Feykir


Feykir - 27.03.2014, Qupperneq 15

Feykir - 27.03.2014, Qupperneq 15
12/2014 Feykir 15 Gæludýrin eru vinsælt myndefni á fermingarterturnar. vinnustofunni gefur m.a. að líta snyrtiveski, pennaveski, síma- hulstur, tækifæriskort, prjón- aðar húfur, nælur og hárskraut. Úrvalið er fjölbreytt og vörurnar njóta sín vel í hinni nýju og huggulegu vinnuað- stöðu. Í dag fást vörur Sigrúnar í Gestastofu sútarans á Sauðár- króki og þær sem unnar eru úr geitaafurðum fást einnig á Geitfjársetri Íslands að Háafelli í Borgarfirði. Sigrún segist einfaldlega ekki hafa átt neinn lager til að setja vörur sínar í sölu í Reykjavík þó hún hafi fengið fyrirspurnir um það. Auk sölu á áðurnefndum stöðum selur hún í gegnum vefsíðu sína og fésbókarsíðu. Það er líka þó nokkuð um sérpantanir, þar sem hannað er eftir óskum viðskiptavinarins. „Ég gerði til dæmis gestabók fyrir jólin þar sem viðskipta- vinur sendi mér teikningu og bað mig um að „gera eitthvað svona.“ Ég útfæri þá eftir óskum viðkomandi og geri kannski tillögur á móti, ég geri ekki eitthvað fyrir fólk ef að mér finnst það ekki passa, þá breyti ég frekar í samráði við þann sem pantar.“ Sigrún leggur áherslu á að hver hlutur sé sérstakur og segir að sér finnist ekki gaman að gera eitthvað tvennt sem er eins. „Það er sjaldgæft að ég geri margt sem er eins, það þarf alltaf að vera einhver áskorun í gangi, ég myndi seint senda einhverja hönnun til Kína til að láta fjöldaframleiða, það er ekki það sem ég sækist eftir.“ Sigrún segist ekki hafa góða yfirsýn yfir hverjir séu hennar helstu viðskiptavinir þar sem salan fer að miklu leyti fram gegnum Gestastofuna og nauðsynlegt að vera með mik- inn tækjabúnað. Hennar aðal- vinnutæki er gömul iðnaðar- saumavél, en hún segist örugglega eiga eftir að bæta við saumavélum og áhöldum þegar fram líða stundir. „Maður getur gert alveg helling án þess að vera með dýr og mikil tæki.“ Sigrún segir að líklega sé erfitt að lifa af handverkinu einu og sér og sjá fyrir stórri fjölskyldu en hún hefur þó trú á því sem tækifæri til atvinnusköpunar. „Ég væri ekki búin að stofna til fjár-festinga í þessu ef ég hefði ekki trú á því að þetta væri eitthvað sem gæti gefið mér tekjur.“ Sigrún segist hafa orðið vör við áhuga fólks á að koma og skoða vörurnar. „Sveitungarnir voru líka að skamma mig fyrir að vera ekki með auglýsingaskilti upp við veg, að ég væri ekki sýnileg, en mér fannst ég bara ekki geta verið sýnileg með það að taka á móti fólki þegar rýmið rúmaði ekki nema tvo gesti. Mig langar líka að tengja þetta við bú-skapinn, þarna úti er hráefnið á hlaupum. Það lagði ég upp með þegar ég sótti um styrkinn og ætla að halda mig við það, enda finnst mér það spennandi.“ Sigrún hefur ekki enn prófað hráefni af öllum dýrunum á bænum, hún á þó fjaðrir og fleira á lager en vantar tíma til að prófa sig áfram með það. Lambaskinnin nýtir hún vel, m.a. í ungbarnaskó og hefur áhuga á að læra að verka þau sjálf, en til þess gefst einfaldlega ekki tími og hún lætur því súta þau hjá Loðskinni á Sauðár- króki. Talið berst að ferðaþjónustu á svæðinu og Sigrún bendir á að það sé mikil umferð um sveitina og þar sé mikil og fjölbreytt ferðaþjónusta á tiltölulega litlu svæði. Skammt frá Stórhóli eru til að mynda fyrirtæki í rafting, hestaferðum og gistingu, auk sundlaugar og annarrar þjónustu sem er í Steinsstaða- Geitfjársetrið. Hún telur þó að Íslendingar séu stór hluti af sínum kúnnahóp. Hún er aðili að Beint frá býli og selur vörur sínar undir gæðamerki þeirra. „Ég ætla mér að stíga það skref lengra, ég er bara með eggin inni í þessu núna en ætla mér að selja eitthvað fleira matar- kyns frá búinu.“ Persónulegar fermingartertur Ýmislegt af því sem Sigrún fæst við tengist fermingum og öðrum tímamótum. Hún skreytir nokkra tugi af tertum á ári hverju og málar þá á marsípan með matarlit. „Ég nota ekki þakmálningu, þó ég segi það stundum þegar fólk spyr,“ segir hún og hlær. Terturnar eru skreyttar á persónulegan hátt og algengt er að myndin sé af fermingar- barninu og áhugamálum þess. „Það er mjög algengt að það séu myndir af fermingarbarninu á hestbaki, eða að knúsa hund- inn eða uppáhaldskindina, eða kannski á hjóli.“ Sigrún gerir einnig gestabækur fyrir ferm- ingar, en þær á hún yfirleitt ekki á lager þar sem oftast eru séróskir um litaþema og slíkt. Hún notar mikið roð og skinn í bækurnar og skrautskrifar einnig í þær. Þá tekur hún að sér að skreyta kerti með vax- blómum og skrautskrift. Sigrún hafði lengi leitað leiða til að koma sér upp aðstöðu til að taka á móti fólki, einskonar opinni vinnustofu. Henni var bent á Framleiðnisjóð landbúnaðarins og þaðan fékk hún styrk í verkefnið. „Þannig að þau hafa alla vega trú á þessu,“ bætir hún við. Vinnu- stofan er byggð úr stórum gámum. Smíðað var utan um gámana til að laga ytra útlit þeirra og rýmið síðan klætt að innan með parketi sem gefur vinnustofunni mjög notalegt yfirbragð. Sigrún segir ekki hverfinu. „Ég er sannfærð um að við eigum eftir að vinna saman þessir staðir og einnig þarf maður að koma sér á kortið varðandi ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra í heild,“ segir Sigrún en hún hyggst kynna sér félagsskap ferðaþjóna á svæðinu. Tímaleysið er helsti þröskuldurinn Sem nærri má geta er oft líf og fjör á barnmörgu heimili og segir Sigrún börnin alin upp með handverkið allt í kringum sig. „Þetta hefur verið fyrir nefinu á þeim síðan þau voru smábörn og það hefur varla komið fyrir að þau hafi skemmt eitthvað þó þetta dót mitt hafi verið úti um allt. Þau hafa öll í sér einhverja löngun á einhverju sviði og eru alveg lipur í puttunum þegar þeim dettur það í hug. Síðast í gær var sú litla að leika sér með roðdýr á gólfinu og áður en ég vissi af var hún búin að líma stóra belju og tófu á gólfið með vænni slummu af lími og var að skreyta gólfið,“ segir hún bros- andi Sigrún segir að þegar hún sé ekki að gera eitthvað í hönd- unum megi trúlega finna hana við þvottavélar heimilisins, enda gefist ekki mikill tími í annað en handverk og heimilis- og bústörf. Við endum viðtalið á að líta á geiturnar og geithafrana sem búa í sitt hvoru útihúsinu. Yngsta heimasætan slæst í för og knúsar kiðlingana í bak og fyrir. Geiturnar eru í miklu uppáhaldi hjá heimilisfólki, enn Sverrir, elsti sonurinn á flestar þeirra. Ennþá hefur engri geit verið lógað á bænum, en nokkur afföll hafa þó orðið og m.a. týndust tveir kiðlingar í fyrra og fannst ekki tangur né tetur af þeim. Sem leiddi til þess að Sigrún fór að mjólka þær og fikta við að gera osta. Eftir heimsókn í vinnustofuna og útihúsin er ekki erfitt að ímynda sér að það sé í nógu að snúast á bænum, enda hefur Sigrún orð á því áður en haldið er úr hlaði „að stundum væri gott að geta klónað sig.“ - - - - - Stórhóll er við þjóðveg 752 í fyrrum Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Heimasíða Rúnalistar er runalist.is og Rúnalist er einnig á Facebook. Tvær gestabækur sem Sigrún hefur búið til. Fermingarterturnar eru hannaðar með áhugamál barnanna í huga. Myndir eru vinsæl söluvara hjá Rúnalist. Þessi er úr roði, endurunnum pappír og rúlluplasti.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.