Feykir - 06.07.2016, Blaðsíða 8
8 26/2016
Á Löngumýri í Skagafirði hefur í
áratugi verið boðið upp á
orlofsdvöl fyrir eldri borgara.
Dvölin er á vegum Eldriborgara-
ráðs Þjóðkirkjunnar og það er
Þórey Dögg Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri ráðsins, sem
hefur umsjón með henni.
Gestirnir og starfsfólkið eru
sammála um að það sé einstak-
lega gott að vera á Löngumýri,
þar sem aðstaðan og umhverfið
er til fyrirmyndar. Auðheyrt var
á dvalargestum sem blaðamaður
Feykis hitti í síðustu viku að þeir
eru ánægðir og að dvölin gefur
þeim mikið og er tilhlökkunar-
efni allt árið.
Þórey Dögg segir að upphaf
orlofsdvalarinnar megi rekja
aftur til ársins 1978, þegar
formlegt starf fyrir eldri borgara
í kirkjunum á höfuðborgar-
svæðinu hófst. Þá voru einstaka
áhugasamir prestar farnir að fara
með eldri borgara í styttri ferðir
sem þróaðist svo í átt að því
formi sem nú er á orlofsdvölinni,
sem nú hefur verið á Löngumýri
árum saman en var áður í
Skálholti. Ásamt Þóreyju Dögg,
sem er djákni, eru djáknanemi
og djáknakandídat með hverjum
hóp, auk starfsfólksins á Löngu-
mýri. Nefnir hún sérstaklega
hversu þakklát hún sé fólki sem
er tilbúið að koma og taka þrátt í
afþreyingu fyrir gestina, en
kvöldvökur eru á hverju kvöldi
og þá koma heimamenn gjarnan
með tónlistaratriði, fyrirlestra
eða slíka afþreyingu.
Þórey Dögg ítrekar að
orlofsdvölin sé í boði fyrir eldri
borgara um allt land, þó hingað
til hafi flestir gestanna komið úr
Reykjavík. „Við viljum bjóða
eldri borgunum upp á góða dvöl,
þar sem við erum að tryggja
þeim góða þjónustu andlega,
líkamlega og trúarlega. Mark-
hópurinn okkar er fólk sem á
ekki kost á að fara mikið í aðrar
ferðir, til dæmis af heilsu-
farsástæðum,“ segir hann hún.
Þrjú ár eru síðan Þórey Dögg
hóf störf og síðan hefur hún
unnið að því að kynna
orlofsdvölina. Nú er svo komið
að þrátt fyrir að hópunum hafi
fjölgað myndaðist biðlisti í ár.
Hún hefur einnig verið ötul við
að afla fjár til að niðurgreiða
dvölina, sem býðst þátttakendum
á kostnaðarverði, til að allir eigi
kost á að vera með, óháð fjárhag.
„Viss um að við lifum
á þessu allt árið“
Orlofsdvöl eldri borgara á Löngumýri
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
„Dásamlegt að vera hérna“
Hjónin Lilja Þorsteinsdóttir
og Ingi Bergvin Sigmarsson
úr Reykjavík voru að ljúka
annarri dvöl sinni á Löngu-
mýri þegar blaðamann bar
að garði. „Við vorum hérna í
fyrra og líkaði afskaplega vel,
þess vegna erum við komin
hingað aftur,“ segja þau.
„Það er alveg dásamlegt að
vera hérna,“ segir Ingi og Lilja
bætir við að sér finnist alltaf
fallegt og gaman að koma í
Skagafjörðinn. „Þjónustufólkið
er alveg dýrlegt og það fólk
sem stendur að þessu alveg
frábært. Það stjanar við mann,“
segja þau. Þau hjónin segja
jafnframt að starfið sé fjöl-
breytt og félagsskapurinn mjög
góður. „Það styður hver annan
ef eitthvað er, við erum 27
hérna í einu,“ segir Lilja.
Ingi Bergvin segir blaða-
manni frá ferð til Akureyrar í
blíðskaparveðri og er ánægður
með að hafa komist í sínar
æskuslóðir í Eyjafirði. Lilja er
hins vegar úr Vestamanna-
eyjum. „Hann kom á vertíð,“
segir hún brosandi þegar
blaðamaður innir þau eftir
hvar leiðir þeirra lágu saman.
Að lokum segjast þau ætla að
nota tækifærið og heimsækja
vinafólk í Skagafirði, áður en
þau halda heim á leið með
strætó.
Lilja Þorsteinsdóttir og Ingi Bergvin Sigmarsson,
búsett í Reykjavík
Kærleikur, elska og góðvild
Karen Lísa Guðmundsdóttir
var að koma á Löngumýri í
fyrsta sinn og segist hafa
komið fyrir hvatningu vin-
konu sinnar, sem kynntist
Þóreyju Dögg þegar hún
starfaði í Fella- og Hóla-
kirkju, og hafði frétt af
orlofsdvölinni. Sjálf hefur
Karen Lísa verið virk í
félagsstarfi Neskirkju.
„Þetta er alveg yndislegt sam-
vera hérna, umhverfið og allt
hérna er svo yndislegt og gott
og stúlkurnar sem eru hérna
með okkur. Þær gera okkur
eins gott og mögulegt er,“ segir
Karen Lísa. „Þetta er einn
kærleikur, elska og góðvild.
Hér eru allir eins og ein
fjölskylda Ég finn líka fyrir
miklum frið og kærleik hérna
inni, sem fylgir oft þar sem
Guðs orð er haft um hönd,“
segir hún.
Karen Lísa segist hafa verið
virk í barnastarfi KFUK hérna
áður fyrr. Henni finnst hún
komin aftur til þeirra ára og
segir morgunstundirnar, þar
sem m.a. eru sungnir fallegir
barnasálmar ánægjulegar.
Hún er orðin ekkja og segist fá
mikla tilbreytingu og ánægju
út úr dvölinni. Það sé gott að
komast í þessa dvöl á sumrin,
þegar mikið af félagsstarfi eldri
borgara liggur niðri. Dvölina
segir hún hafa liðið mjög fljótt
og segist ætla að sækja um
aftur á næsta ári. „Ég er viss
um að við lifum á þessu þegar
við komum heim, lengi á
eftir,“ segir hún að lokum.
Karen Lísa Guðmundsdóttir, búsett í Reykjavík
„Væri ekki búin að koma svona oft
ef það væri ekki gott að vera hér“
Guðný Erla, sem jafnan er
kölluð Erla, var í sinni sjö-
undu orlofsdvöl á Löngu-
mýri í síðustu viku. „Mér
líkar mjög vel, ég væri ekki
búin að fara svona oft ef það
væri ekki gott að vera hér,“
segir hún.
„Fyrst kom ég með mágkonu
minni en nú getur hún ekki
farið lengur, síðan kom ég með
vinkonum en ég er búin að vera
ein í herbergi fjórum sinnum.
Erla bjó lengi í Grindavík og
hefur verið ekkja í tíu ár. Hún
segist fara í dagvistun aldraðra
á Þorraseli við Vesturgötu í
Reykjavík þrisvar í viku. „Þar
erum við að sauma og prjóna.
Ég var líka í leshópi, útskurði og
kór eldri borgara, en það er
komið í sumarfrí.“ Hún segist
hafa kynnst mörgum á Löngu-
mýri og hitt ýmsa sem hún
þekkti í þessari dvöl, þó hún
hafi ekki vitað af þeim fyrir.
„Mér líkar mjög vel hérna og
þjónustan er góð,“ segir hún að
lokum.
Guðný Erla Jónsdóttir, búsett í Reykjavík
Fjölmennt og góðmennt á Löngumýri. MYNIRD: KSE