Feykir - 17.12.2015, Page 7
48/2015 Feykir 7
( LIÐIÐ MITT ) kristin@feykir.is
Ísak Óli Traustason > Liverpool FC
Sigur Smára á
Tindastóli stærsta
stundin á ferlinum
Skagfirðingurinn Ísak Óli
Traustason þekkir ekkert
annað en að vera „Poolari.“
Hann telur að liðið geti átt
erfitt uppdráttar á þessu
leiktímabili en sé þó á uppleið,
undir stjórn Klopps. Ísak Óli
hefur ekki farið á leik með
liðinu en það er klárlega á
döfinni hjá honum.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum? Liðið mitt í
enska boltanum er Liverpool. Ég
hef stutt þá frá því að ég man eftir
mér og þekki því ekkert annað en
að vera Poolari.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á
tímabilinu? Þetta verður erfitt, en
með góðum úrslitum í jólatörninni
á liðið ágætis möguleika að enda
í topp fjórum í vor.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í
dag? Nei, ég get ekki sagt það,
en þetta er allt í rétta átt. Klopp er
nýtekin við liðinu og hann á eftir
að ná góðum árangri með það í
framtíðinni.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Já, það hefur
gerst oft í gegn um tíðina, en
maður stendur alltaf með sínum
mönnum.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Steven Gerrard er
minn uppáhalds leikmaður hjá
klúbbnum fyrr og síðar.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Nei hef ekki gert það en
það er klárlega á döfinni.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já, treyjur, handklæði,
bolla, trefla, sængurver og margt
fleira.
Hvernig gengur að ala aðra fjöl-
skyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið? Ég er nú sá eini í
fjölskyldunni sem að hef einhvern
áhuga á þessu þannig að maður
hefur fengið að vera nokkuð í friði.
Maður verður samt að leyfa fólki
að ráða þessu sjálfu.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei, og
mun aldrei gera það.
Uppáhalds málsháttur? Hver er
sinnar gæfu smiður.
Einhver góð saga úr boltanum?
Það sem stendur upp úr hjá mér
er þegar að ég og liðfélagar mínir
í stórveldinu Smára unnum sigur
á grönnum okkar í Tindastól á
Smábæjarleiknum á Blönduósi.
Það var líklega stærsta stund á
mínum knattspyrnuferli.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið
fyrir? Ég er svo heppin að hafa
verið vakinn tvisvar sinnum
af æfingafélögum mínum í
frjálsunum með hávaða, látum
og tilheyrandi og í eitt skipti af
Ingva og Friðrik, félögum mínum.
Allir þessir gjörningar voru teknir
upp á myndband. Ég hef síðan
einnig tekið þátt í því að vekja í
hefndarskyni. Annars er lítið um
hrekkjalómagen hjá mér.
Spurning frá Bryndísi Rut: Hver
er draumaleikurinn? Liverpool –
Manchester United á Anfield.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum? Ingva
Rafn Ingvarsson.
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi? Hver er kóngurinn á
St James’ park?
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Öruggur sigur á kanalausum Grindvíkingum
Dominos-deildin: Grindavík - Tindastóll 77-100
Tindastólsmenn hafa
sjaldnast riðið feitum hesti úr
Grindavík en á því varð
breyting sl. fimmtudagskvöld.
Stólarnir unnu sannfærandi
sigur á kanalausum Suður-
nesjaköppum, voru 15 stigum
yfir í hálfleik og kláruðu
leikinn af öryggi, 77-100.
Lið Tindastóls var ekkert að
tvínóna við hlutina, strákarnir
spruttu af stað og komust í 0-8
og nýttu sér styrk sinn í teignum
afar vel í fyrsta leikhluta. Lewis,
Hill og Helgi Viggós voru þar
afgerandi en heimamenn
minnkuðu þó muninn í 19-21.
Að loknum fyrsta leikhluta var
staðan 20-26 eftir að Helgi
Margeirs hafði aðeins velgt
skotvopnið með einum þristi.
Hann bætti við tveimur
þristum snemma í öðrum leik-
hluta og kom Stólunum ellefu
stigum yfir, 25-36. Raunar
skelltu gestirnir í lás í vörninni á
löngum kafla því heimamenn
gerðu ekki stig í sex mínútur en á
meðan gerðu Stólarnir 16 stig.
Staðan breyttist semsagt úr 25-
30 í 25-46 og Tindastólsmenn
komnir með alla stjórn á
leiknum. Grindvíkingar voru þó
drjúgir síðustu mínútu leikhlut-
ans og staðan í hálfleik 33-48.
Addú datt loks í gang í
upphafi þriðja leikhluta en hann
skaut tómum múrsteinum allan
fyrri hálfleikinn. Tveir dýsætir
þristar á fyrstu mínútu leik-
hlutans gáfu Grindvíkingum til
kynna að Stólarnir voru ekkert
að fara slaka neitt á og staðan 56-
74 þegar fjórði leikhluti hófst.
Mesti móðurinn var nú úr
heimamönnum og Stólarnir
komust mest 29 stigum yfir, 68-
97, þegar Ingvi gerði einu körfu
sína í leiknum.
„Það er aðstöðumunur á
liðunum, þá vantar útlending.
En það er alltaf hættulegt að
koma inn í svoleiðis aðstæður,“
sagði Helgi Margeirs í viðtali við
Vísi.is að leik loknum og bætti
við: „Við spiluðum einfalt í
sókninni og vorum ákveðnir í
vörninni og þetta gekk vel upp.“
Hann segir að hlutirnir hafi
gengið ótrúlega vel eftir að Jou
Costa tók við af Pieti Poikola,
hann sé búinn að kveikja neista í
mönnum á ný. „Við erum á
fjórðu viku með honum og liðið
er orðið eins og það var í fyrra.
Nú verður ekki aftur snúið og
við erum á uppleið,“ sagði Helgi.
Darrel Lewis var með 24 stig
og átta fráköst en Jerome Hill
setti 19 stig og hirti 15 fráköst. Þá
voru bekkjarbræð-urnir Flake
og Helgi Margeirs öflugir, Flake
með 18 stig og átta fráköst en
Helgi gerði 15 stig, allt þriggja
stiga skot en hann var með fimm
af átta í nýtingu. Þá setti Hannes
niður tvö 3ja stiga skot á
lokamínútunum. Stólarnir hirtu
55 fráköst en Grindvíkingar 37
og þar lá hundurinn grafinn.
Stólarnir eru með 50%
árangur það sem af er móti,
fimm sigra og fimm töp. Í kvöld
mæta skólapiltarnir í FSu í
heimsókn en þeir hafa verið
sprækir upp á síðkastið. /ÓAB
Stig Tindastóls: Lewis 24, Hill 19, Flake
18, Helgi Margeirs 15, Helgi Viggós 8,
Arnþór 8, Hannes 6 og Ingvi 2.
Stuðningsmenn Stólanna hafa oft verið kátir í Síkinu í ár. MYND: ÓAB
Vikuna 6.–12. desember var tæpum 73 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað rúmum
25 tonnum á Hofsósi, tæpum 150 tonnum á Sauðárkróki og rúmum 9 tonnum á Hvammstanga.
Alls gera þetta um 258 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 6.–12. desember á Norðurlandi vestra
Málmey landaði 110 tonnum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Sæfari HU 200 Landb. lína 1.670
Ölli krókur GK 211 Landb. lína 282
Alls á Skagaströnd 73.689
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 25.206
Alls á Hofsósi 25.206
SAUÐÁRKRÓKUR
Klakkur SK 5 Botnvarpa 39.776
Málmey SK 1 Botnvarpa 109.976
Alls á Sauðárkróki 149.752
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 4.501
Harpa HU 4 Dragnót 4.585
Alls á Hvammstanga 9.086
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 9.078
Alda HU 112 Landb. lína 13.458
Bergur sterki HU 17 Landb. lína 3.224
Bogga í Vík HU 6 Landb. lína 5.423
Dagrún HU 121 Þorskanet 2.627
Guðmundur á Hópi Landb. lína 8.159
Óli á Stað GK 99 Lína 23.925
Stella GK 23 Landb. lína 5.843
Laugardaginn annan í jólum fer fram Jólamót
Molduxa í körfubolta í Íþróttahúsinu á Sauðár-
króki og er þetta í 22. skipti sem mótið fer fram.
Mótið verður sett með óvæntri uppákomu kl.
11:55 en síðan verða fyrstu leikir flautaðir á stund-
víslega kl. 12:00. Hægt er að skrá sig til leiks með því
að senda póst á pilli@simnet.is en skráning stendur
til hádegis á jóladegi. Upplýsingar má finna á Fés-
bókarsíðu Molduxa og á Molduxar.is. Allur ágóði
rennur til körfuknattleiksdeildar Tindastóls. /ÓAB
Allur ágóði rennur til Kkd. Tindastóls
Jólamót Molduxa