Feykir


Feykir - 19.10.2016, Síða 1

Feykir - 19.10.2016, Síða 1
FERSKUR Á NETINU Feykir.is Hvað er að frétta? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is „ BLS. 4–9 BLS. 11 Haldið upp á 90 ára afmæli Glaumbæjarkirkju „Að rækta sam- félagið og njóta stundarinnar“ BLS.7 Oddvitar framboðanna í Norðvesturkjördæmi svara spurningum Feykis Kosið til Alþingis 29. október Jón og Steinunn eru matgæðingar vikunnar Bóndinn duglegur að elda villibráð 39 TBL 19. október 2016 36. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. 35 ára Árbækur Ferðafélags Íslands Gjöf til allra félagsmanna Kaupfélags Skagfirðinga Höfundur Árbóka um Skagafjörð, Páll Sigurðsson, var ánægður með framtak Kaupfélagsins en hér er hann annar frá vinstri. Honum á vinstri hönd er Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri en til endanna, Sveinn Sigfússon t.v. og Snorri Evertsson t.h., en þeir munu á næstu vikum keyra um Skagafjörð og afhenda félagsmönnum þessa höfðinglegu gjöf. MYNDIR: PF Síðastliðinn föstudag var haldin samkoma í Kjarnanum á Sauðárkróki í tilefni þess að Kaupfélag Skagfirðinga hyggst færa öllum félagsmönnum sínum þrjár Árbækur Ferðafélags Íslands. Bækurnar fjalla allar um Skagafjörð og voru gefnar út hver á sínu árinu, 2012, ´14 og ´16. Fyrsta bókin fjallar um Skagafjörð vestan Vatna og heitir Frá Skagatá að Jökli en hinar tvær austan Vatna, Frá Jökli að Furðuströndum og Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Til samkomunnar voru boðnir deildar- stjórar Kaupfélagsins sem formlega tóku við fyrstu eintökum bókanna. Þeim er haganlega komið fyrir í viðhafnaröskju sem skartar m.a. fallegum myndum úr firðinum. Bókunum verður dreift til félagsmanna, sem telja rúmlega þúsund manns, en þeir Snorri Evertsson, fyrr- um samlagsstjóri og Sveinn Sigfússon, fyrrum verslunarstjóri á Eyri, sjá um það verk. Viðstaddur afhendinguna var höfundur bókanna, Króksarinn Páll Sigurðsson prófessor. Sagði hann það vera góða tilhugsun að vita til þess að bækurnar yrðu varðveittar saman á flestum heimilum Skagafjarðar. Sagði hann að gaman hefði verið að skrifa um sitt heimahérað en það hafi alls ekki verið auðvelt. „Árbókahöfundar er dauðhræddir við að setja vitlaus örnefni inn og þá er við ægilegan þjóðflokk að ræða sem eru heimamenn,“ sagði Páll og bætti við að þeir væru ekki alltaf árennilegir. En slíkt kom ekki upp núna að sögn Páls. Í máli Þórólfs Gíslasonar kaup- félagsstjóra kom fram að upp hefði komið sú hugmynd að leita eftir samkomulagi við Ferðafélagið að þegar að útgáfu þriðju bókarinnar kæmi yrði félagsmönnum færðar þær allar að gjöf í tilefni af 125 ára afmæli félagsins. Taldi hann að vel væri að þessu staðið enda mikilvægt að félagsmenn hafi aðgang að upplýsingum og yfirlit yfir héraðið á einum stað. Bækurnar telja yfir 700 blaðsíður, með fjölda mynda og eru allar hinar glæsilegustu. /PF Árbækurnar þrjár um Skagafjörð eru hinar veglegustu. x2016

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.