Feykir


Feykir - 12.06.2014, Page 5

Feykir - 12.06.2014, Page 5
22/2014 Feykir 5 HILDUR Albertsdóttir árgangur 1995 SUNNA BJÖRK Atladóttir árgangur 1989 HRAFNHILDUR ÓSK Halldórsdóttir árgangur 1997 HUGRÚN Pálsdóttir árgangur 1997 STELLA DRÖFN Bjarnadóttir árgangur 1997 SVAVA RÚN Ingimarsdóttir árgangur 1990 LAUFEY RÚN Harðardóttir árgangur 1993 GUÐRÚN JENNÝ Ágústsdóttir árgangur 1991 RAKEL SVALA Gísladóttir árgangur 1994 VIGDÍS Sveinsdóttir árgangur 1996 CAROLYN Polcari árgangur 1990 BRYNHILDUR Ólafsdóttir árgangur 1993 SIGURVEIG ANNA Gunnarsdóttir árgangur 1996 BRYNDÍS RÚN Baldursdóttir árgangur 1995 EVA MARGRÉT Hrólfsdóttir árgangur 1996 ÓLÍNA SIF Einarsdóttir árgangur 1996 SNÆBJÖRT Pálsdóttir árgangur 1993 BRYNDÍS RUT Haraldsdóttir árgangur 1995 BRÍET Guðmundsdóttir árgangur 1996 ASHLEY MARIE Jaskula árgangur 1991 GUÐNÝ VAKA Björnsdóttir árgangur 1997 HELGA Þórsdóttir árgangur 1995 HRAFNHILDUR Björnsdóttir árgangur 1997 IÐUNN Helgadóttir árgangur 1997 JÓNA MARIA Eiríksdóttir árgangur 1998 KOLBRÚN ÓSK Hjaltadóttir árgangur 1998 SIGRÍÐUR Björnsdóttir árgangur 1996 ÞÓRA RUT Jónsdóttir árgangur 1992 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR www.feykir.is/ithrottir „Fótboltinn alltaf verið mín uppáhalds íþrótt“ Spjallað við Carolyn Polcari – leikmann Tindastóls Carolyn Polcari er 24 ára leikmaður hjá Tindastóli sem kemur frá Richardson í Texas, sem er úthverfi norður af Dallas í Bandaríkjunum. Þetta er annað sumarið sem Carolyn spilar með liði Tindastóls og hefur hún verið góð viðbót í liðið. Hvenær byrjaðiru að æfa fótbolta? -Ég byrjaði að spila fótbolta þegar ég var fjögurra ára gömul. Fyrsta liðið sem ég spilaði með hét The Jets þar sem voru bara strákar í liðinu og ég var eina stelpan. Ég prófaði fullt af íþróttum í æsku, svo sem tennis, sund, körfubolta, fim- leika og fleira, en fótboltinn hefur alltaf verið og mun alltaf vera mín uppáhalds íþrótt. Hvers vegna varð Ísland fyrir valinu? -Þegar ég var að spila með UAB þá kom stór hluti leikmannanna frá öðrum löndum allsstaðar að úr heim- inum. Ég naut þess að heyra um þeirra menningu og hvernig þeir ólust upp við að spila fótbolta. Þegar ég lauk fyrsta árinu mínu í framhaldsskóla fór ég til Hollands til að spila með liði sem heitir SC Cambuur. Það var frábær reynsla og opnaði augu mín fyrir því að ferðast og spila fótbolta í öðrum löndum. Ég vissi ekki mikið um Ísland eða Tindastól þegar Leslie (leikmaður Tindastóls síðasta sumar) spurði mig hvort ég hefði áhuga á að koma með henni til Íslands að spila með Tindastóli yfir sumarið, en ég elska að ferðast og að spila fótbolta svo ég sagði henni að ég væri til í smá ævintýri og dreif mig með henni. Hvernig er að spila með Tindastól? -Ég hef mjög gaman af því að spila með Tindastóli og fá að kynnast öllum stelpunum í liðinu. Þetta er frábær staður til að læra nýja hluti um leikinn og einnig kenna öðrum leik- mönnum það sem ég hef lært. Svo er ég með æðislega fóstur- fjölskyldu hérna sem hefur tekið mér eins og einni af þeim og gert dvöl mína á landinu ennþá einstakari. Hver er fyrirmynd þín í bolt- anum? -Mia Hamm var helsta fyrirmyndin mín þegar ég var að alast upp, ég átti allar bæk- urnar um hana, boli og vegg- irnir í herberginu mínu voru fullir af plaggötum með myndum af henni. Eftir að ég varð eldri þá hef ég ekki átt neina sérstaka fyrirmynd, í dag hef ég aðalega gaman af því að fylgjast með liðum sem spila fallegan bolta. Hver er uppáhalds staðurinn þinn á Íslandi? -Það er erfitt að velja einn uppáhalds stað, hvert sem ég lít þá er eitthvað sem grípur augað. Stelpurnar í liðinu hlæja alltaf jafn mikið af mér þegar þær sjá mig taka myndir af fjöllum, en útsýnið hérna er bara svo fallegt! Það er ekkert þessu líkt í Dallas. Ég hlakka þó mest til að fara aftur út í Drangey, en nokkrar stelpur úr liðinu ætla að fara með mér þangað helgina áður en ég fer aftur til Bandaríkjanna. Heldurðu að þú komir aftur næsta sumar? -Því miður mun ég ekki geta komið aftur næsta sumar. Ég fer aftur í skólann í júlí til að halda áfram í lækna- náminu, en ég mun án efa koma aftur til Íslands í heimsókn og vona að stelpurnar í liðinu eigi eftir að gera sér ferð til Banda- ríkjanna til að heimsækja mig. Tindastóll - meistaraflokkur kvenna Liðskynning - 1. deild kvenna VIÐTAL Guðrún Sif Gíslasdóttir

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.