Feykir - 12.06.2014, Page 9
22/2014 Feykir 9
Garún Icelandic Stout
var kosinn besti bjórinn
Bjórhátíðin á Hólum 2014
Bjórhátíðin á Hólum var
haldin laugardaginn 7. júní
síðastliðinn. Rúmlega 110
gestir mættu á hátíðina sem
þýðir eiginlega að það hafi
verið uppselt að sögn
Brodda Reyrs Hansen,
einum af skipuleggjendum
hátíðarinnar.
Boðið var uppá grillaðar
heimagerðar bratwurst/curry-
wurst pyslur og rifið hægeldað
svín (e. pulled pork), auk
nýbakaðra saltkringla (þ.
bretzel). Keppt var í kútaralli
(þ. fassbierrollen) og voru
vegleg verðlaun samsett af
bjórum frá Founders,
Mikkeller, To-Öl og BrewDog,
allt gefið af Járn og Gler sem
sérhæfir sig í innflutningi á
eðalbjór. Þátttakendur gátu
kosið um besta bjór
hátíðarinnar og í þetta sinn
vann bjórinn Garún Icelandic
Stout frá Borg brugghúsi, í
öðru sæti var Ship-o-hoj frá
brúgghúsinu í Ölvisholti,
Víking-Einstök fékk þriðju
verðlaun fyrir Arctic-Berry-
Ale. Einnig fékk Víking-
Einstök verðlaun fyrir besta
básinn. Að sögn Brodda
Tekið við verðlaunum fyrir besta bjórinn. Mynd: Bjórsetur Íslands
Frá hátíðinni. Mynd: GSG
skemmtu allir þátttkendur sér
mjög vel bæði úti og inni enda
var veður með eindæmum
gott. /GSG
Ævintýralegar
ferðir í sumar
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Klara Sólveig Jónsdóttir og
Sigurður Friðriksson
stofnuðu Ferðaþjónustuna
Bakkaflöt árið 1987 og hefur
staðurinn verið byggður upp
smátt og smátt síðan. Byrjað
var með nokkur herbergi,
veitingasal og tjaldstæði. Upp
úr 1990 var svo bætt við
tveimur sumarhúsum og
fleiri herbergi innréttuð í
aðalbyggingunni. Árið 1993
var farið að kanna jökuls-
árnar sem nýjan afþrey-
ingarmöguleika, það var þó
ekki boðið upp á
flúðasiglingar (e. river
rafting) niður Austari og
Vestari Jökulsárnar fyrr en
1996.
Í dag eru flúðasiglingarnar
orðnar stór partur af starf-
seminni og má líta á Bakkaflöt
sem eins konar miðstöð
flúðasiglinga á Norðurlandi. Að
sögn Finns Sigurðssonar, sonar
Klöru og Sigurðar, eru árnar
mjög hentugar fyrir flúðasigl-
ingar, bæði hvað varðar
vegalengdir, erfiðleikastig og
síðast en ekki síst stórbrotið
umhverfi.
Vestari áin er styttri og
hentar því vel fyrir skólahópa,
fjölskyldur og fyrirtæki. Austari
áin hentar aftur á móti betur
fyrir þá sem vilja meiri extreme
ferð, en 18 ára aldurstakmark er
í ána þar sem hún er talin vera í
4+ erfiðleikastigi af fimm
mögulegum.
„Gil Austari árinnar er mjög
djúpt, stórbrotið, gróðri vaxið
og litskrúðugt. Stoppað er svo
við Græna herbergið þar sem
allir fara úr bátunum og skoða
flúðina áður en hún er sigld.
Næst er stoppað á stað þar sem
fólki er boðið að stökkva fram
af kletti sem er um 9 m hár.
Þegar komið er niður að
upptökustað okkar í Villinga-
nesi bíður heit kjötsúpa sem er
orðin hefð í þessum ferðum.
Síðan tekur við 25 mínútna
akstur til baka á Bakkaflöt þar
sem endað er á því að fara í
heitu pottana. Þetta er ferð sem
fólk getur farið í á hverju ári og
fær aldrei leið á, enda orðið
árlegur viðburður hjá mörgum
fyrirtækjum og vinahópum.
Austari áin er talin ein af
flottustu raftingám í Evrópu og
SAMANTEKT
Guðrún Sif Gíslasdóttir
ættu allir þeir sem eru með
þessar náttúruperlur í bak-
garðinum og hafa ekki farið að
skoða þetta,“ segir Finnur.
Nýr Paintball-völlur
opnaði í vor
Á Bakkaflöt eru hátt í þrjátíu
gistiherbergi, tvö sumarhús,
tjaldstæði, heitir pottar og lítil
sundlaug, veitingasalur sem
rúmar hátt í 100 manns,
veitingasala og bar. Árið 2011
var svo tekinn í notkun
Wipeout-garður sem var
hannaður og ætlaður aðallega
fyrir skóla- og starfsmanna-
hópa og hefur hann notið
mikilla vinsælda.
„Síðastliðin þrjú sumur
höfum við komið upp upp-
blásnum Paintball-velli til að
þjónusta skólahópana sem eru
mikið hjá okkur, en núna í vor
var smíðaður fastur Paintball-
völlur við hliðina á Wipeout-
garðinum sem verður opinn og
hægt að taka við hópum allt
sumarið,“ bætir Finnur við.
Flúðasiglingarnar eru hressandi. Mynd: Bakkaflöt
Hasar á nýja PaintBall-vellinum. Mynd: Bakkaflöt
Frá Wipeout-vellinum á Bakkaflöt. Mynd: GSG