Feykir - 17.12.2015, Blaðsíða 2
2 Feykir 48/2015
Hitaveita í Húnaþingi
Síðastliðinn þriðjudag var
vatni hleypt á stofnlögn
Hitaveitu Húnaþings vestra,
frá dælustöð í landi Syðri-
Reykja að Brekkulæk í
Miðfirði.
Það var oddviti sveitar-
félagsins, Unnur Valborg
Hilmarsdóttir og fyrrverandi
oddviti, Brynjólfur Sveinbergs-
son, sem í sameiningu ræstu
dæluna en þann 2. desember
sl. voru 43 ár síðan Brynjólfur
ræsti dælu sem hleypti vatni á
fyrsta hús á Hvammstanga.
Nú þegar geta tólf bæir
tengst og næstu daga bætast
sjö í hópinn. Síðustu bæir í
Miðfirði, þar sem hitaveita
hefur verið lögð á árinu 2015,
ættu að hafa aðgang að heitu
vatni í lok janúar nk. Stefnt er
að því að hleypa á stofnlögn í
Hrútafirði fyrir árslok.
Samhliða lagningu dreifi-
kerfis hitaveitu var lagður
ljósleiðari í öll hús sem tengjast
hitaveitunni. Tengivinna fyrir
fyrsta hluta stendur yfir en
hann er frá Syðri-Reykjum að
Torfustöðum og yfir að
Skarfshóli að öllum bæjum
meðtöldum á lagnaleið hita-
veitunnar. /hunathing.is
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Forsíðumynd: Berglind Þorsteinsdóttir – nemendur í Árskóla á Lúsiuhátíð.
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
JÓLAHUGLEIÐING
Það sem raunverulega
skiptir máli
Hátíð ljóss og friðar er á næsta leiti. Á aðventunni verða flestir frekar
meyrir. Ég er ekki frá því að það megi sjá jafnvel hörðustu jaxla og
júffertur fella tár á þessum árstíma. Sjálf stend ég mig að því að
finnast allt aðeins krúttlegra en
vanalega, mér líkar við fleiri stöðu-
uppfærslur á samskiptamiðlum og
geri enn meira af því að hugsa til
þeirra sem minna mega sín.
Kannski er það ákveðin hræsni
að vera ekki alltaf meðvitaður um
það sem er verið að minna mann á í
jólaboðskapnum. Það er nú einu
sinni svo að búið er að velja hina
ýmsu daga ársins sem tileinkaðir
eru ákveðnum málum. Flest þeirra
dekkar boðskapur jólanna einn og
sér. Nægir að nefna sem dæmi Alþjóðlega mannréttindadaginn.
Það þarf varla að rekja það fyrir neinum að 27 manns var vísað úr
landi á þeim degi.
Ævinlega eru tvær hliðar, og oft fleiri, á öllum málum. En eigum
við virkilega engin úrræði þegar vísa þarf langveiku eins árs barni til
síns heimalands, þar sem öryggi þess og allrar fjölskyldunnar er
ógnað? Þarf kerfið að vera svona rúðustrikað og ferkantað þegar
kemur að velferðarmálum? Ég gæti skrifað heilan Feyki um óréttlæti
heimsins, enda mikill réttlætissinni. En ég læt mér nægja að taka
nærtækt dæmi úr síðasta blaði, viðtal við unga stúlku sem fær ekki
læknismeðferð erlendis af því að það samræmist ekki reglum
Siglinganefndar!
Að sjálfsögðu þurfa að vera reglur í samfélaginu, eins og ég
útskýrði oft á sínum tíma fyrir barnungum syni mínum. Sá hefði
reyndar kostað mig stórfé ef hann hefði fengið að ráða sér lögfræð-
ing í hvert sinn sem brotið var á honum, ýmist af okkur foreldrunum
eða samfélaginu, hvort sem það var með leiðinlegum námsgreinum
í grunnskóla eða takmörkuðu sjónvarpsáhorfi og tölvunotkun á
heimilinu. En reglur þurfa að vera þannig að hægt sé að skoða
einstök mál og bregðast við þeim. Það er ekki í mínu valdi að
gagnrýna einstaka starfsmenn Útlendingastofnunar, lögreglunnar,
ráðherra eða aðra sem að málum innflytjenda koma. En eigum við
virkilega engin ráð?
Þegar svona mál koma upp verður ýmislegt sem snýr að jóla-
undirbúningi hjóm eitt. Hverjum er ekki sama hvort servétturnar
eru íslensk hönnun eða ódýrasta gerðin úr „Rúmfó“? Eða hvað
jólagjafirnar kostuðu, hvort tókst að þurrka úr horninu innst hægra
megin í kústaskápnum eða klára sautján sortir af smákökum? Ég
man þá tíð þegar sparistellið var tekið út úr skápum og þvegið – fyrir
notkun. Sem betur fer erfði ég ekki þessa áráttu og mín jól hafa æ
minna með þrif að gera eftir því sem árin líða.
Hugur minn er hjá þeim sem eiga um sárt að binda af einhverjum
ástæðum. Þeim sem glíma við veikindi, liggja jafnvel á sjúkrahúsum
yfir hátíðarnar eða bíða úrræða vegna sjúkdóma, andlegra sem
líkamlegra. Þeim sem eiga vart í sig eða á en langar samt að halda jól
eins og okkur hin. Þeirra sem misst hafa einhvern nákominn eða
lent í áföllum af einhverju tagi.
Ég óska lesendum Feykis gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári og
þakka gefandi samskipti á árinu sem er að líða.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður
Á fimmtudaginn fyrir viku síðan
féll snjóflóð á lítið skýli í
Skarðsdal, á milli bæjanna
Skarðs og Veðramóts í
Gönguskörðum. Í skýlinu var
staðsettur töflu- og
stýribúnaður fyrir dælur á
vegum Skagafjarðarveita. Af
þeim sökum hafa veiturnar
ekki fengið kalt vatn úr þeim
tveimur borholum sem nýttar
hafa verið í Skarðsdalnum, fyrr
en í gær, þegar þær voru
ræstar á ný.
„Dælurnar í borholunum í
Skarðsdal eru aðeins gangsettar
yfir daginn, þegar notkunin er
sem mest. Holurnar gefa um 10
l/s sem er um 15 til 20% af
vatnsrennsli sem við höfum til
umráða. Almennir notendur
ættu ekki að verða varir við þetta
en stórnotendur hafa verið
beðnir um að spara vatnið á
meðan viðgerð stendur yfir,“
sagði Indriði Þór Einarsson,
sviðsstjóri veitu- og fram-
kvæmda-sviðs hjá Skagafjarðar-
veitum, í samtali við Feyki á
mánudaginn. /KSE
Snjóflóð féll á skýli Skagafjarðarveitna í Skarðsdal
Dæling hafin að nýju
úr borholunum
Stór áfangi
undirskriftir íbúa í framsveita
Skagafjarðar.
„Ég vildi sýna fram á hvað við
erum óánægð og hve við sjáum
eftir bankanum. Ég á ekki tölvu
og fer alltaf með öll mín viðskipti
í bankann. Ég veit að margir fleiri
hafa það þannig,“ útskýrir Inda.
Magnús Barðdal Reynisson
útibússtjóri á Sauðárkróki tók við
undirskriftalistanum og sagðist
ætla koma honum áleiðis til
höfuðstöðva. „Það er ánægjulegt
að sjá hversu margir bera hlýjan
hug til útibúsins. Þetta er útibú
sem er búið að vera þarna lengi,“
sagði hann. Skýringuna á lokun
útibúsins sagði hann vera þá að
verið sé að bregðast við breyt-
ingum á bankastarfsemi undan-
farinna ára. Fólk sé farið að sækja
meira í netbankana og appið og
smátt og smátt hefur fjarað
undan hefðbundnum afgreiðsl-
um. Verið er að nýta stöðugildin
með öðrum hætti.
„Við höfum reynt að vanda
okkur við þetta, haft samband við
aðila sem sækja þjónustuna í
útibúið, bæði gegnum símtöl og
bréfleiðis, og vorum með nám-
skeið til að kenna á sjálfs-
afgreiðsluvélina,“ segir Magnús.
Hann bætti við að Erna Geirs-
dóttir, starfsmaður Arion banka í
Varmahlíð, verði fyrstu vikurnar
í janúar til aðstoðar og að kenna á
sjálfsafgreiðsluvélina áður en hún
tekur til starfa á Sauðárkróki. /BÞ
Undirskriftasöfnun vegna lokunar Arion banka í Varmahlíð
233 mótmæla lokun útibúsins
Gleðileg jól!
Feykir óskar
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Næsti Feykir kemur út
7. janúar 2016 en hægt
verður að fylgjast með
Feyki.is, sem er alltaf
ferskur á netinu.
22. jólamót Molduxa í körfubolta verður haldið
annan í jólum, laugard. 26. des. í Íþróttahúsinu Skr.
Mótið verður sett með óvæntri uppákomu kl. 11:55
og fyrstu leikir flautaðir á stundvíslega kl. 12:00.
Keppt verður í opnum flokki, +35- og kvennaflokki.
Gjald á hvert lið er kr. 15.000,- og skal greitt fyrir fyrsta leik.
Skráning á netfangið pilli@simnet.is
og stendur fram að hádegi jóladags.
Upplýsingar á Fésbókarsíðu Molduxa og Molduxar.is.
Allur ágóði rennur óskiptur til körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Molduxar
Jólamót Molduxa
Inda Indriðadóttir, í
Lauftúni í
Skagafirði, afhenti
sl. þriðjudag
undirskriftalista í
mótmælaskyni við
lokun á útibúi Arion
banka í Varmahlíð.
Listinn hafði legið
frammi í Kaupfélagi
KS í Varmahlíð og á
Löngumýri í mánuð.
Alls söfnuðust 233
Inda Indriðadóttir afhendir Magnúsi Barðdal Reynis-
syni undirskriftalistann. MYND: BÞ
Sett í gang! MYND: ALDÍS OLGA