Feykir - 06.04.2016, Blaðsíða 10
10 13/2016
Stórkostlegt
þrekvirki
Á mánudagskvöldið brá
undirrituð sér á lokasýningu
Rokkóperunnar Súperstar, sem
sett var á fjalirnar í Félags-
heimilinu á Hvammstanga.
Í stuttu máli sagt var ferðin
hvers kílómeters virði og
rúmlega það, enda sýningin
með því allra besta sem
undirrituð hefur séð í
áhugaleikhúsi. Leikstjórinn
segir í ávarpi í leikskrá að í
leikhúsi geti svo margt klikkað
að það sé í rauninni stórmerki-
legt að nokkurn tíma verði til
gott leikhús. En þarna klikkaði
ekkert og úr varð stórkostlegt
leikhús.
Rokkóperan Súperstar, eftir þá
Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice, átti 45 ára afmæli síðastliðið
haust, einmitt um það leyti sem
æfingar hófust á Hvammstanga.
Það er Sigurður Líndal Þórisson,
sem nýlega er fluttur heim eftir
um tuttugu ár starf við leikhús í
London, sem leikstýrir þessari
uppfærslu. Kom hann að verk-
efninu að Ingibjörg Jónsdóttir og
fleiri skipuleggjendur höfðu lagt
drög að uppfærslunni, en
undirbúningur hefur staðið lengi.
Í verkinu er textinn einkum
sóttur í Jóhannesarguðspjall
og er atburðarásin rakin
frá sjónarhóli
Júdasar sem er
aðal-
persónan í verkinu, ásamt Jesú
Kristi og Maríu Magdalenu, en
ástinni er fléttað inn í sögu-
þráðinn á þann veg að María þarf
að takast á við tilfinningar sínar
gagnvart Jesú. Íslenskun verksins
er eftir Hannes Örn Blandon og
Emelíu Baldursdóttur. Tuttugu
leikarar koma fram í sýningunni,
auk fimm manna hljómsveitar og
fjölmargra aðila á bak við tjöldin.
Með hlutverk Jesú fer Kristinn
Rúnar Víglundsson, Hrafnhildur
K. Jónsdóttir er í hlutverki Maríu
og Valdimar Gunnlaugsson í
hlutverki Júdasar. Öll skila þau
sínum hlutverkum frábærlega,
bæði leik og söng. Sama er að
segja um aðra sem stíga á svið,
söngurinn er fallegur og hver
hreyfing þaulæfð. Alveg magnað
hvað mikið er af hæfileikaríku
fólki í ekki stærra samfélagi. Það
var ekki laust við gæsahúð og
jafnvel nokkur tár á hvarmi í
áhrifamestu atriðunum en einnig
læddust fram stöku bros, ekki síst
þegar Tómas Örn Daníelsson
steig á svið í hlutverki Heródesar.
Dansarnir voru fallegir,
búningar vel
Söngleikurinn Superstar á Hvammstanga
stórkostlegu uppfærslu af
Súperstar, geta verið stoltir af sínu
framlagi um ókomna tíð. Ég
þakka fyrir frábæra kvöldstund í
Félagsheimilinu á Hvammstanga
og hlakka til að sjá hvað
samfélagsleikhúsið þar tekur sér
næst fyrir hendur.
Kristín S. Einarsdóttir,
blaðamaður
heppnaðir og einföld sviðs-
myndin þjónaði tilgangi sínum
vel. Þá fannst mér alveg frábært
að lagt skyldi vera í þá miklu
vinnu að hækka áhorfenda-
bekkina upp þannig allir sæju vel
yfir sviðið. Lýsingin var líka
skemmtileg og áhrifarík, ekki síst
í atriðinu þar sem Jesús er hýddur
með svipu og svo virðist sem blóð
hans leki um sviðið. Tónlistin
barst líka afar vel um salinn,
söngur og undirleikur skilaði sér
vel í eyru áhorfenda. Allt
myndaði þetta sannfærandi heild
sem hélt áhorfandanum föngnum
frá upphafi til enda. Og ekki var
verra að sýningin skyldi akkúrat
vera um páska, þannig að segja
má að maður hafi fengið boðskap
þeirra beint í æð.
Í leikskrá talar leikstjóri um
samfélagsleikshús, sem ekki er
einungis afsprengi samfélagsins,
heldur líka samfélaginu til góða:
„Samfélagsleikhús styrkir
samheldni. Samheldni býr til
sterkara samfélag; sterkara
samfélag býr til sterkara
samfélagsleikhús.“ Þetta eru orð
að sönnu og samfélagið á
Hvammstanga hefur svo
sannarlega búið til gott leikhús,
sem margir nutu góðs af, enda
uppselt á þær fjórar sýningar sem
auglýstar voru, sem og á þá
fimmtu sem bætt var við.
Allir þeir sem lagt hafa á sig
ómælda vinnu undanfarna
mánuði, til að koma á svið þessari
MYNDIR: KSE