Feykir


Feykir - 12.06.2014, Page 12

Feykir - 12.06.2014, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 22 TBL 12. júní 2014 34. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki barst gjöf frá Lionsklúbbnum Höfða, en meðlimir klúbbsins afhentu stofnunni 24 tíma blóðþrýstingsmæli á dögunum. Samkvæmt vef stofnunarinnar kemur gjöfin sér afar vel þar sem eldri mælirinn var orðinn ónothæfur. /GSG Forvitnast í fataskápa: Védís Elfa Torfadóttir Litrík og lúkkar vel við eldhússtörfin! Ferðanefnd seinasta fataskáp- sinnlits ákvað að skora á hana Védísi Elfu Torfadóttur að taka á móti Fröken Fabjúlöss þessa vikuna. Védís er fædd og uppalin Akureyrarmær en er þó í raun hálfur Eyfirðingur og hálfur Þingeyingur með sterk sveita- stelpugen og eyddi hún nokkrum sumrum hjá afa sínum og ömmu í sveitinni. Hún kynntist skagfirskum hesta- manni, Helga Ingimarssyni sem tældi hana í fjörðinn fagra og ætlaði hún að prufa svona tvö til þrjú ár, en mörgum árum síðar situr hún sem fastast á Króknum en fer skottúra til Akureyrar í fjölskyldu- og vinahittinga. En hvað er það sem er í algjöru uppáhaldi hjá Védísi og hún getur ekki verið án? - Ef það er eitthvað sem ég get ekki verið án, þá er það eldhús- svuntan mín sem er svona líka fín og falleg. Það er nú alveg nauð- synlegt að lúkka vel við eld- húsverkin og ekki skaðar að flíkurnar mínar eru blettalausar þar sem ég elda aldrei án hennar. Þessa svuntu gaf mamma mér og er hún partur af skemmtilegri áskorun sem ég skoraði sjálfa mig á fyrir um þremur árum síðan – að fara að lifa lífinu í lit! Þetta gekk aðallega út á það að færa mig úr gömlu sauðalitunum yfir í sterka UMSJÓN MEÐ FRÖKEN FABJÚLÖSS Hrafnhildur Viðarsdóttir [ frokenfab@feykir.is ] liti. Hægt og rólega fór ég af stað, það var ekkert auðvelt til að byrja með þar sem ég var haldin þeirri ranghugmynd að rauðhærðir gætu alls ekki klæðst litum og svo var tískan bara svart/hvít. Þannig að ég fór í Skagfirðingabúð, keypti efni, þurrkaði rykið af sauma- vélinni, teiknaði, klippti og saum- aði kjól. Síðan þá er ég líklega búin að sauma eða prjóna flíkur á mig í nánast öllum heimsins litum, með blómamunstri, skræpótt, einlitt eða röndótt. Sumir litir reyndust þó erfiðari en aðrir en margir litir komu mér skemmtilega á óvart. Það hefur verið ótrúlega gaman að fara svona hressilega út fyrir þægindarammann, fyrir utan hversu gott það er fyrir sálina að lifa lífinu í lit. Þetta finnst Fröken Fabjúlöss algjörlega brilljant, að skora svona á sjálfa sig- Enda er Frökenin nú þekkt fyrir að vera nokkuð áhugasöm um liti hverskonar! En hver er það svo sem tekur við gestgjafahlut- verkinu af Védísi? - Ég ætla að skora á frænku mína, Sigurveigu Dögg Þormóðsdóttur sem er alveg mögnuð prjóna- og hannyrða kona að segja okkur frá einhverju sem er í uppáhaldi hjá henni eða því sem hún getur ekki verið án. HELGARTILBOÐ Ti lb oð g ild a m eð an b irg ði r e nd as t Krydduð lambalæri 1298,-kg Kryddaðar svínakótilettur m/beini 1298,-kg Léttreyktar hunangs-svínakótilettur 1798,-kg FILIPPO BERIO ólífuolía 500ml 498,- Epli gul 259,-kg Epli rauð 259,-kg Iceberg 198,-kg Smjörvi 400gr 359,- Camembert 150gr 369,- Gevalia kaffi 500gr 589,- Túnfiskur 185gr 239,- Kók 2 ltr 269,- Kók cero 2 ltr 269,- Capri – Sonne orange 5pk 198,- Rits kex 200gr 169,- Vanillukremkex 500gr 298,- Súkkulaðikremkex 500gr 298,- Ribsgel 400gr 229,- Súrt mix 250gr 239,- Vingummimix 250gr 239,- Gjöf frá Lkl. Höfða Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Frá afhendingunni. MYND: HS

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.