurborgar. Kristín segir það hafa mjög mikla
þýðingu fyrir þessa bók að fá það ljós og þá athygli sem
fylgir verðlaunum og viðurkenningum. Þannig fá mál-
efni flóttafólks athygli, fólk les, ræðir saman og verður
upplýstara. Þannig getur fólk kannski betur sett sig í
spor annarra. „Þá er markmiði mínu náð,“ segir Kristín.
Þetta segir Kristín vera ástæðu þess að hún skrifaði bókina;
til að auka á upplýst samtal. „Ég skrifaði hana líka þannig
að hún næði til sem flestra í aldri, unglinga og fullorðinna.
Það gerði ég til að stækka samtalið og mig langar til að hún
verði kennsluefni í skólum. Við þurfum að taka þetta samtal
við framtíðarfólkið og það þarf að vera upplýst og má ekki
byggja á fáfræði og þröngsýni. Líf fólks eru í húfi,“ bætir
Kristín við alvörugefin.
Kristín Helga situr að sjálfsögðu ekki auðum höndum um
þessar mundir og hefur ekki alveg kvatt Ishmael. „Mig
langar að gera framhald af Flóttasögu Ishmaels og fylgja
honum eftir og sjá hvernig honum vegnar,“ segir Kristín.
Margir áhrifavaldar koma við sögu þegar hún er spurð
um sína mestu fyrirmynd í ritstörfunum.
„Margar stórar og gamlar stjörnur hafa vísað mér veginn í
skrifunum. Astrid Lindgren með tæra hugsun, kærleika og
undirliggjandi kímni, þungan og mikilvægan undirtón
sem gerir sögurnar hennar tímalausar.
Sömuleiðis Guðrún Helgadóttir sem
spilar á svipaða strengi. Þær eru nákvæm-
ar og alltaf með tilgang og hafa húmor
fyrir hversdeginum. Halldór Laxness og
aðferðarfræðin hans hefur áreiðanlega
mótað, Þórbergur Þórðarson, ólíkinda-
lætin og hömluleysið. Allt sem maður les
hefur áhrif á hvernig maður skrifar. Ég ólst
upp við Roald Dahl, Dr. Seuss, C.S. Lewis,
Lewis Carol, Tolkien, Blyton, Mark Twain,
Montgomery, Önnu Frank, Beverly Grey,
Nancy, Pollýönnu, Hjalta litla, Tinna og Millý
Mollý Mandý. Í seinni tíð hef ég haft gaman af
Rowling, Suzanne Collins, Kaaberböl og Pull-
man. En svo les ég líka ljóð og þau hafa mikil
áhrif á tilfinningaferli, stíl og flæði. Fyrst og
síðast er ég þó afsprengi Astridar. Hún er alltaf
mín uppspretta og ég les Línu reglulega til að
stappa í mig stálinu. Ég held að það sem ég las
þegar ég var yngri hafi meiri áhrif á það hvernig
höfundur ég hef orðið en það sem ég les núna. Ég finn að ég
er mun gagnrýnni á það sem ég les núna og tek minna af því
með mér inn í eigin verk- en það er óskaplega notaleg tilfinning
að lesa eitthvað nýtt sem er bæði lærdómur og innblástur.
Svo eru það þeir sem standa hjarta næst. Íslenskukennarar
fortíðar voru áhrifavaldar, móðurafi og amma með þjóð-
sagnaarfinn á eldhúsborðinu og foreldrar sem báru bækur
í hús, eru sögumenn og samfélagsrýnar. Allt hefur áhrif“.
Fimmtudagskvöldið 22. mars klukkan 20.00 verður
Erlingskvöld í Bókasafni Reykjanesbæjar. Rithöfund-
arnir Bubbi Morthens, Kristín Helga Gunnarsdóttir og
Kristín Steinsdóttir lesa úr verkum sínum. Feðginin
Jana og Guðmundur flytja frumsamin lög í upphafi
kvöldsins. Dagskráin er styrkt af Uppbyggingarsjóði
Suðurnesja. Boðið verður upp á kaffi og konfekt og
eru allir hjartanlega velkomnir.
Miðlar
skelfilegum
veruleika með
sagnagerð
KRISTÍN HELGA GUNNARSDÓTTIR
VERÐUR Á ERLINGSKVÖLDI
BÓKASAFNS REYKJANESBÆJAR
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Duus Safnahús– Þjónusta ferðamála, helgarstarf
Málefni aldraðra – Störf í félagslegri heimaþjónustu
Velferðarsvið – Sumarstörf á heimili fatlaðs fólks
Málefni fatlaðs fólks – Sumarstörf í Einidal
Leikskólinn Hjallatún – Aðstoðarmatráður
Málefni fatlaðs fólks – Störf í sumardagvistun
Hæfingarstöðin – Sumarstörf
Málefni fatlaðs fólks – Umönnunarstörf á heimilum
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt
gegnum vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla:
Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um
auglýst störf og á facebook síðunni Reykjanesbær –
laus störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Bókasafn Reykjanesbæjar
Erlingskvöld 22. mars kl. 20:00. Bubbi Morthens,
Krístín Helga Gunnarsdóttir og Krístín Steinsdóttir
lesa úr verkum sínum, feðginin Guðmundur og Jana
flytja tónlist. Kaffi og konfekt og allir velkomnir.
Konsertkaffi 24. mars kl. 15:00. Arnór Vilbergsson og
Elmar Hauksson syngja norræn lög í boði Norræna
félagsins. Norrænn munnbiti og safi. Allir velkomnir.
Fegurð, frost og fullveldi - Duus Safnahús
Fræðslu- og skemmtidagskrá í Bíósalnum 22. mars
kl. 17:30 á vegum Byggðasafns, Listasafns, Sögufélags
Suðurnesja og Leikfélags Keflavíkur ásamt Arnóri og
Elmari. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.