Feykir - 17.12.2015, Qupperneq 23
48/2015 Feykir 23
Kjóll sem María saumaði handa dóttur sinni, úr skyrtu. María er með mörg verk í gangi.
Sighvatur, sonur Maríu, prílar tröppurnar sem móðir hans smíðaði.
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Það er alltaf stutt í gleðina og glensið hjá Gunnari Rögnvaldssyni
á Löngumýri í Skagafirði. Hann er fæddur á Hrauni á Skaga árið
1967, sonur heiðurshjónanna Valda og Gillu. Gunni er gítareigandi
og er lunkinn að setja saman texta og syngja, oftar en ekki með
Jóni Halli Ingólfssyni. Nú á dögunum setti hann, í félagi við marga
fína tónlistarmenn í Skagafirði, á svið barnalagatónleikana Frá Ara
til Alladín í Miðgarði í Varmahlíð. Helsta afrek sitt á tónlistarsviðinu
segir hann þó vera að eiga helminginn í þremur músíkölskum
börnum, en það eru þau Jakob, Sigvaldi Helgi og Dagný.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Finn eitthvað áhugavert á öllum
áratugum, en varð mjög svag
fyrir Kim Larsen og Dire Straits á
uppgangsárum þeirra. Síðan eiga
allar þær íslensku sveitir sem leggja
metnað í góða textagerð uppá
pallborðið. Þar koma Stuðmenn og
Baggalútur t.d. við sögu. Hrærist
mikið í sönglögum af öllu tagi.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Af sérstökum ástæðum eru það
barnalög af ýmsum toga. En reyni
að fanga þau lög sem einfalt er að
spila á gítar og semja við heims-
ósómatexta gerist þess þörf. Þá
má ég til með að nefna Hund í
óskilum og Ljótu hálfvitana.
Hvers konar tónlist var hlustað á
á þínu heimili? Jahá. Útvarpsskil-
yrði voru óáreiðanleg á Hrauni,
rafveiturafmagn kom fyrst 1975,
tveir takmarkandi þættir. Að vísu
stóð gamli Listerinn vaktina á kvöldin
fram að því. Af einhverjum ástæðum
kemur mér því fyrst í huga jólamess-
an í útvarpinu á aðfangadagskvöld!
En þar til eldri bræður mínir eignuðust
plötuspilara og kasettutæki, að ég
tali nú ekki um þegar kom útvarp í
dráttarvélina, þá var það látið duga.
Plötusafn piltanna hafði svo að
geyma allt mögulegt. En voru ekki
safnplötur geysi vinsælar á þessum
árum? Svo maður gleymi nú ekki
Halla og Ladda og Ríó tríóinu... má
nefna ABBA?
Hver var fyrsta platan/diskur-
inn/kasettan/niðurhalið sem
þú keyptir þér? Ætli fyrsta
íslenska platan hafi ekki verið
með Ríó tríóinu og erlenda með
Tracy Ullman, en kasettan sem
var hlustað á í flækju var einhver
safngripur. Man best eftir Ragga
Bjarna og Jóni Bassa syngja Úti
í Hamborg. Fyrstu diskana keypti
ég í Þýskalandi um leið og fyrsta
spilarann. Dire Straits varð fyrir
valinu.
Hvaða græjur varstu þá með?
Finlux plötuspilari leysti af
hólmi kasettutæki í axlaról sem
bróðir minn átti. Fyrir fermingar-
peningana keypti ég svo einhverja
hálf vonlausa samstæðu hjá
Itta minnir mig. Síðar eignaðist
ég vasadiskó sem hálfpartinn
bjargaði lífi mínu eða a.m.k. mér
og félögum mínum frá því að verða
rændur að kvöldlagi á þjóðvegum
Kenía á annan í jólum fyrir þrjátíu
árum.
Hver var fyrsta platan sem þú
óskaðir þér í jólagjöf? Ómar
Ragnarsson var í miklu uppáhaldi.
Sveitaball og svo maður tali nú ekki
um Minkinn í hænsnakofanum.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir
þér daginn? Ég ætla ekki að
eyðileggja daginn með því að telja
þau upp...
Uppáhalds Júróvisjónlagið? All
Kinds Of Everything gleymist seint
frá fyrsta flutningi í sjónvarpinu.
„Man best eftir Ragga
Bjarna og Jóni Bassa
syngja Úti í Hamborg“
Gunnar Rögnvaldsson / gítar
Svo kom Húbba húlle, sérstaklega
vegna þess að hægt var að syngja
hástöfum í viðlaginu: „Binni Júlla,
Júlla, Júlla... og Bjarni Har.“
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græj-
unum til að koma öllum í stuð?
Slekk á græjunum og reyni mig við
söngkunnáttu viðstaddra.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? Fuglasöngur er alltaf
ljúfastur, að vísu árstíðabundinn
en þess utan fara Guðrún Gunn-
arsdóttir og Vilhálmur V vel með
hlustirnar.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella
þér á tónleika. Hvert færirðu, á
hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Ég leyfði börnunum að
ráða og fengi að fljóta með.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? Á enga slíka
drauma. Væri þó til í að kunna
svolítið á píanó og hafa eitthvað
af kyngimagnaðri kunnáttu Braga
Valdimars Skúlasonar Baggalúts
sem mun bera höfuð og herðar
yfir alla textasmiði næstu ára-
tugina, auk þess að vera slyngur
lagasmiður.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Money
For Nothing með Dire Straits.
Sex vinsælustu lögin á Play-
listanum þínum? Á ekkert
svoleiðis og get ekki gert uppá
milli þeirra laga sem ég flauta
oftast.