Feykir - 22.05.2014, Blaðsíða 14
14 Feykir 19/2014
Það var svoldið stúss að fá miða
á sjálfa keppnina vegna þess að
við vorum svo mörg, eða 44
talsins með kennurum og
foreldrum, en þrátt fyrir það
tókst kennurum okkar að fá
miða fyrir okkur öll. Við
komumst ekki á sjálfa
forkeppnina vegna fjölda en
fórum í staðinn á genaralprufu
forkeppninnar til að sjá Ísland
„performa“. Keppnin var haldin
í gamalli skipaverksmiðju og
þegar við komum loksins á
staðinn varð ég fyrir þó
nokkrum vonbrigðum. Vana-
lega þegar ég hef horft á
Eurovision heima í sófa hefur
keppnin verið í einhverjum
hrikalega flottum byggingum –
höllum mætti halda. En núna
var þetta í einhverri risastórri
grárri, ljótri verksmiðju. Ég
hugsaði með mér að það þýddi
ekkert að hengja haus yfir
einhverju svona, ég skyldi bara
njóta þess að fá að sjá þetta
„live“ þótt þetta væri kannski
FRÁSÖGN
Linda Þórdís B. Róbertsdóttir
ekki alveg jafn flott og ég hafði
vonað.
Við byrjuðum að fara í
gegnum mikla öryggisgæslu til
að komast inn á staðinn. Svo
eftir að allir komust inn og
búið var að tryggja að enginn
væri með neitt sem ekki átti
heima á staðnum, var komið
að því að skoða staðinn aðeins
betur. Þegar við gengum inn í
verksmiðjuna get ég sagt hreint
út að ég fékk stjörnur í augun,
þetta var svo flott og þá vorum
við bara komin í anddyrið. Við
gengum lengra inn og þá blasti
við risastórt svið baðað í
allskonar ljósum. Ég einfald-
lega gapti af undrun – þetta var
svo flott. Hvernig gat þessi
frekar ljóta verksmiðja verið
svona hrikalega flott að innan?
Danirnir mega sko sannarlega
fá mikið klapp á bakið fyrir
þetta því þetta var einfaldlega
æðislegt. Enda á núll einni
voru allir bekkjarfélagar mínir,
og meira að segja kennarar,
búnir að taka upp símana til að
taka myndir og myndbönd.
SAMEIGINLEGIR FRAMBOÐSFUNDIR
Í SVEITARFÉLAGINU SKAGAFIRÐI VERÐA:
Þriðjudaginn 27. maí:
Í Menningarhúsinu Miðgarði (efri hæð) kl. 17:00.
Á Mælifelli á Sauðárkróki kl. 20:30.
Miðvikudaginn 28. maí:
Í Höfðaborg á Hofsósi kl. 20:30
Fulltrúar flokkanna verða með framsögur, en síðan verða leyfðar fyrirspurnir úr sal.
Framboð til sveitarstjórnar í Sveitarfélaginu Skagafirði
Komumst næstum því
í sjónvarpið
Við áttum pöntuð sæti lengst
uppi í stúkunni og höfðum því
góða yfirsýn yfir allt. En ekki
leið á löngu þar til starfsmaður
kom til okkar og bauð okkur
að vera alveg upp við sviðið.
Að sjálfsögðu sögðum við já
með stórt bros á vör. Sumir
voru spenntari en aðrir, eins og
gengur og gerist, svo nokkrir
vildu heldur sitja áfram uppi í
stúkunni, sem var líka allt í
góðu.
Í loftinu héngu stórir skjáir
sem tökumönnum þótti ekki
leiðinlegt að sýna okkur í.
Enda heill 10. bekkur iðandi úr
spenningi í skær appelsínu-
gulum Grettispeysum, sem fór
ekki fram hjá neinum þarna
inni. Eftir ekki nema hálftíma
bið, með undirspili á gömlum
Eurovision lögum sem hress
danskur DJ spilaði, byrjaði
„showið“. Kynnarnir stigu á
sviðið og þá byrjaði ballið.
Loksins byrjaði það sem beðið
hafði verið eftir. Að loknu stuttu
„introi“ frá kynnunum kom
sigurvegarinn frá síðasta ári,
hún Emmelie de Forest, og tók
vinningslagið frá því í fyrra. Og
mikið sem það var flott.
Fyrstir af keppendunum á
svið voru Armenar og mér leið
einfaldlega eins og ég væri hluti
af atriðinu, ég lifði mig svo inn í
þetta. Maður fann fyrir tón-
listinni alveg inn að beini.
Númer fjögur í röðinni upp á
svið var Pollapönk og mikið
sem þeir voru flottir. Þótt mér
finnist lagið persónulega ekkert
sértakt var þetta hrikalega flott
hjá þeim. Og það sem betra var
að mér og vinkonu minni var
réttur íslenski fáninn í hönd og
tökumenn stilltu sér upp fyrir
framan okkur. Hefði eitthvað
klikkað á sjálfri sýningunni þá
hefðum við komið í sjónvarpið,
en við vorum ekki svo heppnar.
Á sviðið stigu 16 atriði sem
voru eins misjöfn og þau voru
mörg en samt svo hrikalega
flott. Eins og sannir Íslendingar
reyndum við að láta í okkur
heyra allan tímann, því eins og
ég nefndi áður, hefði eitthvað
klikkað á alvöru sýningunni
hefði klippan og hljóðið af
okkur verið notað.
Þegar búið var að flytja öll
lögin var komið að plat-
úrslitunum. Ísland komst ekki
áfram og vorum við frekar
svekkt yfir því að kynnarnir
hefðu ekki leyft okkur að
komast áfram. Við sem vorum
búin að vera með svaka læti
allan tímann eins og þeir voru
búnir að biðja okkur um. En
þeir fengu víst ekki að ráða því.
Sýningin kláraðist og okkur
langaði ekki að fara, þetta var
svo gaman.
Héldum við út í rútu, þreytt í
fótunum og aum í hálsinum af
öskrum og látum en með bros
út að eyrum. Hrikalega
skemmtileg ferð sem kom
virkilega á óvart. Ég væri
hvenær sem er til í að fara aftur
á Euro!
10. bekkingar Árskóla skemmtu sér hið besta appelsínugulir og glaðir. Myndir: Linda Þórdís
Pollapönkararnir á sviði.
„Hrikalega
skemmtileg ferð
sem kom virkilega
á óvart“
Við 10. bekkingar í Árskóla á Sauðárkróki fórum
í skólaferðalag til Danmerkur þann 5. - 9. maí
síðastliðinn. Í þessari ferð átti að gera ýmislegt
skemmtilegt, þar á meðal fara á Eurovision
söngvakeppnina sem var haldin í Kaupmannahöfn
þetta árið.
Danmerkurferð 10. bekkjar Árskóla