Feykir


Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 6

Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 6
6 39/2016 Árið 1985 keyptu foreldrar mínir, Jón Snæbjörnsson og Ólöf M. Ólafsdóttir, litla jörð í austanverðum Skagafirði, Lónkot í Sléttuhlíð. Þá var ég þriggja ára. Öll sumur síðan var farið norður í sveitina góðu. Pabbi var á grásleppu nokkur vor og verkaði, við veiddum silung fyrir utan kambinn sem pabbi svo taðreykti í gamla súrheysturninum. Oft fór ég með mömmu í æðarvarpið þar sem hún hirti úr hreiðrum og sagði mér sögur á meðan. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Foreldrar mínir komu á fót ferðaþjónustu árið 1991 með gistingu í gömlu útihúsunum og síðar veitingastað og bar 1995. Bróðir minn, Ólafur Örn, lagði ómælda vinnu í allt á staðnum og er það m.a. fyrir hans tilstuðlan að minnisvarði um Sölva Helgason (1820-1895) var reistur sama ár og veitingastaðurinn opnaði. Þar á veggjum eru margar úrvals eftirprentanir af verkum Sölva. Árið 2012 tókum við systkinin okkur til og unnum að endurbótum í gistihúsunum og veitingastaðnum. Mamma hafði það ætíð að leiðarljósi í sinni matseld að unnið yrði með og úr því sem yxi og veiddist í nærumhverfinu. Það breytist aldrei. Síðast liðið vor tókum ég og maðurinn minn við rekstri Lónkots og fluttum norður í kjölfarið. Við stefnum að frekari endurbótum og áframhaldandi þjónustu á staðnum. Lónkot er yndislega falleg jörð með dásamlegu útsýni til eyja fjarðarins fagra sem við erum heppin og glöð með að geta gert fleirum kleift að njóta. - - - - - - Júlía Þórunn skorar á Svavar Knút tónlistarmann frá Skálá að skrifa næsta pistil. Júlía Þórunn Jónsdóttir Lónkoti Skagafirði Þar sem hjartað slær ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN palli@feykir.is Gaman að vera í Gautaborg eftir EM Feykir hafði upp á Pálma Þór Valgeirssyni til að spyrja hann út í dag í lífi brottflutts Króksara en Pálmi býr nú í Gautaborg í Svíþjóð ásamt eiginkonu sinni, Gunnhildi Jódísi Ísaksdóttur. Foreldrar hans eru Valgeir Kárason og Guðbjörg Pálmadóttir. Pálmi sinnir stöðu tæknistjóra og forritara hjá Angling iQ ásamt því að stunda nám í hugbúnaðarverkfræði við Chalmers University of Technology. Hvenær og hvernig kom það til að þú fórst til viðkomandi lands? Það hafði alltaf verið planið að fara erlendis í meistaranám. Við sóttum bæði um á nokkrum stöðum og að lokum stóð valið á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Svíþjóðar. Að lokum var það eitthvað gut feeling sem að varð til þess að við völdum Gautaborg og erum við mjög ánægð með þá ákvörðun. Hvernig myndir þú lýsa venjulegum degi hjá ykkur? Eftir að Gunnhildur hóf störf hjá Volvo Penta þá höfum við þurft að rífa okkur í gang fyrr en áður þar sem að Svíar eru meira og minna A týpur. Svo við erum að vakna og koma okkur af stað milli 6:30 og 7:15, hendum í smoothie sem við grípum með okkur og borðum í vinnunni / skólanum. Þar sem að það er mikil nestismenning hér í Svíþjóð þá erum við yfirleitt með nesti með okkur sem við hitum í hádeginu, hvort sem það er í skóla eða vinnu. Hver er hápunktur dagsins? Mikill dagamunur á því. Það er alltaf næs að koma heim eftir erfiða æfingu, borða góðan mat og hafa það notalegt. Einnig er alltaf léttir að klára að gefa út nýja útgáfu af appinu okkar, Angling iQ og skila af sér verkefni í skólanum. En síðustu daga hefur það líklega verið að klára allar skyldur, setjast fyrir framan sjónvarpið og spila Fifa 17. Hvað er best við að búa í þínu nýja landi? Erfitt að benda á eitthvað eitt. Það er heilt yfir betra veður hérna, meiri kaup- máttur og fjölbreyttari tækifæri á atvinnumarkaðinum. Eftir að hafa notað strætókerfið í Reykjavík í sumar þá áttaði ég mig á því hversu mikið betri Pálmi Þór og Gunnhildur Jódís fyrir utan íbúðina sína. MYND: ÚR EINKASAFNI almenningssamgöngurnar eru hérna. Að lokum er hægt að fá utanlandsferðir út á meginland Evrópu á mjög hagstæðu verði sem er snilld. Fólkið hér er mjög vinalegt og sérstaklega gaman að vera Íslendingur hérna eftir EM. Fór á pósthúsið um daginn og þegar að afgreiðslumaðurinn sá að ég var „..son“ þá spurði hann um leið hvort ég væri Íslending- ur. Svo hrósaði hann okkur fyrir að vera skemmtilegasta liðið með skemmtilegustu stuðnings- mennina á mótinu og vitnaði í víkingaklappið. En tók samt fram að þeir ættu nú smá í árangrinum, þökk sé Lagerbäck. Hvað gerir þú helst í frístund- um? Ég spila fótbolta með litlu liði hér í Gautaborg og æfi Crossfit. Annars er það bara spil með vinum, Fifa með félögunum og kíkja í bæinn á kaffihús eða jafnvel afterwork. Á vorin höf- um við verið dugleg að keyra um og skoða bæina í kring og svo reynum við að heimsækja vini okkar í nærliggjandi borgum frekar reglulega. Hvers saknar þú/þið mest að heiman? Fyrst og fremst eru það fjölskylda og vinir en sem betur fer getur maður verið í góðu sambandi í gegnum Skype og slíkt. En svo eru nokkrir hlutir sem maður sleppir ekki þegar maður kemur til landsins, aðallega matarkyns. Harðfisk- urinn, lambakjötið, eðalskyndi- ( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is Pálmi Þór Valgeirsson / tæknistjóri og nemi / Króksari í Gautaborg 1. Hversu lengi ertu í kjörbúðina frá heimili þínu? Eina til tvær mínútur í hverfisbúðina. 2. Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina með öllu? Kebab, Thai eða Korv (sem er pylsa). 3. Hvað kostar mjólkurlítr- inn? Svona 7–11 SEK sem er 93-150 krónur. 4. Hver er skrítnasti mat- urinn? Surströmming lík- legast.* 5. Hvert ferðu til að gera vel við þig? Út að borða eða á kaffihús/bar með vinum. * síld sem er lát in gerj ast í viðartunn um í nokkra mánuði og síðar komið fyrir í niður- suðudós um þar sem gerj un in held ur áfram. Dósin bólgnar þá út, en þegar hún er opnuð gýs upp fnyk ur sem þykir minna á rot in egg. 5 á 15 sekúndum ríkistjórnina og verðtryggð lán. Gætir þú deilt einhverri snið- ugri eða eftirminnilegri sögu frá dvöl þinni erlendis? Við fluttum á nýjan stað hér í Gautaborg fyrir um ári síðan. Íbúðin var í vægast sagt slæmu ástandi og vorum við nokkra daga að koma okkur vel fyrir, þrífa, mála, setja upp myndir og slíkt. Einn daginn erum við búin að vera að ansi lengi og áttum okkur ekki á að klukkan er orðin rúmlega ellefu og ég enn að bora í veggina. Þá bankar upp á hjá okkur stelpan úr næstu íbúð (á náttsloppnum) og byrjar að tala á sænsku um að þetta sé sko ekki ásættanlegt. Ég skildi hana ekki nógu vel og bað hana því að tala ensku og afsakaði mig og sagði að þetta kæmi nú ekki fyrir aftur. Daginn eftir bankar hún aftur uppá, talar aðeins ensku í þetta skiptið, og vildi nú taka það fram að hún væri ekki fúl við okkur. Hún var hrædd um að hún hefði litið út eins og einhver leiðindapúki og vildi bara afsaka sig ef svo væri. Svo spjöllum við í smástund og kynnum okkur, allt á ensku eins og áður sagði. En svo þegar ég tek fram að ég vinni fjarvinnu frá Íslandi þá segir hún um leið: „Eruð þið íslensk!?“. Síðan þá höfum við verið góðir vinir íslenska parsins sem býr í næstu íbúð. biti einsog Búllan, Pizzur sem eru ekki kebabpizzur og fleira mætti nefna. Ætli maður sakni svo ekki minnst rökræðna um

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.