Feykir - 15.05.2014, Qupperneq 6
6 Feykir 18/2014
Lárus með Gamla pósthúsið í baksýn.
sagt annað en já við mig. Nú
síðast sögðust þeir hafa trú á því
sem ég er að gera og þess vegna
vildu þeir lána mér. Ég var mjög
ánægður með það,“ segir Lárus.
Á hótelinu er boðið upp á
morgunverð með gistingunni
og mun dóttir Lárusar, Kristín
Ingibjörg, alfarið sjá um
veitingahluta rekstursins. „Hún
mun sjá alveg um eldhúsið og
verður það rekið sér, aðskilið frá
rekstri hótelsins. Öll gisting sem
seld er inn á hótelið er seld með
morgunmat. Síðan get ég
hugsanlega selt morgunverð á
hina staðina líka en það hefur
ekki verið gert hingað til,“ segir
Lárus. Auk þess að sjá um
morgunverðinn tekur Kristín
við hópum, en nú þegar hefur
hún tekið á móti 30 konum frá
Lionsklúbbi Skagafjarðar í
kvöldverð og um 100 konum
sem voru á leið frá Reykjavík til
Akureyrar og vildu fá sér
hádegishressingu á leiðinni.
„Þetta gekk allt mjög vel. En við
eigum eftir að útfæra þetta
aðeins nánar, ég er ekki vanur
hótelhaldari,“ segir hann í
gamansömum tón.
Eftirspurn aukist
talsvert í
gegnum árin
Lárus segist ekki ætla að fara í
miklar framkvæmdir á hótelinu
að svo stöddu. Hann segist
aðallega þurfa að fara yfir
húsbúnað, umbúnað á rúm-
unum og þess háttar. Utandyra
þurfi aðeins að laga til, mála og
fara yfir ýmsar skellur.
„Framtíðarmarkmiðið er að
gera sólpall hér fyrir utan og
hugsanlega gera þannig svæði
sem fólk getur horft á sólina
setjast hér við hafflötin. Ef
maður horfir lengra fram í
tímann myndi ég vilja skoða
hvort hugsanlega sé hægt að
gera hér þrjú til fjögur
herbergi fyrir hreyfihamlað
fólk sem, eins og staðan er í
dag, kemst ekki hér inn á efri
„Ég er að kaupa þetta til að
bæta þessu við sumarhúsa-
leiguna, en ég tel það vera
heppilega samsetningu. Þá er
ég komin með gistinguna í
sumarhúsunum, Gamla póst-
húsinu sem er ódýrari gisting,
sérstaklega í kjallaranum og
hentar þeim sem eru með
svefnpoka, en svo er aðeins
dýrari gisting og uppábúið á
efri hæðunum. Hótelið hafði ég
svo hugsað sem dýrari gistingu.
Svo er ég með þessar fjórar
íbúðir sem ég er að vinna í
núna en þar get ég tekið við
fjórum til fimm í hverja íbúð,
alls um 20 manns,“ útskýrir
Lárus. Í íbúðunum sem eru við
Húnabraut, við hliðina á
Samkaupum, verður eldunar-
aðstaða og hafa þær einnig
þann kost að þær eru skammt
frá sundlauginni. „Það er mikill
kostur að geta skautað svolítið
Býður upp á um 200
gistirými á Blönduósi
hæðina. Svo ef maður horfir
enn lengra fram í tímann þá er
lóð hér í átt að sjónum, sem við
köllum hér vestan við, þar væri
hægt að byggja hús fyrir
gistingu. Þá gætum við
hugsanlega tekið á móti
rútum.“
Eins og fram hefur komið er
í mörg horn að líta hjá Lárusi.
Meðfram því að dytta að
hótelinu hefur hann verið að
koma Gamla pósthúsinu í gott
stand. „Þar þurfti að mála að
innan og snyrta ýmislegt.
Skipta um rúm og hugsanlega
að setja upp eldunaraðstöðu. Ég
er líka að vinna í því að auka við
gistirýmið í Glaðheimum,
þ.e.a.s. að setja stiga upp á loftin
í nokkrum bústöðum. Þá get ég
bætt við gistingu fyrir 12-14
manns. Svo er ég náttúrulega að
gera þessar þrjár íbúðir en ég
var kominn með eina fyrir.
Tíminn verður svo bara að
leiða í ljós hvað verður, en nú er
ferðatíminn að byrja og verður
kominn á fullt eftir svona
mánuð. Svo verður maður að
horfa í budduna líka og reyna
að taka þetta sem mest útúr
rekstrinum sem slíkum en ekki
að taka mikið af lánum.“
Lárus hefur átt gott samstarf
við verkalýðsfélög sem hafa
verið með fasta tólf vikna
sumarhúsaleigu. Hann hefur
fleiri fasta viðskiptavini, en
hann segir marga heimsækja
Glaðheima ár eftir ár. „Ég fæ
líka mikið af Íslendingum. Við
erum mitt á milli Akureyrar og
Reykjavíkur og fólk sér
gistinguna af veginum. Það er
kannski að fara langar leiðir,
jafnvel frá Austurlandi á
Vestfirði eða öfugt. Einnig
biður fólk um gistingu ef það er
ófært og var nokkuð um það í
vetur. Þá hefur eftirspurn
erlendra ferðamanna jafnframt
aukist og segir hann eftirspurn
eftir gistiplássi almennt hafa
aukist í gegnum árin. „Eins og
staðan er í dag þá er fullbókað í
Glaðheimum frá miðjum júní
alveg fram í lok september. Það
er eitthvað smá til laust í miðri
viku. Þegar ég byrjaði í þessum
bransa árið 2008 var vertíðin í
raun búin upp úr verslunar-
mannahelgi, eftir það var bara
ekkert að gerast. En á síðasta ári
var nóg að gera framundir jól.
Það er heilmikið að breytast,“
segir Lárus að endingu en það
telur hann góðri markaðs-
setningu og auknum fjölda
erlendra ferðamanna að þakka.
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
til ef það er upppantað hjá mér
á einum stað að geta hliðrað
fólki til. Þetta er mjög þægileg
heild,“ segir hann en í heildina
eru þetta um 200 gistirými sem
hann býður nú uppá á
Blönduósi.
Lárus tók við rekstri Hótel
Blönduóss og Gamla póst-
hússins sem hann keypti af
Ólafi Ívani Wernerssyni, þann
1. apríl sl., en hann hafði einnig
keypt Glaðheima af Ólafi á
sínum tíma. „Þetta gerðist
mjög snöggt, hann í rauninni
henti hótelinu í mig,“ segir
hann og hlær. „Hann sagði
mér að taka við þessu áður en
ég var búinn að fjármagna
þetta alveg. En ég var svo
heppinn, ég setti inn umsókn
um fjármögnun og allt gekk
upp.“ Það var Byggðastofnun
sem fjármagnaði kaupin og
talar Lárus um hve ánægður
hann sé með stofnunina sem
hefur reynst honum einstak-
lega vel. „Þeir hafa komið að
fleiri málum hjá mér og aldrei
Lárus B. Jónsson hefur rekið sumarhúsaleiguna Glaðheima á bökkum Blöndu á Blönduósi frá árinu
2008. Nú hefur hann tekið við rekstri Hótel Blönduóss og gistiheimilisins í Gamla pósthúsinu
í miðbæ Blönduóss. Auk þess vinnur Lárus að því að innrétta fjórar stúdíó íbúðir við Húnabraut og
er því á góðri leið með að vera kominn með alla flóruna í gerð gistiplássa, eins og hann orðaði það við
blaðamann Feykis sem heimsótti hann á dögunum.
Tekur við rekstri Hótel Blönduóss og gistiheimilisins í Gamla pósthúsinu