Feykir - 19.10.2016, Síða 10
10 39/2016
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Rauðir og bláir boltar á þeytingi
Íslandsmóti í Boccia
Knattspyrnudeild Tindastóls
Það var mikið um að vera í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki um helgina en Gróska, íþrótta-
félag fatlaðra í Skagafirði, í samvinnu við
Íþróttasamband fatlaðra stóð þá fyrir
Íslandsmóti í Boccia einstaklingskeppni.
Þetta er í fjórða sinn sem haldið er svona mót á
Sauðárkróki, það fyrsta árið 1999, svo 2004,
2013 og nú þetta. Um 200 keppendur voru
skráðir í sex deildum og Bc flokkar með og án
hjálpartækja. Dómgæsla var í höndum
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar og hins nýja
Kiwanisklúbbs, Freyju, sem stofnaður var á
Sauðárkróki fyrir skömmu. Það var
Lionsklúbburinn Víðarr sem gefur öll verðlaun
á mótinu. /PF
Gríðarleg pressa á Stólunum
Dominosdeildin í körfubolta :: Tindastóll – Þór Akureyri 94-82
„Þarna mætti liðið sem við
reiknuðum með í byrjun,“ segir
Ingólfur Jón Geirsson stjórnar-
maður í körfuknattleiksdeild
Tindastóls eftir góðan sigur
Stólanna á grönnum sínum Þór
frá Akureyri 94-82 á Sauðár-
króki sl. fimmtudagskvöld.
Mamadou Samb var stiga-
hæstur Stóla með 25 stig,
Pétur Rúnar Birgisson 20 og
Cristopher Caird setti 16 stig.
Pape Seck annar Senegalanna
í liðinu lék í tæpar 16 mínútur í
gær og skoraði 11 stig.
Það voru gestirnir sem opnuðu
markareikninginn þegar Darrel
Lewis setti 2 stig á fyrrum félaga
sína en forystunni héldu þeir
aðeins í tæpa tvær mínútur.
Stólarnir voru ákveðnir í að gera
betur en í síðasta leik og gekk
það eftir þó þeir næðu aldrei að
hrista Þórsarana af sér fyrr en í
lokin. Leikurinn var jafn og
spennandi allt fram að 33.
mínútu þegar heimamönnum
tókst að síga framúr eftir að
staðan var jöfn 69-69 og
lönduðu góðum sigri 94-82.
Staðan eftir fyrsta fjórðung var
19:16, annan fjórðung 48:44 og
svo þriðja 66:65.
Helgi Freyr Margeirsson
segir úrslit leiksins vera mikinn
létti þar sem gríðarleg pressa
hafi verið á liðinu. „Liðið ætlaði
klárlega að gera betur en á móti
KR enda var hann slæmur frá
A-Ö af okkar hendi. Við komust
aldrei í takt við þann leik,“ segir
Helgi og viðurkennir að það
hafi verið ákveðið stress fyrir
þennan leik. Bæði hafi
væntingarnar verið miklar til
liðsins í haust og fallið þ.a.l. hátt
eftir fyrsta leik og menn ætluðu
sér ekki að gera sömu mistök
aftur.
Sérstaka athygli vakti svo-
kallaður Hakadans en þar voru
á ferðinni Nýsjálendingar sem
starfa á sláturhúsi KS. Óhætt er
að segja að þeir hafi slegið í
gegn með atriði sínu og gefið
aukakraft inn á völlinn en ekki
síður í áhorfendastúkuna. /PF
Þeir voru flottir nýsjálensku Hakadansararnir fyrir fyrsta heimaleik Stólanna.
MYND: HJALTI ÁRNA.
Það var líf og fjör á Íslandsmótinu í boccia um helgina.
MYND: PF
Anna Karen Hjartardóttir á
Sauðárkróki, er ung og efnileg
íþróttakona sem gerði það
gott á golfvellinum í sumar
og sigraði á hverju mótinu
af öðru og krækti m.a. í
Norðurlandsmeistaratitil. Hún
er af árgangi 2005, dóttir
Katrínar Gylfadóttur og Hjartar
Geirmundssonar. Anna Karen er
íþróttagarpur Feykis að þessu
sinni.
Íþróttagreinar: Golf, frjálsar
íþróttir og körfubolti.
Íþróttafélag/félög: Golfklúbbur
Sauðárkróks og Tindastóll.
Helstu íþróttaafrek: Norðurlands-
meistari í golfi undanfarin tvö ár í
flokki 12 ára og yngri.
Skemmtilegasta augnablikið:
Þegar ég varð fyrst Norðurlands-
meistari.
Neyðarlegasta atvikið: Ég skaut
kúlunni einu sinni aftur fyrir mig í
golfi.
Einhver sérviska eða hjátrú? Er
alltaf með lítinn bangsa festan á
golfsettinu mínu.
Uppáhalds íþróttamaður? Arnar
Geir og Elvar Ingi bræður mínir.
Tiger Woods og Stephen Curry.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og í
hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? Tiger Woods í golfi að
sjálfsögðu.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? Þetta yrði jöfn og skemmti-
leg viðureign en ég myndi vinna á
18. holu með löngu pútti.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? Að syngja á nokkrum
tónleikum með afa Geirmundi.
Lífsmottó: Alltaf að reyna að gera
mitt besta.
Helsta fyrirmynd í lífinu: Mamma
og pabbi. Af því þau eru svo dugleg
að styðja mig í öllu sem ég geri.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? Æfa körfubolta og frjálsar
íþróttir af kappi. Golfið er í fríi fram
yfir áramót. Einnig er ég að læra á
gítar í tónlistarskólanum.
Hvað er framundan? Keppnis-
ferðir í körfunni.
Anna Karen Hjartardóttir
Æfir körfubolta og
frjálsar íþróttir af kappi
(GARPURINN ) palli@nyprent.is
Anna Karen með golfkylfuna. MYND: ÚR EINKASAFNI
Nýir menn í framkvæmda-
stjórn og í þjálfun
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur náð
samkomulagi við Christopher Harrington
um að hann taki að sér þjálfun 4. flokks
karla og kvenna, 3. flokks karla og
aðstoðar- og fitness þjálfari 3.fl. kvenna
ásamt fleiri verkefnum hjá deildinni.
Gitzy (eins og hann er oftast kallaður)
mun hefja störf 1. nóvember nk. og á
Fésbókarsíðu deildarinnar segir að hann
sé vel menntaður þjálfari með UEFA B
þjálfaragráðu, NSCAA NATIONAL
DIPLOMA, NSCAA Director Of
Coaching Diploma, FAI Kickstart 1&2
auk IFA safeguarding. Þá hafi hann
þjálfað Memphis City í NPSL deildinni
til sigurs í deildarkeppninni í fyrsta sinn
í sögu félagsins.
Þá hefur Hrannar Leifsson verið
ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar Tindastóls og yfirþjálfari yngri
flokka félagsins. Hrannar er með B.S.
gráðu í íþrótta- og heilsufræði auk
UEFA B gráðu og KSÍ 5 þjálfaragráðu.
Hann mun þjálfa yngstu flokka félagsins
og tekur til starfa 1. nóvember.
„Þetta er gríðarlega stórt skref í
áframhaldandi uppbyggingu yngri
flokka ásamt bættri aðstöðu til knatt-
spyrnuiðkunar með nýjum gervigrasvelli
sem er væntanlegur innan tíðar,“ segir á
stuðningsmannasíðu félagsins. Þeir fél-
agar eru boðnir velkomnir í Skaga-
fjörðinn. /PF
Gitzy hrannar