Feykir - 27.03.2014, Side 17
12/2014 Feykir 17
Dögunarrækja
í veisluna
Dögun ehf. rækjuvinnsla Hesteyri 1 550 Sauðárkrókur & 453 5923
Gæði – Ferskleiki – Hollusta
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Anna Pála
NAFN: Anna Pála Gísladóttir.
ÁRGANGUR: 1972.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég bý með sandkassaástinni minni
honum Eyjólfi og á með honum fjóra stráka, Hólmar Örn,
Trausta Má, Sverri Rafn og Kára Rafnar (og Húna hund).
Trausti Már og Kári Rafnar búa hjá okkur en Hólmar er
búsettur í Þýskalandi og litli Sverrir okkar er fallegasti
engillinn á himni.
BÚSETA: Ég bý í Kópavoginum, það er gott.
HVERRA MANNA ERTU: Ég er dóttir Díu (Dýllari) og Gísla
(Berbellingur). Ég er fædd í Vestmannaeyjum en flutti 10
ára til Sauðárkróks.
STARF: Grunnskólakennari í Lindaskóla.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Klára foreldraviðtöl og þemaviku
í vinnunni. Svo er planið að liggja í leti og faðma
fjölskylduna.
vitnisburðarblöðum
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Ég man ekkert sér-
staklega mikið eftir þessum degi þar
sem ég var sárlasin. Ég man samt
að þegar búið var að dæla í mig
verkjalyfjum bað Minna Bang Birgittu,
sem var á eftir mér í röðinni, að halda
í mig svo ég færi ekki að svífa. Það
muna aftur á móti allt of margir eftir
fermingarfötunum mínum…
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Ég ætlaði fyrst
að vera búðakona, svo var það
hárgreiðslukona, lögfræðingur og að
lokum heillaði kennslan mig.
Hvað hræðistu mest? Úff! Ég er
voðaleg skræfa og hræðist mjög,
mjög margt en að sjálfsögðu hræðist
ég mest að missa þá sem ég elska.
Besti ilmurinn? Útilykt af nýþvegnum
rúmfötum og ungbarnalykt.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Ég var búin að
keyra svolítið áður en ég fékk prófið
þannig að þetta rennur allt saman…
ég efast ekki um að Madonna hafi
verið spiluð og Whitney Houston.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Líklega einhverja lagleysu
þar sem ég væri ekki með sjálfri mér
ef ég tæki þátt í slíku.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Ég
missti helst ekki af Broen. Landinn er
líka mjög skemmtilegur þáttur.
Besta bíómyndin? Grease kemur
fyrst upp í hugann, trúlega vegna
þess að það er fyrsta myndin sem
ég man eftir að hafa séð í bíó og hef
horft oftast á hana af öllum myndum
(Anna Pála 19 tonn!).
Hvaða íþróttamanni hefurðu mest-
ar mætur á? Er það nú spurning!
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Ég fæ mjög litla
samkeppni í heimilisstörfunum. Ég er
þó best af öllum í að finna „týnda“
hluti.
Hættulegasta helgarnammið? Ég
borða súkkulaðirúsínur eins og aðrir
borða poppkorn.
Hvernig er eggið best? Eggjakaka
klikkar aldrei.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Ógurleg málgleði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Innihaldslaust
smjaður og óheiðarleiki almennt.
Óstundvísi er líka óþolandi.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitn-
un? Þeim var ég verst er ég unni
mest.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Ég á ýmsar slitróttar minningar
frá því að ég var býsna ung en ein af
þeim sem snertu mig mest var þegar
Áslaug frænka mín flutti til Eyja og
ég var að springa úr spenningi en
svo vildi hún ekki tala við mig til
að byrja með… En síðan erum við
líklega búnar að bæta það upp og
gott betur.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? Mér finnst Línan alltaf
frábær.
Hvaða fræga manneskja mundir þú
helst vilja vera? Ég myndi ekki fyrir
nokkurn mun vilja vera fræg. Ég væri
samt til í að vera í saumaklúbbi með
Ellen DeGeneres, hláturinn lengir
lífið.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Ég les mjög mikið
og er þeim eiginleikum gædd að um
leið og ég hef lokið lestri get ég byrjað
upp á nýtt þar sem ég man nánast
ekkert. En fyrsta bókin sem dettur í
hug er Bókaþjófurinn líklega af því að
ég er nýbúin að vola yfir bíómyndinni.
Ég bíð líka alltaf spennt þegar ég veit
að Vilborg Davíðsdóttir er að fara að
senda frá sér bók.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Eins og ég segi…
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Það
er ekkert grín að velja eina í öllum
heiminum en fyrir Krókinn var það
án efa amma Dýlla, án hennar væru
engir Dýllarar.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Víða er þvottur brotinn.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
beint að hitta frumburðinn sem ég
sakna ógurlega. Ef ég gæti komið við
í himnaríki færi ég líka þangað.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Prjónadót, Iphone og
klósettpappír.
Hvernig nemandi varstu? Ég
var ágætis nemandi, gat verið
uppátækjasöm og eitthvað var
nú minnst á mas á öllum mínum