Feykir - 12.06.2014, Page 11
22/2014 Feykir 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti næst
að fá sér frískt loft.
Spakmæli vikunnar
-Viljir þú verða vitur sestu þá niður og hlustaðu.
- Afrískt orðtak.
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... nítján prósent þeirra sem hrjóta, hrjóta svo hátt að það heyrist til
þeirra í gegnum lokaðar dyr?
... Ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu
hvern einasta dag.
... fólk sem er orðið sjötugt er búið að missa helminginn af
bragðlaukunum sínum?
FEYKIFÍN AFÞREYING gudrun@feykir.is
Hahahahaha...
Ljóska gengur inn á bókasafn. Hún labbar upp að borðinu, hendir bók
niður og öskrar á bókasafnsvörðinn, – „Þetta er ein versta bók sem að ég
hef lesið! Það er ekkert samsæri í henni og alltof margar persónur!”
Bókasafnsvörðurinn lítur upp og segir rólega – „Svo að það varst þú sem
að tókst símaskránna okkar…”
Krossgáta
Feykir spyr...
[SPURT Á
BLÖNDUÓSI]
Hvaða leikur
finnst þér
skemmti-
legastur?
BJÖRK VIKTORSDÓTTIR
-Matarleikir, drullumalla
og svoleiðis.
EMMA KAREN
JÓNSDÓTTIR
-Mér finnst skemmtilegast í
mömmuleik.
DÖGUN EINARSDÓTTIR
-Mömmó.
BENEDIKT MAGNÚSSON
-Ég eiginlega veit það ekki,
umm... feluleikur!
VILBORG JÓHANNA
JÚLÍUSDÓTTIR LÍNDAL
-Þetta er erfitt - barbí.
Aðferð:
Fiskinum er raðað á álpappír og
hann kryddaður með sítrónu-
pipar. Mangó chutney er smurt
ofan á og mulið Doritos sett yfir.
Grillað í u.þ.b. 5 mín.
Gott er að bera fram með
fersku salati og sætum kartöflum
og kaldri sósu sem hrærð er
saman með sýrðum rjóma og
sweetchilisósu. Einnig er gott að
grilla fiskinn í ofni fyrir þá sem
vilja það frekar.
Verði ykkur að góðu
og gleðilegt grillsumar!!
Rúnar og Guðrún matreiða
„Grillaður fiskur í
miklu uppáhaldi“
FISKUR Á GRILLIÐ I
Grilluð bleikja
Bleikja (helst úr Fljótunum)
smjör
sítrónur
Aðferð:
Raðið bleikjuflökum á álpappír
og kryddið með sítrónupipar.
Setjið því næst nokkrar klípur af
smjöri á hvert flak og sítrónu-
sneiðar, álpappír settur yfir líka og
lokað vel. Grilluð á hvorri hlið í
um 3-4 mín.
FISKUR Á GRILLIÐ II
Grillaður karfi
eða þorskur
Karfi eða þorskur
salt og pipar
fetaostur
sólþurrkaðir tómatar,
niðurskornir
hvítlaukur, pressaður
Aðferð:
Fisknum raðað á álpappír og salti
og pipar stráð yfir. Því næst er
fetaostur settur ofan á og slatti af
olíunni líka. Síðan eru niður-
skornir sólþurrkaðir tómatar
raðað ofan á, ásamt slatta af
olíunni og pressuðum hvítlauk.
Grillað í um 5 mínútur.
FISKUR Á GRILLIÐ III
Grilluð rauðspretta
Rauðspretta
sítrónupipar
mangó chutney
doritos
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Guðrún Jónasdóttir og Rúnar
Rúnarsson á Sauðárkróki eru
matgæðingar Feykis þessa
vikuna. Þau ætla að bjóða upp
á þrjár einfaldar en svaka
góðar uppskriftir.
„Nú er sumarið að bresta á
og aðalgrilltímabilið að byrja og
langar okkur því að gefa grill-
uppskriftir. Við eldum allajafna
mikinn fisk og er grillaður
fiskur í miklu uppáhaldi. Ein-
faldar uppskriftir eru okkur að
skapi og hér koma þrjár ein-
faldar en svaka góðar.
Við skorum á Lydíu Ósk
Jónasdóttur og Gísla Sigurðs-
son að vera næstu matgæðingar
Feykis, en þau eru höfðingjar
heim að sækja og er yfirleitt
hlaðið borð af kræsingum á
þeirra heimili.“
Guðrún og Rúnar með dæturnar.