Feykir - 22.05.2014, Side 4
4 Feykir 19/2014
Aflafréttir vikuna 11.-17. maí
Tæp 250 tonn að landi
Í viku 20 var landað tæpum 190 tonnum á
Sauðárkróki, rúmum 10 tonnum á Hofsósi, 42
tonnum á Skagaströnd og rúmum 4 tonnum á
Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Fannar SK-11 Handfæri 1.424
Gammur II SK-120 Grásleppunet 6.231
Helga Guðm. KS-23 Handfæri 1.545
Klakkur SK-5 Botnvarpa 133.477
Kristín SK-77 Handfæri 3.082
Maró SK-33 Handfæri 1.581
Már SK-90 Grásleppunet 7.357
Nona SK-141 Handfæri 1.709
Nökkvi ÞH-27 Rækjuvarpa 7.599
Oddur SK-100 Grásleppunet 6.756
Ríkey SK-111 Handfæri 331
Séra Árni SK-101 Grásleppunet 5.817
Steini G SK-14 Grásleppunet 9.334
Vinur SK-22 Grásleppunet 1.329
Ösp SK-135 Handfæri 1.495
Alls á Sauðárkróki 189.067
Aggi SI-8 Handfæri 493
Ásmundur SK-123 Landb.lína 1.854
Dúan SI-130 Handfæri 768
Geisli SK-66 Handfæri 3.826
Hafbjörg SK-58 Handfæri 1.276
Skáley SK-32 Handfæri 2.273
Alls á Hofsósi 10.490
Brák HU-8 Handfæri 395
Harpa HU-4 Dragnót 3.561
Óli HU-115 Handfæri 83
Alls á Hvammstanga 4.039
Arney HU-36 Handfæri 417
Ásdís ÍS-2 Handfæri 2.167
Bogga í Vík Handfæri 2.096
Blær HU-77 Landb.lína 1.025
Dagrún HU-121 Grásleppunet 657
Elín ÞH-82 Handfæri 1.924
Fjöður GK-90 Handfæri 1.023
Garpur HU-58 Handfæri 1.957
Greifinn SK-19 Handfæri 1.045
Guðrún Ragna BA-162 Handfæri 1.740
Nonni HU-9 Handfæri 1.367
Ólafur Magn. HU-54 Grásleppunet 5.110
Óli Gísla HU-212 Lína 17.621
Smári HU-7 Landb.lína 1.443
Sveinbjörg HU-49 Handfæri 928
Sæborg HU-80 Handfæri 700
Sæunn HU Handfæri 898
Alls á Skagaströnd: 42.118
www.skagafjordur.is
Auglýsing vegna kjörskrár
Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna sveitastjórnarkosninga
31. maí 2014 liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki,
Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00
frá og með fimmtudeginum 22. maí 2014 til kjördags.
Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú
tilheyrir er einnig að finna á upplýsingaveitu Innanríkisráðuneytis.
Upplýsingaveita Innanríkisráðuneytis:
http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014/
Sveitarstjóri
Fækkað um meira
en helming
Embættum sýslumanna og lögreglustjóra
Alþingi samþykkti í síðustu
viku tvö frumvörp Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra um
breytingar á lögum um
umdæmaskipan lögreglu-
stjóra og sýslumanna.
Samkvæmt vef Innanríkis-
ráðuneytisins verður með
lögunum embættum
sýslumanna fækkað úr 24 í
níu og lögregluumdæmum úr
15 í níu. Þá verður yfirstjórn
lögreglu aðskilin frá yfirstjórn
sýslumannsembætta.
Tilgangurinn með sam-
einingu sýslumannsembætta er
að til verði öflugri þjónustu-
stofnanir sem standa betur að
vígi til þess að sinna hlutverki
sínu og taka að sér aukin verk-
efni. Með aðskilnaði yfirstjórnar
lögreglu frá yfirstjórn sýslu-
mannsembætta er lögreglu-
stjórum gert kleift að sinna
lögreglustjórn óskiptir í ljósi
aukinna krafna sem gerðar eru
til löggæslu. Með þessari breyt-
ingu er stefnt að því að til verði
öflug lögreglulið sem njóti styrks
af stærri liðsheild og verði
hagkvæmari rekstrareiningar til
lengri tíma litið. Ekki er gert ráð
fyrir uppsögnum starfsmanna
þrátt fyrir hagræðingu í rekstri
og gert er ráð fyrir að starfandi
sýslumenn njóti forgangs til
skipunar í ný embætti sýslu-
manna.
Landið skiptist í níu umdæmi
sýslumanna og verða þau á
höfuðborgarsvæðinu, Vestur-
landi, Vestfjörðum, Norðurlandi
vestra, Norðurlandi eystra,
Austurlandi, Suðurlandi, í Vest-
mannaeyjum og á Suðurnesjum.
Þá skiptist landið í níu lögreglu-
umdæmi með lögreglustjórn og
fara lögreglustjórar með em-
bætti á höfuðborgarsvæðinu,
Vesturlandi, Vestfjörðum,
Norðurlandi vestra, á Norður-
landi eystra, á Austurlandi,
Suðurlandi, Suðurnesjum og í
Vestmannaeyjum.
Umdæmamörk embætta
sýslumanna og lögregluembætta
verða samkvæmt lögunum
ákveðin í reglugerð. Ráðherra
ákveður í reglugerð hvar
aðalstöðvar embættanna skulu
vera og hvar lögreglustöðvar
verða starfræktar svo og aðrar
sýsluskrifstofur. Breytt skipulag
tekur gildi þann 1. janúar á
næsta ári. /GSG & BÞ
Skundar af stað
Skokkhópurinn á Sauðárkróki
Æfingar hins svokallaða
skokkhóps á Sauðárkróki eru
nú að hefjast. Vakin skal
athygli á því að hlaup eru ekki
skilyrði fyrir þátttöku, því
hægt er að ganga, skokka,
hjóla, hafa með sér
barnakerrur og börn, í
bakpoka, á hjóli eða
gangandi. Þetta er því kjörin
fjölskyldusamvera og ávallt
eru fundnar leiðir og æfingar
við hæfi hvers og eins.
Æft verður mánudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga
klukkan 17:30-18:30 en á
laugardögum klukkan 10. Verð
fyrir þátttöku allt sumarið er kl.
15.000 og veittur er fjölskyldu-
afsláttur. Af þátttökugjaldi renna
ávallt 1.000 krónur til góðs
málefnis.
Á laugardögum er gjarnan
boðið upp á lengri ferðir, t.d.
fjallaferðir. Þá er boðið upp á púl
og teygjur eftir hverja æfingu,
eftir því sem hver og einn ræður
við. Hópurinn hittist hjá
sundlauginni og jafnan er lagt
upp þaðan. Lögð er áhersla á fjör
og létta stemningu.
Sem fyrr er það Árni
Stefánsson sem heldur utan um
hópinn og bíður hann alla
velkomna að koma og prófa.
Ávallt er farið varlega af stað
með byrjendur og æfingin
sniðin að þörfum hvers og eins.
Árni gefur nánari upplýs-
ingar í síma 864 3959. „Hittumst
hjá sundlauginni, hjólandi,
gangandi, skokkandi,“ segir í
tilkynningu frá hópnum. /KSE
Óhlutbundnar kosningar
Akrahreppur og Skagabyggð
Samkvæmt kosningavef innanríkisráðu-
neytisins munu óhlutbundnar kosningar fara
fram í átján af sjötíu og fjórum
sveitarfélögum á landinu þann 31. maí nk.
Þar af eru tvö sveitarfélög á Norðurlandi
vestra, Akrahreppur í Skagafirði og
Skagabyggð í Austur-Húnavatnssýslu.
Óhlutbundnar kosningar, sem í daglegu tali
eru oft kallaðar persónukjör, þýða að allir
kjósendur í sveitarfélaginu eru í kjöri, með þeirri
undantekningu að þeir sem setið hafa í
sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur geta
skorast undan kjöri, enda tilkynni þeir
yfirkjörstjórn það fyrir lok framboðsfrests, þ.e.
fyrir 10. maí 2014, sbr. 2. mgr. 18. gr. laga um
kosningar til sveitarstjórna. Skal yfirkjörstjórn
auglýsa með viðeigandi hætti nöfn þeirra sem
skorast hafa undan endurkjöri. Öllum öðrum
sem eru kjörgengir, heilir og hraustir og yngri en
65 ára, er skylt að taka kjöri í sveitarstjórn við
óbundna kosningu.
Þessar upplýsingar koma fram á vefnum
kosning.is. Þar geta kjósendur m.a. aflað sér
upplýsinga um hvar þeir eru á kjörskrá, með því
að slá inn kennitölu og kemur þá upp nafn,
lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilfellum
birtast einnig upplýsingar um kjörstað og
kjördeild. /KSE
Sælir skokkarar að afloknu Króksbrautarhlaupi. Mynd: BÞ