Feykir - 03.03.2016, Blaðsíða 1
BLS. 6–7
BLS. 10
Artemisia Bertus er í
knapakynningu
Var feiknasátt
eftir fjórganginn
BLS. 5
Magnús Ólafsson frá
Sveinsstöðum varð sjötugur á
dögunum og spjallar
nú við Feyki
„Eigum við að tala
um lífsgleðina?“
Sara Níelsdóttir er
ein hinna aðfluttu
Fannst sniðugt að
geta keypt riffil,
skyr og varalit í
sömu verslun
09
TBL
3. mars 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Eins og greint var frá í Feyki í síðustu
viku var stór hluti heimila í Skagafirði
rafmagnslaus í allt að sex
klukkustundir þriðjudaginn 23.
febrúar. Mælingar sem gerðar voru
aðfararnótt fimmtudagsins leiddu í
ljós að bilunin var ekki í spenni. Í
fréttatilkynningu sem Landsnet sendi
frá sér í gær segir að straumleysið hafi
orðið vegna skammhlaups til jarðar í
háspennulínunni milli Varmahlíðar og
Sauðárkróks. Ekki hefur verið hægt að
staðsetja bilunina nánar, enda hafa
engin ummerki fundist um hana.
„Erfiðlega gekk að koma rafmagni aftur á
Sauðárkrók þar sem bilun kom upp í
öðrum af tveimur 66 kV aflrofum í
tengivirkinu á staðnum, en viðgerð á
rofanum var lokið um kl. 16:45 og var
flutningskerfið þá komið aftur í eðlilegan
rekstur,“ segir í fréttatilkynningunni frá
Landsneti.
Eftir ítarlega skoðun á Sauðárkrókslínu
1, sem er 66 kV loftlína milli Varmahlíðar
og Sauðárkróks, hafa engin ummerki
fundist um bilunina og er nú talið að
skammhlaup til jarðar (jarðstraumur)
hafi valdið útleysingu en orsökin er
óþekkt. Áfram verður unnið að könnun á
frumorsök bilunarinnar og til öryggis
verður einnig farið yfir ástand hins
aflsrofans í spennistöð Rarik á Sauðár-
króki,“ segir ennfremur í fréttatilkynn-
ingunni frá Landsneti.
Aðfararnótt 25. febrúar voru gerðar
þrjár mismunandi einangrunar- og
ástandsmælingar á aflspenninum. Niður-
stöður þeirra allra voru að spennirinn er í
fullkomnu lagi og truflunin ætti því ekki
uppruna sinn í spenninum eða kerfi
Rarik. Umfang straumleysisins stafaði því
fyrst og fremst af því hve erfiðlega gekk að
spennusetja 66kV aflrofa Landsnets í
aðveitustöðinni, að því er fram kemur á
vefsíðu Rarik.
Á föstudaginn fundaði sveitarstjórn
Sveitarfélagsins Skagafjarðar með full-
trúum frá Rarik og Landsneti. Að sögn
Ástu Pálmadóttur sveitastjóra var farið
yfir það á fundinum hvað hefði gerst og
hver væru næstu skref. „Það er alveg ljóst
að við þurfum að gera eitthvað í okkar
málum og Rarik og Landsnet munu
fylgja því eftir. Þetta er auðvitað til-
finnanlegt tjón, sérstaklega fyrir fram-
leiðslufyrirtæki,“ sagði hún.
Ásta sagði jafnframt að annar spennir
hefði verið settur niður til vonar og vara.
Brugðist hefði verið við um miðjan
daginn með því að keyra fleiri vara-
aflsstöðvar og þær væru nú fjórar á
staðnum. „Um leið og Gönguskarðs-
ársvirkjun kemur inn verðum við með
meira öryggi, en það er ekki það sem við
erum að horfa á eingöngu. Það á að vinna
áfram að lausn, það eru allir meðvitaðir
um að þetta getur ekki gengið svona,“
sagði Ásta ennfremur. /KSE
Skammhlaup í háspennulínu reyndist orsökin
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Glæsilegt úrval á pier.is
Tilvalin
fermingargjöf
PAPASAN STÓLL
VERÐ 12.990,-
Stærð: D114xH60cm.
PAPASAN PULLA
VERÐ 9.990,-
Þessa skemmtilegu mynd fékk Feykir góðfúslega leyfi til að birta en á henni
eru samankomnir fimm ættliðir í beinan kvenlegg og eru mæðgurnar allar
búsettar í Skagafirði. Lengst til vinstri er Ásdís Kjartansdóttir á Melstað í
Óslandshlíð, þá Sigrún Þóra Ásgrímsdóttir frá Tjörnum í Sléttuhlíð, sem er 92
ára og nú búsett á Sauðárkróki. Hún heldur á Veroniku Þórðardóttur. Lengst til
hægri er Lovísa Heiðrún og við hlið hennar Guðný Kristín Loftsdóttir á Melstað.
Veronika, sem býr á Sauðárkróki, ásamt foreldrum sínum Lovísu Heiðrúnu og
Þórði Grétari Árnasyni, er fædd er 18. janúar sl. Að sögn móðurinnar er hún
afar vær og góð, eins og sjá mátti þegar þær mæðgur heimsóttu Feyki. Þess
má geta að Veronika verður skírð á laugardaginn og fær um leið millinafn
sem ekki verður upplýst hér. /KSE
MYND: KAMILLA RÁN
Rafmagnsleysið í Skagafirði 23. febrúar
35 ára
Fimm ættliðir í beinan kvenlegg í Skagafirði