Feykir - 22.05.2014, Blaðsíða 11
19/2014 Feykir 11
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014x 14
Skagafjörður virkur og vel tengdur!
K-listinn er raunverulegur
kostur til breytinga, trúnaður
frambjóðenda er eingöngu
við íbúa Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og hagsmuni
þeirra, því við erum ekki
bundin klafa sérhagsmuna
eða fyrirtækjum. Við viljum
eiga frjóa og skapandi
umræðu með ykkur íbúum
um málefni sveitarfélagsins,
markaðssetningu þess og
framþróun. Við viljum að
Skagafjörður sé öflugt
sveitarfélag sem er þekkt fyrir
frjóa hugsun, nýsköpun og
lífsgæði.
Fjölga þarf íbúum, síðastliðin
fjögur ár hefur íbúum sveitar-
félagsins fækkað verulega eða
um 153, og eru íbúar sveitar-
félagsins komnir niður fyrir
4000 og hafa aldrei verið færri
eftir stofnun sveitarfélagsins.
Fækkað hefur veruleg íbúum
yngri en 45 ára. Við viljum
opna umræðu um þessa þróun
og svara því hvers vegna hún
hefur orðið. Einn þáttur sem
vert er að skoða er launaþróun,
hvar stöndum við í samanburði
við önnur sveitarfélög. Því
miður hefur ekki verið vilji til
þess að vinna slíka könnun hjá
núverandi meirihluta.
Breyta þarf afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til opinberrar
þjónustu í Skagafirði, en veru-
legur niðurskurður hefur verið
hjá stofnunum ríkisins. Frá
K-LISTI SKAGAFJARÐAR
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir oddviti listans skrifar
árinu 2008 hefur störfum
fækkað verulega og einna mest
hjá Heilbrigðisstofnuninni,
Hólaskóla og Fjölbrautaskól-
anum, eða samtals um 52
stöðugildi.
Ekki er raunverulegur vilji til
þess hjá núverandi ríkisstjórn
að koma með jákvæðum hætti
til samninga við sveitarfélagið
um yfirtöku þess á rekstri
Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki. Það kom skýrt
fram á fyrsta fundi sveitar-
félagsins og velferðarráðu-
neytisins. Stjórnvöld léku þann
leik að draga málið á langinn og
setja á svið málamyndaviðræður
rétt fyrir kosningar. Næsta
sveitarstjórn sem kosin verður
31. maí þarf að hafa kjark og
dug til þess að standa vörð um
heilbrigðisþjónustu í héraði og
virkja Skagfirðinga alla á bak
við sig í þeirri baráttu sem
framundan er. Við viljum setja
skýr markmið um heilbrigðis-
þjónustu í Skagafirði, því öflug
heilbrigðisþjónusta er grund-
völlur búsetu og búsetuvals
fólks.
Sýna þarf framsýni í sam-
göngumálum í víðasta skilningi
þess orðs, efla samgöngur innan
héraðs og tengja allt sveitar-
félagið betur við umheiminn
með öflugum fjarskiptum.
Vinna að bættum almennings-
samgöngum og tengja Skaga-
fjörð og Eyjafjörð með jarð-
göngum undir Tröllaskaga og
efla með því byggðaþróun og
atvinnulíf.
K- listinn sér mikil tækifæri í
breytingum á stjórn fiskveiða
með auknu frelsi til fiskveiða.
Ljóst má vera að aukið frelsi og
markaðsvæðing greinarinnar
myndi hækka laun þeirra sem
starfa í greininni og efla
atvinnulíf á Hofsósi og
Sauðárkróki.
Við viljum jákvæða umræðu
sem leysir úr læðingi kraft og
vilja íbúa. Við ætlum að standa
vörð um og efla opinbera
þjónustu, stofnanir og atvinnu,
með nýsköpun að leiðarljósi.
Við viljum öflugt lýðræði, opna
og virka stjórnsýslu. Við viljum
að íbúar séu upplýstir um og
boðin þátttaka í afgreiðslu mála
í sínu nærumhverfi m.a. með
opnunartíma sundlauga.
Við höfum skýra framtíðar-
sýn sem við viljum vinna að í
virku samtali við og með
íbúum, fyrirtækjum, stofnun-
um og landeigendum.
K-listinn er skipaður
reynslu- og kraftmiklu fólki
sem hefur kjark og þor til að
taka og framkvæma ábyrgar
ákvarðanir með hagsmuni íbúa
að leiðarljósi.
Góðan og gleðilegan dag.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir,
skipar 1. sæti K- lista
Skagafjarðar
Fjölskylduvænt samfélag þar sem öllum eru
búin tækifæri við sitt hæfi í leik og starfi
Nýr dagur – ný tækifæri eru
kjörorð VG og óháðra. Við
viljum búa vel að börnunum
okkar, fjölskyldunni, eldri
borgurum og skapa samfélag
þar sem allir fái notið
tækifæra sinna. Nýta þann
mannauð og möguleika sem
Skagafjörður hefur upp á að
bjóða og byggja hér upp
fjölbreytt mannlíf og öflugt
atvinnulíf.
Á framboðslista okkar er
blanda af nýju kraftmiklu fólki
og einstaklingum með góða
reynslu af sveitarstjórnar-
störfum, sem bjóða fram krafta
sína til að vinna fyrir Skag-
firðinga. Við erum stolt af þeim
árangri að leikskólagjöld og
skólamáltíðir séu nú hér orðin
þau ódýrustu á landinu. Þennan
árangur ber að varðveita og
stefna að gjaldfrjálsum skóla.
Til að koma til móts við
fjölbreyttar þarfir barna og
ungmenna í sveitarfélaginu
þarf að einfalda styrkveitingar
til frístundastarfs og gæta þess
að stúlkur njóti möguleika og
stuðnings til jafns við drengi.
Ljúka á útivistar-svæði með
leiktækjum og útikennslustofu í
Litla Skógi ásamt tengingu við
útivistar-hring sem inniheldur
Nafirnar, smábátahöfnina og
ströndina. Þá verði unnið með
hugmyndir um ylströnd og
leiksvæði við smábátahöfnina
með tengingu við norðurbæ-
inn. Ennfremur teljum við að
skoða ætti sambærilega úti-
V-LISTI VG OG ÓHÁÐIR Í SKAGAFIRÐI
Bjarni Jónsson og Hildur Þóra Magnúsdóttir skrifa
vistarhringi á
fleiri þéttbýlis-
stöðum. Efla
þarf miðbæ
S au ð á r k r ó k s
sem þjónustu og
íbúakjarna og
auka við og
bæta göngu- og
hjólreiðastíga
um bæinn.
Sömuleiðis verði hugað að slíku
í öðrum þéttbýliskjörnum
ásamt fleiri opnum svæðum og
leikvöllum. VG og óháðir vilja
bæta aðgengi að byggingum
sveitarfélagsins og að sveitar-
félagið hafi forgöngu um
samstarf við fyrirtæki og
stofnanir um átak í aðgengis-
málum. Gangbrautir og göngu-
stígar á þéttbýlisstöðum í
sveitarfélaginu verði gerðir að-
gengilegri þannig að hægt sé að
komast um án hindrana
Grundvöllur góðs skólastarfs
er að börnum og starfsfólki líði
vel á sameiginlegum vinnustað.
Ráðast verður í umfangsmiklar
umbætur á skólahúsnæði og
lóð í Varmahlíð, Hofsósi og
Sólgörðum og finna lausn á
húsnæðisvanda leikskólans
Birkilundar sem best sátt er um.
Þá fari tónlistarskólinn og
Árskóli undir sama þak og
haldið verði áfram umbótum
og uppbyggingu á þeirri
aðstöðu sem fyrir er. Stefna á að
því að tónlistarnám og grunn-
skólastarf verði undir sama þaki
í öllu héraðinu. Almennt þarf
að gæta að því að jafnréttis-
áætlun sveitarfélagsins verði
lifandi stefna og henni fylgt eftir
í verki. Liður í að skapa hér enn
fjölskylduvænna umhverfi er að
hefja enduruppbyggingu sund-
laugar Sauðárkróks með góðu
aðgengi, ásamt leik- og útisvæði,
heitum pottum, vaðlaugum,
rennibrautum og öðrum leik-
tækjum. Öflug heilbrigðisþjón-
usta er einnig hornsteinn hvers
samfélags. Því viljum við snúa
vörn í sókn fyrir Heilbrigðis-
stofnunina og samþykkjum
ekki að hún verði lögð niður.
Við viljum gera gott samfélag
betra. Vinna að fjölþættri
atvinnuuppbyggingu, varðveita
og nýta auðlindir héraðsins og
náttúru, mannauðinn, okkar
öfluga rannsókna- og skólastarf
hjá Hólaskóla og FNV, þróunar-
starf og sprota sem dafna í
héraðinu. Þá miklu möguleikar
sem felast í matvælaframleiðslu
og vinnslu. Sérstök átaksverk-
efni eins og í Hofsós geta skilað
miklu, tækifærin í héraðinu í
vaxandi ferðaþjónustu, og
stærri verkefni sem henta vel í
Skagafirði eins og koltrefja-
verksmiðja, sem atvinnumála-
nefnd sveitarfélagsins vinnur nú
að því að rísi í héraðinu.
Bjarni Jónsson og Hildur Þóra
Magnúsdóttir skipa 1. og 2. sæti
VG og óháðra