Feykir - 27.03.2014, Blaðsíða 6
6 Feykir 12/2014
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
1. deild karla í körfubolta : Tindastóll - Höttur 97-77
Meistarapartý í Síkinu
Tindastóll tók á móti liði
Hattar frá Egilsstöðum í
Síkinu á föstudaginn fyrir
rúmri viku, í síðustu
umferðinni í 1. deild karla í
körfubolta. Fyrir leikinn var
ljóst að Tindastóll var
deildarmeistari og sýndu
Stólarnir á köflum flottan
körfubolta og unnu að lokum
öruggan sigur á ágætu liði
Hattar. Lokatölur 97-77.
Það var gaman að sjá til
Stólanna þetta kvöld en liðið
spilaði flotta vörn á löngum
köflum og stálu til að mynda 17
boltum. Þá var sannkölluð
skotveisla í gangi og mikið dritað
fyrir utan 3ja stiga línu, meira að
segja Helgi Rafn komst á blað á
þeim slóðum. Helgi var stiga-
hæstur Tindastólsmanna með 23
stig og 16 fráköst en Ingvi Rafn
var með 19 stig og þá áttu Flake
Helgi Rafn Viggósson lyftir bikarnum á loft í Síkinu en Tindastóll sigraði 1. deildina af öryggi.
Íþróttagreinar -Karfa, fótbolti
og golf.
Íþróttafélög: -Tindastóll og
GSS.
Helstu íþróttaafrek: -Vera
valinn í U16 í körfunni.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar ég var nýbúin að
missa framan af puttanum
mínum fyrir tveimur árum
þá kom fyrirliði Tindastóls,
hann Helgi Rafn, með gamla
Tindastólstreyju sem allir í
meistaraflokk karla leikmenn
og þjálfarar voru búnir að
skrifa nöfnin sín á og svo
stóð með stórum stöfum
„með batakveðju“. Þarna
fann ég hlýju og umhyggju
frá körfuknattleiksdeildinni.
Ég þarf reyndar að nefna
það líka að þegar ég var úti
í Bandaríkjunum í körfu-
boltabúðum þá var ég
valinn á lokahófinu „Most
Outstanding Camper“ en
tilfinningin var góð þegar mér
voru veitt verðlaunin.
Neyðarlegasta atvikið: -Þegar
ég var að keppa á mínu fyrsta
fjölliðamóti hérna heima.
Þegar ég var búin að klæða
mig í búning þá labbaði ég
inn í sal og byrjaði að drippla
bolta. Stuttu seinna kom
liðsfélagi minn til mín og
spurði af hverju ég væri ekki í
stuttbuxum. Ég hélt öðru fram
þangað til hann lyfti treyjunni
minni upp og þá sást ekkert
nema brókin mín. Þá skaust ég
inn í klefa og er þakklátur fyrir
það að engin sá þetta nema
liðsfélagar mínir, en þeir tala
um þetta öðru hverju.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Alltaf að borða pasta á leikdag
og signa mig rétt fyrir leik.
Uppáhalds leikmaður? -John
Wall, Goran Dragic og
Ronaldinho.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og
í hvaða grein mynduð þið
spreyta ykkur? -Frigga Pálma
móðurbróður í körfubolta, því
hann kann „lay-up“.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
Signi mig alltaf
fyrir leik
Pálmi Þórsson er 16 ára strákur frá Sauðárkróki.
Hann er sonur Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra
Svf. Skagafjarðar og Þórs Jónssonar. Pálmi er
efnilegur körfuboltamaður sem var á dögunum
valinn í U-16 landslið drengja sem mun taka þátt í
Norðurlandamóti yngri landsliða í Solna í Svíþjóð
28. maí – 1. júní.
Pálmi Þórsson / körfubolti
( ÍÞRÓTTAGARPUR ) berglind@feykir.is
rimmu? -Við mundum örugg-
lega sættast á jafntefli eftir
nokkur „lay-up“.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Sigraðist á ótta mínum
og byrjaði að klappa hundum
fyrir nokkrum árum.
Lífsmottó: -„If an opportunity
doesn't knock, build a door“.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Fjöl-
skylda mín vegna þess að þetta
eru eintómir snillingar, allir
sem einn, og hægt er að líta
upp til þeirra allra. Svo þyrfti
ég að segja Michael Jordan því
hann hefur afrekað allt sem
hægt er að afreka í körfunni
og Eyjólfur Sverrisson vegna
þess að hann er bara góð
fyrirmynd.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? [svarað 15. mars]
-Við í tíunda bekk erum
nú að sýna leikritið Dýrin
í Hálsaskógi. Svo erum við
fótboltanum að safna fyrir
Spánarferð, síðan er bullandi
undirbúningur fyrir NM í vor.
Hvað er framundan? -Ferðir
til Danmerkur, Spánar og
Svíþjóðar núna í vor og lands-
liðsæfingar.
Hvað er eftirminnilegast
frá fermingardeginum? -Ég
mundi segja gjafirnar og að
vera miðpuntur dagsins.
Pálmi lætur vaða. Mynd: Davíð Már
Knattspyrnudeild Tindastóls
Fjórir
leikmenn
skrifa undir
Fjórir leikmenn meistara-
flokks karla í knattspyrnu
skrifuðu á föstudaginn undir
samning við Tindastól.
Þetta eru þeir félagarnir
Fannar Örn Kolbeinsson,
Hólmar Skúlason, Guðni
Einarsson og Konráð Freyr
Sigurðsson, en eins og fjallað
var um í Feyki í ársbyrjun ákvað
félagið, eftir talsverðar vanga-
veltur vegna mikils kostnaðar,
að halda áfram keppni í fyrstu
deild í knattspyrnu. Sagt er frá
þessu á vef Tindastóls. /BÞ
Landsmót UMFÍ 50+
Æfingar
hafnar á
vegum Smára
Ungmenna – og
íþróttafélagið Smári gengst
fyrir frjálsíþróttaæfingum fyrir
50 ára og eldri í íþrótta-
húsinu í Varmahlíð á
mánudögum kl. 18:00-19:30.
Félagið hefur hvatt alla sem
hafa gaman af hlaupum,
stökkum og köstum til að mæta,
hvort heldur þeir hyggjast
keppa á landsmóti UMFÍ eða
ekki. Umsjón með æfingunum
hefur Karl Lúðvíksson íþrótta-
kennari. Landsmótið verður
haldið á Húsavík dagana 20.-22.
júní í sumar. /KSE
Skagfirska mótaröðin
Jesse hreppti
fyrsta sætið
Þriðja mót Skagfirsku
mótaraðarinnar fór fram á
miðvikudagskvöldið í síðustu
viku í Reiðhöllinni
Svaðastöðum.
Jesse Huijbers og Arndís
Brynjólfsdóttir voru með sömu
einkunn í 1. flokki fullorðinna
en eftir sætaröðun dómara
hafði Jesse betur og hlaut 1.
sætið. Ingimar Jónsson sigraði í
2. flokki fullorðinna og Laufey
Rún Sveinsdóttir í ungmenna-
flokki.
Ásdís Ósk Elvarsdóttir
hreppti 1. sætið í unglingaflokki
og Anna Sif Mainka Sveins-
dóttir sigraði í barnaflokki.
Úrslitin má finna á Feykir.is/
hestar /BÞ
og Proctor fínan leik. Þá má geta
þess að hjá gestunum var Hreinsi
Birgis atkvæðamestur með 18
stig og 12 fráköst.
Frábær stemning var á
leiknum, stórfín mæting í Síkið,
og umgjörð leiksins glæsileg,
„ljósasjó“ og klappstýrur og að
sjálfsögðu var rykið dustað af
Króksa. Að leik loknum afhenti
Guðbjörg Norðfjörð, fulltrúi
KKÍ, Tindastólsmönnum sigur-
launin fyrir sigur í 1. deild með
aðstoð Varmhlíðingsins Rúnars
Gíslasonar. Dóri dómari taldi í
32 Stóla við góðar undirtektir
leikmanna og áhorfenda og alla
er farið að hlakka til að taka
slaginn í Dominos-deildinni í
haust. /ÓAB
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 23, Ingvi
Rafn 19, Proctor 16, Flake 15, Helgi
Margeirs 10, Pétur Birgis 9, Finnbogi 3
og Friðrik Stefáns 2.