Feykir - 16.07.2015, Síða 7
27/2015 7
Óli við eldhúsborðið á Ránarbraut. MYND: KSE
það datt engum í hug að spyrja
kýrnar, þær geta helst svarað
því, þær vilja það helst. Ég man
eftir því að það bar kvíga ein
hjá mér og það var svo mikill
stálmi í henni að spenarnir
voru eiginlega keilumyndaðir.
Ég ætlaði að handmjólka hana
fyrst en þá trylltist hún og stökk
upp. Mér datt í hug hvort hún
vildi virkilega láta mjólka sig
með vél. Það var að vísu vont
að koma vélina á hana, því ég
hefði helst þurft að halda undir
öll spenahylkin í einu, en þá stóð
hún líka eins og þúfa. Þá þóttist
hún vera kýr með kúm, stóð
eins og þúfa og fór að jórtra.
Kusugreyin vita sínu viti þó það
sé talað um nautheimsku,“ segir
Óli kíminn.
Nennti aldrei að
telja hrossin
Sjálfur var Óli með átta kýr
þegar mest var en í afleysingum
hjá öðrum bændum hirti hann
allt að fimmtán kýr. Ærnar
urðu mest 110 en á öðrum
bæjum fóðraði hann stundum
á fjórða hundrað. „Ég átti fjórar
merar einu sinni. Svo lenti ég í
afleysingum frammi í Vatnsdal
og þurfti að gefa þar rúllur. Ég
nennti aldrei að telja hrossin
en þau átu tvær rúllur upp til
agna á sólarhring. Ég segi að
heyskapinn í fangið aftur eins
og var hérna áður fyrr meðan
var bundið heima á hestum.
Það aleinasta sem var gott við
baggana var að það var þægilegt
að gefa þá. Stundum þegar
ég var að koma heim kl. 12 á
kvöldin, eftir löndun, og hafði
byrjað klukkan sex og átti eftir
að gefa kindunum, þá hefði ég
nú orðið rasssíður ef ég hefði
þurft að byrja á að leysa heyið,“
segir Óli. Rúllutæknin var að
ryðja sér til rúms þegar hann var
að hætta búskap og segist hann
hafa gefið rúllur þar sem hann
var við afleysingar. Aðeins þurfi
að ná snúningi og þurrka heyið
einn dag til þess að það verði
virkileg gott í rúllunum og þá er
jafn góð lykt af því eins og upp
úr flekknum. Ef það kemur ekki
gat á rúllurnar og tekst að verja
þær fyrir músum og fuglum,
en hrafnarnir hoppa á þeim og
stinga á þær göt.“
Hefði þegið að hafa
gíra á hjólinu
Óla verður tíðrætt um ýmsar
framfarir í þjóðfélaginu, svo
sem jarðgangnagerð. „Þvílíkur
munur að stinga sér ofan í
Hvalfjarðargöngin í staðinn
fyrir að paufast inn fyrir
allan fjörð, nú þarf að fara að
tvöfalda þau, það er svo mikil
umferð. Það var verst að það
var búið að finna upp aðferð til
að eyðileggja sveitaböllin, með
því að hengja löggæsluna um
hálsinn á félagsheimilunum,
áður en göngin komu, annars
hefði verið stanslaus umferð
allar helgar upp í Borgarfjörð.“
Þetta segir Óli eitt dæmi um að
landsbyggðin sitji ekki við sama
borð og höfuðborgarsvæðið.
„Þeir sem búa út á landi hafa
aldrei gert það. Eina sem við
megum gera og fáum að gera
ósvikið, er að borga skatta og
skyldur.“
Óli segir þó lítið hafa verið
um sveitaböll í sinni sveit en
rifjar upp að þinghús og skóli
hafi verið úti á Kálfshamarsnesi,
en áður en félagsheimili voru
fundin upp hafi þau heitið
þinghús. Óli gekk þó ekki í
skóla þar en hann var einn
vetur í skóla á Hofi og einnig
á Skagaströnd, í húsi þar sem
nú er kaffihúsið Bjarmanes.
Hann þurfti þó ekki að ganga í
skólann á Hofi: „Ég átti hér um
bil nothæft reiðhjól en það er
eitthvert hagnýtasta farartæki
sem til er, ég hefði þó þegið að
hafa gíra á hjólgarminum, eins
og er í dag. Reiðhjólið hefur allt
til síns ágætis, það getur borið
ótrúlega mikið með því afli sem
er til að drífa það og maður
kemst furðuhratt á hjólinu,“
segir Óli og talið berst að
yfirstandandi hringferð WOW
cyclhothon um landið. Þaðan
berst talið að samgöngum
almennt og segist Óli vilja sjá
þær breytingar á samgöngum
að þungaflutningar færist aftur
á könnu strandflutninga en
mannsskapurinn og pósturinn
verði flutt á bílum.
Þegar tími er kominn til að
kveðja segir Óli tímann líða
mun hraðar en í sínu ungdæmi.
„Það er voðalegur hvellur á
tímanum. Árið er liðið áður en
maður er búinn að læra nafnið á
ártalinu. Þegar ég var krakki þá
fannst mér tíminn helst ekkert
komast áfram. Maður þurfti að
bíða langa lengi eftir að eitthvað
gerðist, að það kæmi sumar eða
jól, eða heyskapur eða slíkt en
nú rýkur tíminn áfram.“
rúllutæknin sé það besta sem
hefur verið verið dregið út í
sveit síðan Torfi í Ólafsdal kom
með bakkaljáina.“ Óli segir að
rúllurnar hafi allt til síns ágætis.
„Í fyrsta lagi eru rúllurnar svo
þungar að það er útilokað fyrir
bændur að reiða þær á konunni
sinni eins og baggana. Þeir voru
heljarstökk aftur á bak og komið
niður á rassgatið, allt í einu
var maður kominn með allan
Óli starfaði í tuttugu ár við löndun. MYND: ÁRNI GEIR
Óli slær kirkjugarðinn á Skagaströnd. MYND: ÁRNI GEIR
Hafnar áframhaldandi
undanþágu vegna bensín-
geyma N1 í Varmahlíð
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
Heilbrigðisnefnd
Norðurlands vestra hafnaði
á fundi sínum í byrjun þessa
mánaðar málaleitan N1 um
undanþágu frá ákvæðum
reglugerðar 35/1994 fyrir
bensínstöð fyrirtækisins í
Varmahlíð.
Hafði fyrirtækið frest til 11.
júní til að gera úrbætur í
samræmi við reglugerðina en
virtist ekki hafa nýtt hann, að
því er fram kemur í fundar-
gerð.
Með bréfi dags. 15. júní var
síðan sótt um áframhaldandi
frest til 31. desember en því
hafnaði Heilbrigðisnefndin.
Boðar nefndin að beita 26. gr
laga nr. 7/1998 til þess að knýja
á um úrbætur. Verður
forráðamönnum N1 boðið að
tjá sig um málið í samræmi við
13. gr laga nr. 37/1993. /KSE