Feykir - 17.07.2014, Qupperneq 1
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Húnavaka um helgina
Fjölbreytt og
fjölskylduvæn
dagskrá
BLS. 8
Páll Sigurðsson prófessor
og höfundur árbóka F.Í. um
Skagafjörð í opnuviðtali
Getur alltaf kallað
fram útsýnið yfir
Fjörðinn frá Nöfum
Eyþór Árnason frá
Uppsölum lætur sig
dreyma um leið og hann
stýrir áskorendapennanum
Flogið norður
27
TBL
17. júlí 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
www.riverrafting.is - s: 453 8245
Paintball
River rafting
Wipeout
Tjaldstæði
Heitir pottar
LISTAFLÓÐ Á VÍGASLÓÐ
Viðburðarík helgi á Syðstu-Grund
Megn óánægja Hollvinasamtaka HS
Sameining heilbrigðisstofnana
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Sauðárkróki lýsa yfir megnri
óánægju með ákvörðun heilbrigðis-
ráðherra um sameiningu stofnunar-
innar í Heilbrigðisstofnun Norður-
lands frá og með 1. okt. nk. Samtökin
sendu frá sér yfirlýsingu vegna
málsins sl. þriðjudag.
Vitna samtökin í frétt á heimasíðu
Velferðarráðuneytisins um setningu
reglugerðar þar að lútandi, þar sem segir
orðrétt: „Markmiðið með sameiningu
heilbrigðisstofnana er að styrkja rekstrar-
og stjórnunareiningar, auka öryggi íbúa
með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta
fjármuni betur. Með sameiningum færist
ákvarðanataka í auknum mæli frá ráðu-
neyti til heimamanna. Í aðdraganda
sameininganna munu verðandi forstjórar
ásamt starfsmönnum ráðuneytisins hafa
samráð við sveitarstjórnarmenn á við-
komandi svæðum.“
Telja samtökin þessi markmið ekki
trúverðug: „Rekstrar- og stjórnunarum-
hverfi stofnunarinnar mun veikjast þar
sem ákvörðunarvaldið færist fjær henni.
Öryggi íbúanna verður frekar ógnað þar
sem fara þarf um langan veg til að nálgast
ýmsa þjónustu sem nú er til staðar í
heimabyggð. Kostnaður vegna heilbrigð-
isþjónustu almennt mun aukast eftir því
sem íbúar þurfa að fara um lengri veg til
að sækja sér þjónustuna, með tilheyrandi
vinnutapi og óhagræði fyrir íbúana.
Stjórnunarvald stofnunarinnar mun
færast fjær og ákvarðanavald heima-
manna mun því veikjast til muna,“ segir í
yfirlýsingunni frá samtökunum.
Benda samtökin á að nú þegar sé erfitt
að fá lækna og hjúkrunarfólk til starfa á
landsbyggðinni og telja að sameiningin
muni auka enn frekar á þá erfiðleika og
leiða til enn frekari brottflutnings mennt-
aðs starfsfólks þeirra og þannig veikja
enn frekar byggðirnar umhverfis þær.
„Það er með öllu ólíðandi að ráðherra
og ráðuneyti hans skuli fara fram með
þeim hætti sem raun ber vitni. Holl-
vinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki skora á ríkisstjórn Íslands að
grípa inn í þann óheillafarveg sem málið
er komið í og ljúka nú þegar þeim
viðræðum sem hafnar eru við Sveitar-
félagið Skagafjörð um yfirtöku á rekstri
HS og hlusta á vilja heimamanna,“ segir
að lokum í yfirlýsingunni. /KSE
Þessi ungi herramaður tók þátt í kraftakeppninni Sterkasti Brandurinn, þar sem gömlum hestasteini var lyft. Ljósm./GSG
Það var mikið um gleði og gaman á Syðstu-Grund þegar hátíðin Listaflóð á vígaslóð var haldin um síðustu helgi. Hátíðin
hófst með kvöldvöku í Kakalaskála á föstudagskvöldinu þar sem hinir ýmsu skemmtikraftar stigu á stokk.
Á laugardeginum voru hádegistónleikar í Miklabæjarkirkju með BAK tríóinu og Pétri. Eftir tónleikana bauð Sigurður
Hansen gestum hátíðarinnar í göngutúr á Haugnesgrundir og síðan hófst fjölskylduhátíðin Sunnan við garðinn hennar mömmu
á Syðstu-Grund. Þar var fjölbreytt dagskrá með leikjum, lifandi tónlist, handverki og hugverkum. Það er Grundar-hópurinn
sem stendur að hátíðinni og nýtur m.a. styrks frá Menningarráði Norðurlands vestra. /GSG