Feykir - 17.12.2015, Síða 20
20 Feykir 48/2015
Líkt og undanfarin ár
leitaði Feykir til
Spákvennanna hjá
Batnandi hagur með samvinnu eða sameiningu
Völvuspá – Spákonuarfs á Skagaströnd fyrir árið 2016
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Spákonuarfinum á Skagaströnd til þess að
skyggnast inn í komandi ár og varpa ljósi á
hvað árið 2016 ber í skauti sér.
Sem fyrr tóku þær afar vel í erindið og komu
saman í eina kvöldstund, lögðu spilin, litu í bolla,
kíktu í kristalkúluna, köstuðu rúnum og notuðu
öll tiltæk ráð til þess að sjá hvað kæmi upp.
Óhætt er að segja að þær konur hafi vakið
athygli fyrir hve sannspáar þær hafa reynst fram
til þessa og er því spennandi að sjá hvað þær
segja um árið 2016.
„Spáin okkar fyrir árið 2016 var gerð í
blíðskaparveðri og froststillu, e.t.v. boðar það að
árið framundan verði ekki eins vindasamt og
það sem er að líða og allir bara voða rólegir og
næs en vonandi verðum við þó ekki í skítakulda
og allt í biðstöðu.
En allavega var spáin gerð eftir bestu vitund
en skal tekin með fyrirvara, vonandi ykkur til
svolítillar skemmtunar,“ segja spákonurnar frá
Skagaströnd.
Landsmálin
Ef að blessaðir þingmennirnir fá að fara heim í jólagrautinn
þá taka þeir gott jólafrí, mæta svo í janúar vel útsofnir og
afslappaðir. Tíðindalítið til að byrja með en í mars verður
fitjað uppá breytingum sem fara illa í stjórnarandstöðuna.
Þeir telja lagt í áhættu í
fjármálum, sem má til
sanns vegar færa. Þetta
leysist þó farsællega og
öllum til hagsbóta. Í lok
þings á vordögum verður
tekist á um gjörning er
varðar verðtrygginguna og
bankana. Þessi mál hafa
legið í loftinu lengi. Net-
heimar tryllast og fjölmiðlar fara mikinn, allt virðist komið í
óefni. En að lokum tekst að fá botn í þetta og almennt
virðist sátt um niðurstöðuna.
Í spilunum koma upp tveir sterkir aðilar sem leiðandi
afl í stjórnmálunum og það mæðir mikið á þeim seinnipart
árs. Á haustþingi verður hver höndin upp á móti annarri,
sem er svo sem ekkert nýtt, og lítil samstaða þar til breytt
er um verklag á þingi. Það kostar mikla vinnu og fórnir. En
útkoman verður breytt og bætt vinnulag, eitthvað sem allir
telja að hafi verið löngu tímabært. Í lok árs fer ungur maður
að gera sig gildandi í stjórnmálum og telur sig hafa beðið
nógu lengi eftir frama á þeirri braut.
„...breytt verður um
verklag á þingi. Það
kostar mikla vinnu
og fórnir. En útkoman
verður breytt og bætt
vinnulag, eitthvað
sem allir telja að
hafi verið löngu
tímabært... “
Forsetinn - EM - Eurovision
Forsetakosningar eru á árinu og Ólafur Ragnar forseti vor
liggur undir feldi og stundar sjálfsskoðun. Á hann – á hann
ekki? Valið er ekki auðvelt,
en hann vill gjarnan halda
í embættið, og telur sig
nauðsynlegan þar, þjóðar-
innar vegna. Og hann mun
bjóða sig fram aftur. Úrslit kosninganna eru okkur hulin,
því fleiri vilja á Bessastaði. En karlmaður mun ríkja þar
næsta kjörtímabil.
Nú eru allir að verða voða spenntir fyrir EM í knattspyrnu
karla sem fram fer í Frakklandi í sumar. Ekki að undra þar
sem Ísland er nú með í fyrsta sinn. Búið er að draga í riðla
og því ákváðum við að líta í spilin hvernig fer. Vonandi
lætur enginn það eyðileggja fyrir sér stemminguna en
útkoman varð sú að Ísland vinnur Austurríki en tapar bæði
fyrir Portúgal og Ungverjum sem þýðir að við komumst alls
ekki upp úr riðlinum. Þá er bara að vona að spilin hafi verið
að stríða okkur og þetta sé tómt bull. Áfram Ísland.
Heldur sýnist okkur ganga betur hjá keppendum okkar
í Eurovision. Allt bendir til að við komumst áfram í
aðalkeppnina. En úrslitin verða á þann veg að við þurfum
ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þurfa að halda
þessa keppni að ári.
Veðurfar og
náttúruhamfarir
Uppúr áramótum kemur erfiður kafli í veðri, vika til tíu
dagar. Síðari hluti janúar úrkomulítill en nokkur
belgingur. Góan heilsar vel en kveður lakar, steytings
skratti.
Í upphafi útmánaðar verður slæmt veður, hríð og
leiðindi, blotar um miðjan mars og til skiptis frost og
þýða eftir jafndægur. Vorið skilar sér á „eðlilegum“
tíma og kveikir bjartsýni í brjóstum manna uppúr
sumarmálum, en í maíbyrjun hafa þær vonir gufað
upp. Gæti orðið erfiður sauðburðartími. Sólstöðumán-
uðurinn júní mun einkennast af úrkomu og hráslaga.
Júlí lítur vel út, hefst með hlýindum og verður
þokkaleg tíð allan mánuðinn. Ráðleggjum við því fólki
að taka sumarfrí þann mánuð ef einhver kostur er.
Allavega er ráðlegast að
halda sig heima við um
Verslunarmannahelgina
en að öðrum kosti búið
ykkur vel ef förinni er
heitið á útihátíð, takið
með auka tjaldhæla og
ekki gleyma ullarsokk-
unum. Annars lítur nú út
fyrir að restin af ágúst
verði svona þokkaleg.
Enn og aftur stefnir í
hrakviðri í september og lítið sést til sólar. Blautt og
kalt á gangnamönnum og gripum þeim er smala skal.
Eins verður með fyrrihluta október en svo batnar tíðin
og við sjáum fram á svolítinn sumarauka. Veturinn
tekur svo sannarlega öll völd í nóvemberhríð, kuldi og
hryssingur. Síðasti mánuður ársins frekar mildur til að
byrja með, síðan kólnar en meinhægt veður og allir
ættu að komast leiðar sinnar um jól og áramót.
Við óttumst eldsumbrot. Erfitt er að staðsetja
gosið en það mun verða seint á árinu. Spákúlan sýnir
svartan reykjarstrók svo við teljum að um öskugos
verði að ræða, þannig að vindátt og staðsetning
skipta miklu máli. Hafið gætur á Heklu.
Karlmaður mun
ríkja á Bessastöðum
næsta kjörtímabil.
Norðurland vestra
Hvað er í gangi? Jú, álverið allt í flækju, ekkert að gerast.
Það vantar ekki að nóg er nú rætt og skrafað um þetta
blessaða álver en eitthvað er alveg í hnút. Engu að síður
eru teikn á lofti um batnandi hag svæðisins en það helst í
hendur við einhverjar breytingar er lúta að samvinnu eða
sameiningu, sem taka verulega á en eru nauðsynlegar og
til hagsældar fyrir íbúa ef
vel tekst til. Einhverjir
samningar verða gerðir en
það þarf að gæta sín að
láta ekki glepjast af
gylliboðum.
Um mitt ár virðist sem upp komi einhver vandamál er
lúta að yfirstjórn svæðisins og ágætur lykilmaður í forystu
mun draga sig í hlé og breyta um starfsvettvang. Yngri
maður tekur við en stendur ekki undir væntingum. Birtist
okkur svo að lokum kvenmaður í spilunum sem tekur við
keflinu og undir hennar regimenti blómstrar svæðið ásamt
nýjum viðhorfum og nýrri sýn sem er öllum til góðs.
Jákvæðni er eitthvað sem við ættum að hafa sem oftast
meðferðis og best er að burðast með slatta af umburðar-
lyndi líka. Og ekki skaltu brosið spara og hafðu jafnvel tvö
til vara því brosið bjarta sem þú hefur er besta gjöfin sem
þú gefur. Neikvætt viðhorf er eins og sprungið dekk, þú
verður að skipta ef þú vilt komast áfram.
„Birtist okkur svo að
lokum kvenmaður í
spilunum sem tekur
við keflinu...“
„ Júlí lítur vel
út, hefst með
hlýindum
og verður
þokkaleg tíð
allan mánuðinn.
Ráðleggjum við
því fólki að taka
sumarfrí þann
mánuð...“
Gleðilegt nýtt ár fullt af jákvæðni,
brosum, gleði og frið. – Góðar stundir.