Feykir - 19.10.2016, Qupperneq 7
39/2016 7
„Að rækta sam-
félagið og njóta
stundarinnar“
Glaumbæjarkirkja 90 ára
Hann var þétt setinn bekkurinn
í Glaumbæjarkirkju á
sunnudaginn þegar haldið var
uppá níutíu ára afmæli
kirkjunnar með hátíðar-
guðsþjónustu og kaffisamsæti á
eftir. Biskup Íslands, frú Agnes
M. Sigurðardóttir, predikaði en
sóknarpresturinn sr. Gísli
Gunnarsson þjónaði fyrir altari
ásamt öðrum prestum héraðs-
ins. Kirkjukór Glaumbæjar- og
Reynistaðasókna söng undir
stjórn Stefáns Gíslasonar.
Biskupinn þakkaði söfnuðinum
fyrir þá miklu alúð sem hann
hefur sýnt kirkjunni í gegnum
tíðina með störfum sínum en
gríðarmikið sjálfboðastarf hefur
að jafnaði verið unnið við
fjármögnun og framkvæmd
vegna viðhalds á henni og
garðinum. Þá nefndi hún gildi
þess að hafa svo öflugt kirkju-
starf með öllum þeim viðvikum
sem þarf að inna af hendi við
utanumhald þess. Biskupinn
færði svo öllum börnunum að
gjöf lítinn kross með mynd af
Upsakristi og útskýrði fyrir þeim
tákn krossins í okkar trúar-
iðkun.
Í veislu sem sóknarnefndin
bauð til á Löngumýri að messu
lokinni rakti formaður sóknar-
nefndar, Björg Baldursdóttir í
Hátúni, þær endurbætur sem
gerðar hafa verið og framundan
eru við kirkjuna. Á liðnu sumri
var girðing milli kirkjugarðs og
bílaplans rifin, en myndarlegur
torfveggur hlaðinn upp í hennar
stað. Næsta verkefni er að færa
kirkjuna í upprunalegt horf að
utan með því að fjarlægja
járnklæðningu og gera við
múrinn þar undir. Kallaði hún
eftir vinnufúsum höndum þegar
verkið hæfist.
Björg gat þess og hve
prestakallinu héldist vel á
kennimönnum þar sem þeir
Glaumbæjarfeðgar, sr. Gunnar
og Gísli, hafa setið samtals í
rúmlega sjötíu ár af þeim
níutíu sem kirkjan hefur
staðið eða frá 1943. Tveir
kórmeðlima, þau Ragn-
heiður á Marbæli og Ólafur
á Grófargili, héldu svo
snjallar tölur um veru sína í
kórnum, en Ragnheiður
byrjaði 1969 þegar Jón á
Hafsteinssstöðum boðaði
hana á æfingu, setti við
hlið Línu í Hátúni og
Guðrúnar á Halldórsstöð-
um og sagði henni að
„syngja eins og þær“.
Óli greindi frá messu-
söngsuppeldi sínu hjá Hjálmari
heitnum á Tunguhálsi og þótti
því veruleg afturför þegar þrótt-
miklum tenórtrillum í messu-
svörunum og þreföldu ameni var
skipt út fyrir einfaldari útgáfu
skömmu eftir inngöngu hans í
Glaumbæjarkórinn.
Gestir gengu svo út í milt
haustlognið með þá áminningu
Bjargar í kollinum að
safnaðarstarf, hvaða nafni
sem það nefnist, er
mikilvægt okkar daglega
lífi til að rækta samfélagið
og njóta „stundarinnar."
TEXTI & MYNDIR
Gunnar Rögnvaldsson