Víkurfréttir - 22.03.2018, Blaðsíða 25
25UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. mars 2018 // 12. tbl. // 39. árg.
V I L T Þ Ú V E R Ð A
H L U T I A F G Ó Ð U
F E R Ð A L A G I ?
Hringur er flugumferðarstjóri
í flugstjórnarmiðstöðinni
í Reykjavík. Hann er hluti
af góðu ferðalagi.
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 . A P R Í L
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu
ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Isavia hefur hlotið gullmerki PwC fyrir launajafnrétti og hvetjum við bæði konur og karla
til að sækja um þau störf sem í boði eru.
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Helstu verkefni eru eftirlit með tölvubúnaði í innritun
og flugupplýsingaskjám, aðstoð við uppsetningu á vél-
og hugbúnaði og uppsetningar og viðhald á tölvum,
prenturum og öðrum jaðarbúnaði.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Góð þekking á Microsoft lausnum
• Þjónustulund og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Þekking á IP og netkerfum er kostur
• Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
• Kostur að hafa lokið CompTIA A+ gráðunni
Isavia óskar eftir kerfisstjóra í notendaþjónustu við tölvukerfi
Isavia á Keflavíkurflugvelli. Helstu verkefni eru notenda-
þjónusta, uppsetningar og viðhald á tölvum, pantanir, skráning-
ar og samskipti við birgja. Gríðarleg áhersla er lögð á uppitíma
kerfa. Lögð er áhersla á að nota nýjustu tækni við að leysa
flókin vandamál.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Kostur að hafa lokið MS prófgráðu eins og MCSA eða MCITP
• Kostur að hafa lokið kerfisstjóranámi
• Kostur að hafa lokið CompTIA A+ gráðu
• Skilningur og þekking á Microsoft Windows umhverfi
• Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
Við leitum að ábyrgum og úrræðagóðum einstaklingum með
sjálfstæð vinnubrögð til að sinna störfum húsvarða í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Um framtíðarstörf er að ræða í krefjandi
umhverfi. Unnið er á dag- og næturvöktum.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Freyr Borgarsson, hópstjóri
rekstrarstjórnstöðvar, bjarni.borgarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Aldurstakmark 20 ár
• Nám í iðnmenntun eða önnur sambærileg menntun/reynsla
• Góð kunnátta í ensku og íslensku
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
Isavia óskar eftir að ráða kerfisstjóra í net- og símamálum
með góða þekkingu á Cisco netbúnaði og netkerfum.
Kerfisþjónustan rekur eitt stærsta tölvu- og netkerfi á Íslandi.
Gríðarleg áhersla er lögð á uppitíma kerfa. Lögð er áhersla
á að nota nýjustu tækni við að leysa flókin vandamál.
Nánari upplýsingar veitir Axel Einarsson, deildarstjóri
Kerfisþjónustu, axel.einarsson@isavia.is.
Hæfniskröfur
• Cisco CCNA gráða er kostur (R&S, Voice eða Wireless)
• Þekking á búnaði frá Cisco og Palo Alto er kostur
• Þekking á Cisco símaumhverfi er kostur
• Þekking á Cisco WiFi er kostur
• Almenn þekking á IP, Layer 2 og 3 samskiptum er æskileg
K E R F I S Þ J Ó N U S T A
S U M A R S T A R F
K E R F I S S T J Ó R I
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
F R A M T Í Ð A R S T Ö R F
H Ú S V A R Ð A
K E R F I S S T J Ó R I
N E T O G S Í M A M Á L A
Hreinn bær, okkar bær
Um daginn birti RÚV frétt sem fjallaði um smábæ í Kanada sem hafði verið
stefnt af olíu risanum Gastem. Bæjarstjórn bæjarins hafði áhyggjur af vatns-
bóli bæjarbúa og bannaði fyrirtækinu að bora fyrir olíu og gasi í tveggja
kílómetra radíus frá vatnsbólinu. Olíu fyrirtækið taldi lög sveitarfélagsins
ólögleg og krafðist skaðabóta upp á 1,5 milljóna Kanadadala sem er meira en
þrefalt það fjármagn sem sveitarfélagið hefur á milli handanna á ári hverju.
Hæstiréttur í Quebec dæmdi sveitarfélaginu í hag. Sveitarstjóri bæjarins lét
hafa eftir sér að réttur sveitarfélagsins til að vernda vatnsból sitt hafi verið
viðurkenndur að fullu.
Þessi saga er gott dæmi um þau grund-
vallar réttindi manna að hafa aðgang
að hreinu vatni og andrúmslofti. Þessi
réttur íbúa Reykjanesbæjar hefur
undanfarin ár verið undir stöðugri
árás með framkvæmdum stórmengandi
iðnaðar í Helguvík.
Undanfarin ár hef ég barist gegn illa
grundaðri stefnu bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar að samþykkja lóðir fyrir stór-
mengandi iðnað innan tveggja kílómetra
fjarlægð frá íbúabyggð. Flestum er full
ljóst hvað áhrif United Silicon hafði á
heilsu og líðan bæjarbúa þegar verk-
smiðjan hóf framleiðslu með einum af
fjórum ljósbogaofnum sem starfsleyfið
veitir. Ef til vill eru færri sem muna eftir
því að fyrir fjórum árum þegar nýkjörin
bæjarstjórn tók við völdum var samþykkt
nær einróma að veita annari kísilverk-
smiðju, Thorsil, leyfi til framleiðslu í
Helguvíkinni. Þessi ákvörðun var óskyn-
samleg þar sem engin reynsla var komin
á fyrri verksmiðjuna, þ.e. United Silicon.
Á þessum tíma var ég í fjórða sæti á
óháðum lista Samfylkingarinnar þar
sem helsta slagorð fylkingarinnar var
“íbúasamráð skal hafa í öllum stórum
umhverfismálum”.
Skemmst er frá því að segja að það
loforð var ekki efnt.
Þegar nokkrir ötulir bæjarbúar að
mér meðtalinni hófum að safna undir-
skriftum fyrir íbúakosningar bar lítið á
stuðningi bæjaryfivalda. Stjórn bæjar-
ins lét hafa eftir sér að það skipti litlu
máli hvað bæjarbúar myndu kjósa,
verksmiðjan yrði samþykkt.
Í dag stendur bygging kísilversins Uni-
ted Silicon undir lás og slá eða þar til
næstu eigendur taka við verksmiðjunni
væntanlega með loforð sem og fyrri
eigendur, um mengunarbúnað af bestu
fáanlegri gerð. Þrotabú United Silicon
skuldar bæjarfélaginu hundruða millj-
óna og Thorsil hefur enn ekki borgað
lóðargjöld. Svo virðist sem bæjarstjórn
hafi engan metnað til að nálgast pening-
ana þar sem verksmiðjan hefur fengið
ítrekaðan greiðslufrest.
Tími mengandi stóriðju er liðinn og
áframhaldandi framkvæmdir í Helgu-
vík eru byggðar á röngum forsendum
þar sem heilsa íbúa er virt að vettugi.
Til að tryggja farsæla framtíð bæjarbúa
verður að stöðva allar framkvæmdir
kísilvera í Helguvík.
Ég vona að næsta bæjarstjórn sýni
dug, metnað og hugrekki til að tryggja
íbúum bæjarins heilnæmt umhverfi,
tökum smábæinn í Kanada okkur til
fyrirmyndar.
Dagný Alda Steinsdóttir
Formaður VG á Suðurnesjum