Feykir - 17.07.2014, Side 2
2 Feykir 27/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur
Þessi fleyga speki kemur upp í hugann þegar rætt er um
sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Eitt af því
sem mér hefur fundist vera kostur við búsetu hér á Sauðárkróki
er heilbrigðisþjónustan. Kom-
andi úr 500 manna sveitarfélagi
þar sem enginn aðgangur var að
sjúkraþjálfun og takmarkaður
aðgangur sálfræði- og félagsþjón-
ustu, svo dæmi sé tekið, fannst
mér ákveðin forréttindi og einn
af kostunum við stærra samfélag
að eiga kost á betri heilbrigðis-
þjónustu.
Nú hefur þessi góða þjónusta
verið sett í uppnám, og skyndil-
ega er búið að auglýsa eftir for-
stjórum þriggja heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, áður en
nokkur svo mikið sem getur snúið sér við til að andmæla.
Síðustu fréttir hermdu að Sveitarfélagið Skagafjörður hefði
mikinn áhuga á að taka yfir þessa þjónustu og lengi hefur það
nú verið boðað að færa fleiri verkefni til sveitarfélaganna. Nú
standa sveitarstjórnarmenn og hollvinir stofnunarinnar hins
vegar upp með það að vita ekki hvaðan á þá stendur veðrið.
Fögur fyrirheit um samráð og upplýsingaflæði virðast hafa
verið virt að vettugi. Heimamönnum var einfaldlega ekki
boðið í „partíið.“
Stundum hefur maður velt fyrir sér hvort mannslífin séu
minna virði úti á landi og hvort endalaust sé hægt að skera
niður. Er það t.d. boðlegt að þurfa að bíða í nokkra daga eftir
læknatíma og mánuðum saman eftir sérhæfðri þjónustu?
Þurfa skagfirskar og húnvetnskar mæður að fæða fleiri börn á
fjallvegum landsins? Þurfa eldri borgarar og öryrkjar að fara
langar leiðir til að sækja grunnþjónustu? Er búið að reikna
dæmið til enda? Hvað kostar flækjustigið sem felst í stærri og
þunglamalegri stofnunum?
Kristín S. Einarsdóttir
notandi heilbrigðisþjónustu
15 ungmenni frá jafnmörgum löndum
Ungmennabúðir Lions á Hólum í Hjaltadal
Í dag lýkur ungmennabúðum
á vegum Lions, sem að þessu
sinni voru starfræktar á
vegum Lionsklúbbanna á
svæði 5 í umdæmi 109b.
Dvaldi hópurinn nokkra daga
á Hólum í Hjaltadal og lauk
dvöl sinni í Húnavatnssýslum.
Með góðri aðstoð fyrirtækja
og félagasamtaka á svæðinu
hefur ungmennunum verið
gert kleift að sjá og upplifa
margt af því besta sem
svæðið hefur upp á að bjóða.
Feykir ræddi við Þorstein
Frímann Guðmundsson sl.
föstudag, en hann kemur að
skipulagningu búðanna ásamt
fleiri Lionsmönnum og konum í
Skagafirði. Fyrstu vikuna dvöldu
krakkarnir í heimahúsum, til að
kynnast sem best menningu og
staðháttum. Fór hópurinn í
framhaldi af því víða um
Skagafjörð og heimsótti m.a.
Glaumbæ, Hofsós, Drangey og
skoðaði söfnin á svæðinu. Þegar
rætt var við Þorstein voru þau á
leið gangandi að Merkigili. Á
mánudaginn fór hópurinn svo
úr Skagafirði og eyddi síðustu
dögunum í Húnavatnssýslum.
Markmiðið með búðunum
er að ungmennin læri um
menningu og náttúru landsins,
byggi upp vináttu og tengsl. Að
sögn Þorsteins gefst ungmen-
num hvaðan æva úr heiminum
kostur á að sækja um þátttöku í
ungmennabúðum hjá Lions í
hverju landi fyrir sig og reynt er
að velja úr umsækjendur sem
ekki ættu ella kost á að upplifa
ferðir af þessu tagi.
Þorsteinn sagði að búðirnar
hefðu gengið vel fyrir sig, þrátt
fyrir að veðrið hefði sett nokkurt
strik í reikninginn. Hann vildi
jafnframt taka fram að ógern-
ingur væri að skipuleggja dag-
skrá af þessu tagi nema með
dyggum stuðningi fyrirtækja,
einstaklinga og félagasamstaka á
svæðinu og vildi koma á fram-
færi þökkum til allra þeirra sem
að verkefninu hafa komið. /KSE
Hópurinn á Hólum í Hjaltadal.
Magnaður staður til að
hugleiða og stunda jóga
Jógaferð í Drangey
Síðastliðinn sunnudag fór
hópur sjö kvenna, undir
leiðsögn Arnbjargar Kristínar
Konráðsdóttur jógakennara,
út í Drangey til að njóta
náttúrunnar, hugleiða og
stunda jóga. Að sögn
Arnbjargar heppnaðist ferðin
vel í alla staði, enda Drangey
fullkominn staður fyrir jóga.
„Það örlaði aðeins á loft-
hræðslu hjá sumum á leiðinni
„Erfitt að mynda sér skoðanir á málinu“
Sameining heilbrigðisstofnana
Feykir leitaði eftir viðbrögðum sveitarstjóra
og oddvita í Austur-Húnavatnssýslu vegna
sameiningar heilbrigðisstofnana, sem m.a.
er fjallað um á forsíðu Feykis í dag. Þegar
blaðið fór í prentun höfðu einungis borist
svör frá oddvita Blönduósbæjar.
Að sögn Valgarðs Hilmarssonar, oddvita L
listans sem er í meirihluta á Blönduósi, hefur
mönnum þar fundist skorta á kynningu á
breytingunum og að lagðar hafi verið fram
áætlanir um þær, þannig að erfitt sé að mynda
sér skoðanir á málinu. „Sveitarstjórn Blöndu-
ósbæjar mun leggja áherslu á að þjónustan í
heilbrigðismálum muni ekki versna og telur
raunar vera verulega þörf fyrir að bæta hana.
Krafan er að grunnheilbrigðisþjónusta sé
veitt í heimabyggð, annars flyst verulegur
kostnaður og óþægindi yfir á íbúana,“ sagði
Valgarður í samtali við Feyki í vikunni. /KSE
upp, en það er líka góð upphitun
að hneigja sig aðeins fyrir
hugrekkinu og skora á sjálfan
sig. Það er líka gaman að komast
á svona fáfarinn stað að hugleiða
og gera eitthvað sem krefst
kyrrðar,“ sagði Arnbjörg í sam-
tali við Feyki og bætti því við að
það hefði verið dásamlegt að
enda ferðina í Grettislaug, þar
sem hún spilaði gong við
laugina.
Arnbjörg, sem er frá Ytri-
Brekkum í Blönduhlíð en nú
búsett á Akureyri, fór nýlega í
hvalaskoðunarferð frá Húsavík,
þá fyrstu sinnar tegundar, þar
sem jóga, gong og hvalaskoðun
er fléttað saman. Einnig stendur
fyrir dyrum helgarferð í Flatey á
Skjálfanda og þar sem svo vel
tókst til verður Drangeyjarferðin
líklega að árlegum viðburði.
Auk jógakennslunnar lauk hún
nýlega leiðsögunámi frá EHÍ og
hefur starfað við leiðsögn á
vegum SBA í sumar. /KSE
Jógaæfingar í stórbrotnu umhverfi í Drangey. Mynd: AKK
Árekstur á
Króksbrautinni
Skagafjörður
Árekstur á milli tveggja
bifreiða átti sér stað á
Króksbrautinni um helgina,
leiðinni á milli Varmahlíðar
og Sauðárkróks.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki urðu talsverðar
skemmdir á bílunum og
smávægileg meiðsl urðu á far-
þegum.
Fimm farþegar voru í öðrum
bílnum og einn í hinum og voru
þeir allir fluttir á sjúkrahús til
aðhlynningar. Að öðru leiti var
helgin róleg hjá lögreglunni á
Sauðárkróki. /GSG