Feykir - 27.03.2014, Síða 12
12 Feykir 12/2014
Vildu leggja lóð sín á vogar-
skálar íslensks iðnaðar
Á Hólabaki í Húnavatnshreppi er starfrækt textílfyrirtæki sem framleiðir
púðaver undir vörumerkinu Lagður. Verin eru saumuð úr séráprentuðu
bómullarefni með ljósmyndum úr náttúru Íslands. Feykir ræddi við
hjónin Elínu Aradóttur og Ingvar Björnsson sem búa og starfa á Hólabaki
ásamt börnum sínum þremur, 70 nautgripum, fimm hænum, einum
óþurftar hana og hinum ódæla en þó geðþekka fjárhundi Heru.
Lagður – Gjafavara úr nágrenninu
en pakkað á Íslandi. Hún segir
að fljótlega hafi komið í ljós að
markaður fyrir vörurnar var
fyrir hendi og því var ákveðið
að auka umsvif og færa alla
þætti framleiðslunnar til Íslands
og þannig ná bestu mögulegu
gæðum og yfirsýn. „Okkur
hugnaðist einnig betur að geta
lagt okkar lóð á vogarskálar
íslensk iðnaðar, auk þess sem
íslenskir neytendur og ekki
síður erlendir ferðamenn
sækjast í vaxandi mæli eftir
vörum með íslenskan upp-
runa,“ útskýrir hún en í dag
flytja þau inn öll aðföng fyrir
framleiðsluna, svo sem efni,
rennilása og þess háttar. Allur
saumaskapur er í höndum
þriggja úrvals saumastofa;
Saumastofunnar Þings í Húna-
vatnshreppi, Saumastofunnar
Írisar á Skagaströnd og Sauma-
stofunnar Unu á Akureyri.
Allar umbúðir segir Elín jafn-
Elín og Ingvar fluttu ásamt
börnum sínum að Hólabaki
sumarið 2013 og tóku þar við
kúabúskap í samstarfi við
foreldra Ingvars, þau Aðalheiði
Ingvarsdóttur og Björn Magn-
ússon. Ingvar er búfræði-
kandidat frá Hvanneyri með
framhaldsnám í jarðrækt og
plöntukynbótum. Elín, sem er
Þingeyingur, er uppalin á Hrís-
um í Reykjadal, er rekstrar-
fræðingur og kennari að
mennt, með framhaldsnám í
skipulags- og þróunarfræði.
Áður höfðu Elín og Ingvar búið
í ríflega áratug á Akureyri þar
sem Ingvar starfaði sem ráðu-
nautur en Elín sem atvinnu-
ráðgjafi.
Elín segir að textílfram-
leiðslan hafi byrjað sem „gælu-
verkefni“ sem var unnið með-
fram fæðingarorlofi hennar.
Fyrsta tilraunaframleiðsla var
sett á markað í júlí 2011 og voru
þær vörur framleiddar erlendis
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Rekstur á Þingeyrarsandi í Austur-Húnavatnssýslu.
framt vera íslenska framleiðslu.
„Í lok árs 2012 þurftum við að
taka ákvörðun um framtíð
starfseminnar. Vörusala gekk
vel og ljóst var að „litla gælu-
verkefninu“ yrði ekki lengur
annað „við borðstofuborðið“,
meðfram annarri vinnu,“ segir
hún en þessi staða átti sinn þátt
í því að þau ákváðu að söðla
um, segja upp störfum sínum,
flytjast búferlum og efla starf-
semina meðfram búskap og
barnauppeldi á Hólabaki.
Nýjungar í vörulínu
væntanlegar
Vörumerkið Lagður segir Elín
vera tilkomið frá hrútinum
Lagði, sem nú er fallinn, en
hann var í eigu foreldra Elínar.
„Hann var mikill kostagripur
sem endaði ævidaga sína á
sæðingastöðinni á Hesti í
Borgarfirði.“ Mynd af Lagði var
notuð sem grunnur af vöru-
merki (lógói) fyrirtækisins en
að sögn Elínar hefur púðaver
með mynd af Lagði frá upphafi
verið söluhæsta gerðin hjá
fyrirtækinu. Ver með myndum
af íslenska hestinum, lundum
og rjúpum hafa einnig verið
mjög vinsæl. „Í dag seljum við
tíu gerðir af púðaverum. Okkar
markhópar eru annars vegar
erlendir ferðamenn og hins
vegar Íslendingar sem vilja
prýða heimili sitt með óvenju-
legri hönnun, eða eru á hött-
unum eftir íslenskri gjafavöru.“
Viðtökurnar segir Elín hafa
verið mjög góðar. „Við hyggj-
umst efla starfsemina á næstu
misserum. Við ætlum að bæta
við nýjungum í núverandi
vörulínu og eru t.d. tvær nýjar
gerðir væntanlegar með vorinu,
það mun vera lóa og selkópur.“
Verin eru svo seld án fyllingar,
í vönduðum gjafaumbúðum
með texta á íslensku og ensku
um viðkomandi myndefni.
Verin eru að langstærstum
hluta seld í heildsölu en félagið
á í dag í viðskiptum við vel á
fjórða tug ferðamanna- og
gjafavöruverslana víða um land.
Þar má nefna Blóma- og
gjafabúðina á Sauðárkróki en
einnig eru nokkrar gerðir púða-
vera til sölu hjá Hótel Varma-
hlíð. Fyrir Húnvetninga er
nærtækast að kaupa beint af
Elínu og Ingvari á Hólabaki og
benda þau á heimasíðu sína
www.lagdur.is. Selasetur Íslands
á Hvammstanga mun einnig
hafa púðaverin til sölu í sumar.
Framtíðin hjá Lagði
Elín segist sjá margvíslega
möguleika í framleiðslu á
annarri textílvöru og eru ýmis
sérverkefni áhugaverð, svo sem
framleiðsla sérsmíðaðra minja-
gripa með einstökum ferða-
þjónustuaðilum. Þau segjast
hafa unnið eitt slíkt verkefni og
hafa orðið vör við áhuga frá
fleirum. „Við erum líka farin að
þefa aðeins af útflutningi og
fyrirtækið er þegar í viðskiptum
við eina verslun í Færeyjum og
eina í Svíþjóð. Sjá má fyrir sér
að auðvelt væri að útfæra
núverandi vörur fyrirtækisins
fyrir ferðamannamarkað á
Norðurlöndunum og jafnvel
víðar,“ segir hún.
Hjónin þurftu að ráðast í
framkvæmdir á bænum til að
koma hinu vaxandi fyrirtæki
vel fyrir. „Við erum í samstarfi
við ýmsa snilldariðnaðarmenn
og nágranna, að koma fyrir-
tækinu fyrir í nýrri aðstöðu hér
heima á Hólabaki. Um er að
ræða lager- og pökkunarrými,
en þar sem aðstaðan verður
rúmgóð verður einnig mögu-
leiki á að taka á móti gestum
sem vilja kynna sér framleiðsl-
una. Þar verður einnig hægt að
halda lagersölu, t.d. á aðventu
eða að sumri til.“ Þau stefna að
því að frá og með 1. júní næst-
komandi geti þau tekið á móti
hópum. „Það er því ekki spurn-
ing að saumaklúbbar og skipu-
leggjendur óvissuferða á Norð-
urlandi vestra ættu að geta bætt
okkur inn í dagskránna fljót-
lega,“ segir Elín að endingu.
Ingvar og Elín frá Hólabaki.
Hrúturinn Lagður.