Feykir


Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 2

Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 2
2 39/2016 Í Kastljósi í byrjun vikunnar mættust þau Björt Ólafsdóttir og Brynjar Níelsson og ræddu m.a. um „hrútskýringar“. Það, ásamt ýmsu öðru, leiddi huga minn að því hvort ég væri hér í Skagafirði stödd í mekka karlmennskunnar. Nú kann að vera að ég móðgi einhverja lesendur með kaldhæðinni kímnigáfu minni og alhæfingu um heilt hérað og íbúa þess, en vonandi leiðir það ekki til rýrnunar á áskrifendalista blaðsins. Fyrir hátt í fimm árum var ég stödd á kennaraþingi hér í Skagafirði, ásamt fyrrum vinnufélögum í Grunnskólanum á Hólmavík. Um kvöldið var boðið upp á afurðir skagfirsku Matar- kistunnar og höndlað með öl frá bjórbændum víða um land. Á boðstólum voru einnig heima- tilbúin skemmtiatriði, semsagt, ekta skagfirsk skemmtun. Ef ég man rétt hallaði heldur á konur í kynjakvóta þeirra sem fram komu, þrátt fyrir að skólar séu annálaðir kvennavinnustaðir. Þegar líða fór á skemmtidagskrána hnippti sessu- nautur minn og fyrrum vinnu- félagi, sem er karlkyns femínisti – já, þeir eru til – í mig og benti mér á að það kynni að vera viðskipta- tækifæri að flytjast hingað norður og taka að sér nýsköpum í skemmtanaiðnaði. Rök hans voru þau að skemmtiatriðin ein- kenndust af gríni þar sem hefðbundnar staðalmyndir kynjanna væru í hávegum hafðar, nokkuð sem hann taldi tilheyra síðustu öld. Ekki legg ég dóm á það, enda óvíða skemmtilegra að skemmta sér en í Skagafirði. Og þó að ég tæki hest minn og hnakk skömmu síðar og flytti norður, þá var það nú í allt öðrum tilgangi en að reyna að vera fyndin í samkeppni við söngelska og góðglaða skemmtikrafta Skagfirðinga. Það örlar þó á því að ég hafi velt fyrir mér spurningu þeirri sem varpað var fram hér í byrjun. Í Ferðabók Eggerts og Bjarna er látið að því liggja að Skag- firðingar séu hneigðir til ferðalaga og prangs, einkum hestaprangs en að vinna heima að búum sínum og bitni sá búskussaháttur á konum þeirra og börnum. Ennfremur að þeir séu rígmontnir, drykkfelldir og áflogagjarnir. En skýringin á þessum ummælum ferðabókahöfunda kann að liggja í því að í fornöld hafi þeir verið taldir djarfir menn, sem unnu mjög frelsi sínu og vernduðu það dyggilega. Karlakórar, hrútadómar, hestamennska og framsóknar- mennska eru stór partur af ímynd svæðisins. Raunar er það svo að flest eru þessi hugðarefni einnig orðin kvennasport í seinni tíð, nema ef vera skyldi karlakórarnir, þeir eru hugsanlega síðasta vígi karlmennskunnar í Skagafirði. Og það má ef til vill verja á hetjulegan hátt, líkt og þegar Þórir Jökull varðist eftir að kirkjugrið voru á honum rofin og hann höggvin á Miklabæ að undirlagi Gissurar Þorvaldssonar. Sem kunnugt er varðist hann vel og karlmannlega við dauða sínum, þannig að síðan er í minnum haft, „ok kvað vísu þessa, áðr en hann lagðist undir höggit.“ Upp skalt á kjöl klífa, köld es sjávar drífa, kostaðu hug þinn herða, hér muntu lifit verða. Skafl beygjattu, skalli, þótt skúr á þig falli, ást hafðir þú meyja, eitt sinn skal hver deyja. Kristin Sigurrós Einarsdóttir, kvenremba með kvefpest. Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdótti, kristin@feykir.is & 867 3164 Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum LEIÐARI Mekka karlmennskunnar? Finni kom færandi hendi í Veiðisafnið Glæsileg gjöf til Veiðisafnsins á Stokkseyri Hinn landskunni veiðimaður Sigurfinnur Jónsson frá Sauðár- króki hefur ánafnað Veiðisafn- inu á Stokkseyri persónulega muni ásamt Beretta haglabyssu sem hann notaði til veiða í fjölda mörg ár. Páll Reynisson safnstjóri Veiðisafnsins segir um höfð- inglega gjöf að ræða en þessir munir hafa verið í sýningu á Veiðisafninu um nokkurn tíma. Vart þarf að kynna Sigurfinn veiðimann enda löngu lands- þekktur af sínum veiðum og má nefna að hann hefur gengið til rjúpna í 70 ár og haldið veiðibækur alla sína tíð. „Gjöf Sigurfinns inniheldur m.a. ljósmyndir, dagbók, skotapakka og skinn af forláta villisvíni sem hann veiddi í Póllandi ásamt hleðslutækjum Hæsta fermetraverðið á Sauðárkróki Skýrsla Íslandsbanka um fasteignamarkaðinn Í skýrslu Íslandsbanka um íbúðamarkaðinn, sem bankinn birti á mánudag, er fjallað um íbúðamarkaðinn í hverjum landhluta. Samkvæmt skýrslunni er íbúðaverð hæst í Sveitarfélaginu Skagafirði, en þar hefur fermetraverðið verið að meðaltali 162 þúsund krónur fyrstu níu mánuði þessa árs. Þá eiga nærri 60% af íbúðaviðskiptum í landshlut- anum sér stað í sveitarfélaginu. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að í fyrra hafi meðal- fermetraverð á Norðurlandi vestra verið lægst á Blönduósi og ef gert sé ráð fyrir sömu verðþróun þar og í lands- hlutanum í heild fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs þá sé meðalfermetraverð á Blönduósi um 100 þúsund krónur. Aðeins tólf kaupsamningar voru gerðir á Blönduósi á árinu 2015, sem nemur þó um 12% af öllum íbúðaviðskiptum í landshlut- anum. Tekið er fram í skýrslunni að opinber gögn Þjóðskrár nái einungis til Skagafjarðar og Blönduóss og því sé ekki frekara niðurbrot eftir bæjum á Norðurlandi vestra í boði. Samkvæmt skýrslunni eru dýr- ustu íbúðirnar í landshlutanum á bilinu 70–110m2. Fermetrinn í slíkum íbúðum kostaði að meðaltali um 153 þúsund krónur á fyrstu níu mánuðum ársins 2016. Skýrsluna í heild má nálgast vef Íslandsbanka en hún ber yfirskriftina Íslenskur íbúðamarkaður. /KSE Vikuna 9. - 15. október var tæpum 560 tonnum landað á Skagaströnd og ríflega 60 tonnum á Hofsósi. Tæpum 322 tonnum var landað á Sauðárkróki. Engar aflatölur bárust frá Hvammstanga. Alls gera þetta um 952 tonn á Norðurlandi vestra. Það hefur því aflast vel í haustblíðunni undanfarna daga. /KSE Aflatölur 9.–15. október á Norðurlandi vestra Aflast vel í blíðunni SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKAGASTRÖND Alda HU 112 Landb. lína 14.512 Arnar HU 1 Botnvarpa 428.968 Auður HU 94 Handfæri 778 Dísa HU 91 Botnvarpa 875 Dúddi Gísla GK 48 Lína 9.182 Guðbjörg SH 45 Landb.lína 14.517 Guðmundur á Hópi Landb.lína 6.860 Hafrún HU 12 Dragnót 6.951 Hjördís HU 16 Handfæri 1.929 Íslandsbersi HU 113 Landb.lína 4.086 Kristinn SH 812 Landb.lína 36.177 Stella GK 23 Landb.lína 3.180 Særif SH 25 Landb.lína 31.638 Alls á Skagaströnd 559.653 SAUÐÁRKRÓKUR Dagur SK 17 Rækjuvarpa 13.192 Fannar SK 11 3.582 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 1.455 Klakkur SK 5 Botnvarpa 103.683 Málmey SK 1 Botnvarpa 178.732 Þorleifur EA 88 Dragnót 21.235 Alls á Sauðárkróki 321.879 HOFSÓS Bíldsey SH 65 Lína 29.346 Þorleifur EA 88 Dragnót 31.072 Samtals 60.418 auk Beretta haglabyssu, tví- hleypa af bestu gerð ásamt eintaki af bókinni Háspenna lífshætta sem um hann var rituð fyrir nokkrum árum og Árni Gunnarsson skráði. Stjórn Veiðisafnsins þakkar Sigurfinni fyrir þessa höfðinglegu gjöf og eru munirnir nú til sýnis í öðrum af sýningarsölum safns- ins,“ segir Páll. /PF Sigurfinnur Jónsson og Páll Reynisson safnstjóri á Veiðisafninu. MYND: VEIÐISAFNIÐ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.