Morgunblaðið - 11.09.2017, Page 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2017
Hvað ætli hafi farið í gegnum
huga Ólafíu Þórunnar Kristins-
dóttur þegar hún vippaði fyrir
erni og tryggði sér fjórða sætið
í móti á LPGA-mótaröðinni í
golfi á laugardagskvöld?
Gefum okkur að Ólafía
hefði fengið par en ekki örn á
18. og síðustu holunni. Þá hefði
hún hafnað í 9.-10. sæti og
fengið rúma 40 þúsund dollara í
sinn hlut í stað tæplega 103
þúsund dollara, sem jafngildir
um 10,9 milljónum íslenskra
króna.
„Ég átti geggjaða æfinga-
sveiflu og gerði alveg eins í
högginu. Ég sá þetta fyrir mér
og það bara tókst,“ sagði Ólafía
þegar hún var spurð um þessa
glæsilegu og dýrmætu vippu.
Þarna hittir þessa mikla af-
rekskona svo sannarlega nagl-
ann á höfuðið. Æfingin skapar
meistarann.
Er ekki sagt að kylfingar
þurfi að vera með hausinn í
lagi? Það þarf í það minnsta að
halda í jákvæðnina þegar maður
er einn með kylfusveini í heilan
golfhring. Bakvörður dagsins
hefði að öllum líkindum farið á
taugum í sporum Ólafíu og
vippað boltanum í eitthvert tré í
grenndinni eða eitthvað slíkt.
Pressan og tilhugsunin um
verðlaunaféð hefði sligað ein-
hvern kylfinginn í það minnsta.
Ólafía var sallaróleg.
Hún hefur samtals þénað
175 þúsund dollara í LPGA-
mótaröðinni á sínu fyrsta tíma-
bili, um 18,5 milljónir króna, og
er í 67. sæti peningalistans.
Eins og margoft hefur komið
fram um helgina fá hundrað
efstu kylfingar þessa tímabils
fullan keppnisrétt á mótaröðinni
á næsta ári. Það má því svo
sannarlega segja að vippan á
18. holu í síðasta hring um
helgina geti reynst gulls ígildi.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Í LAUGARDAL
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@mbl.is
ÍBV er handhafi beggja bikar-
meistaratitlanna í knattspyrnu,
það er bæði í karla- og kvenna-
flokki, en það varð ljóst eftir 3:2-
sigur ÍBV gegn Stjörnunni eftir
framlengdan úrslitaleik í bik-
arkeppni kvenna á laugardag. ÍBV
er fyrsta félagið til að státa af
þessum árangri síðan KR gerði
slíkt hið sama árið 2008. Þetta er
merkur áfangi hjá bæjarfélagi sem
telur rúmlega 4.000 manns.
ÍBV fékk draumabyrjun í leikn-
um, en Cloé Lacasse nýtti sér
slæm mistök Kristrúnar Kristjáns-
dóttur í upphafi leiksins og kom
Eyjakonum yfir. Stjörnunni óx
hins vegar ásmegin eftir því sem
leið á fyrri hálfleikinn og Harpa
Þorsteinsdóttir tók til sinna ráða
undir lok fyrri hálfleiksins. Harpa
lagði upp jöfunarmark Öglu Maríu
Albertsdóttur eftir rúmlega 40
mínútna leik og kom Stjörnunni
síðan yfir skömmu síðar.
Það benti svo allt til þess að
Stjarnan myndi verða bikarmeist-
ari í fjórða skipti í sögu félagsins
og þar af leiðandi jafna KR og ÍA í
fjölda bikarmeistaratitla. Eyjakon-
ur voru hins vegar staðráðnar í að
lúta ekki í lægra haldi í bikarúr-
slitaleik annað árið í röð, en liðið
tapaði fyrir Breiðabliki á síðasta
keppnistímabili.
Leikmenn ÍBV sýndu mikinn
baráttuvilja og karakter og upp-
skáru jöfnunarmark áður en yfir
lauk. Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, setti
hina 15 ára gömlu Clöru Sigurð-
ardóttur inná þegar um það bil
stundarfjórðungur var eftir af
leiknum. Clara hressti svo sann-
arlega upp á sóknarleik ÍBV og
kraftmikil hlaup ollu usla í vörn
Stjörnunnar.
Gleymdu Lacasse augnablik
Leikmenn Stjörnunnar gleymdu
að hafa gætur á Cloé Lacasse í eitt
stundarkorn skömmu fyrir leiks-
lok. Kanadíski framherjinn nýtti
sér það pláss sem hún fékk, fann
Kristínu Ernu Sigurlásdóttur sem
jafnaði metin. Staðan var jöfn eftir
venjulegan leiktíma og framlengja
þurfti leikinn.
Eyjakonur nýttu meðbyrinn sem
þær fengu við það að jafna metin
undir lok venjulegs leiktíma og
mættu af meiri krafti en Stjarnan
inn í framlenginguna. Um miðbik
seinni hluta framlengingarinnar
lék Cloé Lacasse aftur lausum
hala, sótti af krafti á vörn Stjörn-
unnar og var felld. Snertingin
virkaði ekki mikil, en Bríet Braga-
dóttir, sem varð fyrsta konan til
þess að dæma úrslitaleik í meist-
araflokki í bikarkeppni KSÍ þegar
hún dæmdi leikinn á laugardaginn,
benti á punktinn.
Sigríður Lára Garðarsdóttir,
fyrirliði ÍBV, sýndi stáltaugar á
vítapunktinum og skoraði af feiki-
legu öryggi úr vítaspyrnunni.
Þetta reyndist sigurmark leiksins
og ÍBV varð bikarmeistari í
kvennaknattspyrnu í annað skipti í
sögu félagsins, en liðið varð síðast
bikarmeistari árið 2004 og allir nú-
verandi leikmenn þess voru að
vinna sinn fyrsta stóra titil sem
leikmennn ÍBV. Heimir Hall-
grímsson, núverandi þjálfari ís-
lenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, var við stjórnvölinn hjá
ÍBV þegar liðið varð bikarmeistari
2004.
Ofboðslega þýðingarmikið
„Það gaf okkur aukakraft að ná
að jafna metin undir lok venjulegs
leiktíma og mér fannst við öflugri í
framlengingunni. Við vildum þetta
virkilega og sýndum það allan tím-
ann. Við börðumst allar 120 mín-
úturnar og það var sú barátta, trú
og kraftur sem skilaði sigrinum.
Ég var smá stressuð í aðdraganda
vítaspyrnunnar og það féllu nokk-
ur tár þegar ég sá boltann inni og
enn fleiri þegar dómarinn flautaði
leikinn af,“ sagði Sigríður Lára.
„Þetta er fyrsti stóri titill minn í
meistaraflokki. Þetta hefur ofboðs-
lega mikla þýðingu fyrir mig. Ég
get eiginlega ekki lýst tilfinning-
unni á annan hátt en að þetta er
algerlega geggjað. Nú hungrar
mig bara í fleiri titla,“ sagði Sigríð-
ur Lára hrærð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bikarmeistarar Sigríður Lára Garðarsdóttir og fyrirliðinn Sóley Guðmundsdóttir handleika verðlaunagripinn sem ÍBV tryggði sér um helgina með sigri á
Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Eyjakonur fögnuðu vel og innilega enda allar að fagna sínum fyrsta stóra titli í meistaraflokki á Íslandi.
Bikararnir eru ÍBV
Rúmlega 4.000 manna bæjarfélag með tvöfalda ástæðu til að gleðjast í ár
Sigurmark úr víti í framlengingunni Annar bikartitill kvennaliðs ÍBV
0:1 Cloé Lacasse 4. komstinn í slaka sendingu
Kristrúnar á Fay, lék á Fay og
skoraði.
1:1 Agla María Albertsdóttir41. af stuttu færi eftir góð-
an undirbúning Hörpu.
2:1 Harpa Þorsteinsdóttir 43.fékk stungusendingu frá
Guðmundu, hélt varnarmanni frá
sér og skoraði.
2:2 Kristín Erna Sigur-lásdóttir 89. af stuttu
færi eftir góðan undirbúning
Lacasse.
2:3 Sigríður Lára Garð-arsdóttir 112. af öryggi
úr vítaspyrnu eftir að dómari taldi
brotið á Lacasse.
I Gul spjöld:White (Stjörnunni) 51.
(brot), Harpa (Stjörnunni) 62. (töf),
Agla María (Stjörnunni) 99. (töf),
Kristrún (Stjörnunni) 100. (brot).
I Rauð spjöld: Engin.
Laugardalsvöllur, Borgunar-bikar
kvenna, úrslitaleikur, laugardaginn 9.
september 2017.
Skilyrði: Milt veður, skýjað og lítils
háttar rigning með köflum. Völlurinn
rakur, fagurgrænn og sléttur.
Skot: Stjarnan 17 (12) – ÍBV 15 (10).
Horn: Stjarnan 6 – ÍBV 4.
Stjarnan: (4-3-3) Mark: Gemma Fay.
Vörn: Lorina White, Anna María
Baldursdóttir, Kim Dolstra (Viktoría
V. Guðrúnardóttir 116), Kristrún
Kristjánsdóttir (Bryndís Björnsdóttir
104). Miðja: Ana V. Cate (Donna-Key
Henry 73), Lára Kristín Pedersen,
Katrín Ásbjörnsdóttir. Sókn: Agla
María Albertsdóttir, Harpa Þor-
steinsdóttir, Guðmunda Brynja Óla-
dóttir.
ÍBV: (3-5-2) Mark: Adelaide Gay.
Vörn: Sesselja Líf Valgeirsdóttir
(Clara Sigurðardóttir 78), Caroline
Van Slambrouck, Ingibjörg Lúcía
Ragnarsdóttir. Miðja: Adrienne Jor-
dan, Katie Kraeutner (Díana Helga
Guðjónsdóttir 115), Sigríður Lára
Garðarsdóttir, Rut Kristjánsdóttir,
Sóley Guðmundsdóttir. Sókn: Kristín
Erna Sigurlásdóttir (Júlíana Sveins-
dóttir 97), Cloé Lacasse.
Dómari: Bríet Bragadóttir.
Áhorfendur: 1.015.
Stjarnan – ÍBV 2:3