Feykir - 06.07.2016, Blaðsíða 10
10 26/2016
Vel lukkað Landsmót hestamanna að baki
Það er ekki hægt að segja að
veðrið hafi leikið við lands-
mótsgesti á laugardag en
stemningin var þrusugóð og
boðið uppá hörkuspennandi
keppni. „Þetta gekk gríðar-
lega vel, frábær hópur sem
gerði þetta mögulegt, bæði í
aðdraganda mótsins og á
meðan á því stóð og frábærir
gestir. Frábær umgengni,
gleði hjá gestum og svæðið
sannaði sig sem glæsilegt
hátíðarsvæði. Hólar eru
þjóðarleikvangur íslenska
hestsins!“ sagði Áskell Heiðar
Ásgeirsson framkvæmdastjóri
Landsmótsins í samtali við
Feyki.
Af helstu úrslitum er að segja að
Hrannar frá Flugumýri II sigraði
A-flokk gæðinga, setinn af
Eyrúnu Ýr Pálsdóttur og kepptu
þau fyrir Skagfirðing. Þau hlutu
9,16 í einkunn. Nökkvi frá
Syðra-Skörðugili skákaði Loka
frá Selfossi og sigraði B-flokkinn
með 9,21. Jakob Svavar Sigurðs-
son sat Nökkva. Konráð Valur
Sveinsson sigraði 100m skeiðið á
Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á
besta tíma ársins í heiminum til
þessa, 7,42.
Gústaf Ásgeir Hinriksson úr
Fáki er Landsmótssigurvegari í
ungmennaflokki á hestinum
Pósti frá Litla-Dal með einkunn-
ina 8,88. Hafþór Hreiðar Birgis-
son úr Spretti sigraði unglinga-
flokkinn á Villimey frá
Hafnarfirði og hlutu þau 8,82 í
einkunn. Kristján Árni Birgis-
son er Landsmótssigurvegari í
barnaflokki á Sjens frá Bringu
með 8,95 í einkunn.
Árni Björn Pálsson á Stormi
frá Herríðarhóli sigraði Lands-
mótstöltið en sigur þeirra var
nokkuð öruggur og hlutu þeir
9,22 í aðaleinkunn. Bjarni
Bjarnason setti heimsmet í 250m
skeiði og fór sprettinn á Heru frá
Þóroddsstöðum á tímanum
21,41 sek., fyrra heimsmet var
21,49 sek. Árni Björn Pálsson á
Korku frá Steinnesi var fljótastur
að renna 150 metrana á skeiði,
13,86 sekúndur.
Arður frá Brautarholti hlaut
Sleipnisbikarinn en hann er
veittur þeim stóðhesti sem
hlýtur heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi og fyrsta sætið. Fimm
stóðhestar hlutu 1. verðlaun fyrir
afkvæmi; Seiður frá Flugumýri
II, Spuni frá Vesturkoti, Álf-
finnur frá Syðri-Gegnishólum,
Grunur frá Oddhóli, Kjerúlf frá
Kollaleiru.
Fleiri fréttir af Landsmóti má
finna á Feykir.is /BÞ
Æsispenna í skeiðkeppni á fimmtudeginum. MYND: ÓAB
„Svæðið sannaði
sig sem glæsilegt
hátíðarsvæði“
Barnabörn Sveins Guðmundssonar, Svala, Anna Lóa og Sveinn, afhjúpuðu minnis-
varða er reistur var til heiðurs afa þeirra. MYND: BG
Sigurbjörn Bárðarson fór mikinn að venju. MYND: ÓAB Troðfull mönin á lokakvöldi Landsmóts. MYND: ÓAB
Fánareið við setningu LM 2016. MYND: MARTINA GATES Magnús Magnússon var mættur. MYND: ÓAB
Frá verðlaunaafhendingu. MYND: MARTINA GATES Hestur og stúlka. MYND: MARTINA GATES
Séð yfir mótssvæðið sl. miðvikudag.
MYND: PIB