Feykir - 03.06.2010, Side 3
21/2010 Feykir 3
Gerið Feykir.is að upphafssíðu!
Fréttir, fróðleikur og fáránlegar upplýsingar
Fallega hugsað og fallega gert
Tónleikar til styrktar
Júlíusi á Tjörn
Styrktartónleikar verða
haldnir n.k. laugardag 5.
júní, kl. 20:30 í
félagsheimilinu Ásbyrgi þar
sem allur ágóði mun renna
til Júlíusar Más
Baldurssonar ræktanda
landnámshænunnar.
Eins og menn muna brunnu
útihúsin á Tjörn sem hýstu
hænur og öll tæki og búnaður
til kaldra kola. Tjónið var mikið
og ljóst að uppbygging verður
dýr þó eitthvað fáist út úr
tryggingum.
Það er heimafólk sem mun
skemmta á tónleikunum því
við erum svo rík af tónlistarfólki,
segir á Norðanáttinni.
Miðaverð er kr. 1500,- en
líka er hægt að styrkja land-
námshænuna á styrktar-
reikningi kt. 011260-2259 í
banka 1105-15-200235.
-Fallega hugsað og fallega
gert þegar fólk styður við hvort
annað eftir óhöpp í lífinu, sagði
Júlíus við Feyki.is og biður fyrir
góðar kveðjur til allra.
Meirihlutaviðræður í Skagafirði
Hlé á meirihlutaviðræðum
– VG næstir í röðinni?
Í hádeginu í gær gerðu
Framsóknarmenn í
Skagafirði hlé á
meirihlutaviðræðum við
Samfylkinguna á meðan þeir
gera tilraun til þess að ná
saman við önnur framboð.
Að sögn Grétu Sjafnar
Guðmundsdóttur var um hlé
að ræða en hún vildi ekki tjá
sig um ástæðu þess að
flokkarnir náðu ekki saman.
Samkvæmt öðrum heim-
ildum Feykis strönduðu við-
ræðurnar á hvort fara ætti af
stað með byggingu Árskóla
eður ei en Framsóknarmenn
fóru fram með tillögu þess
efnis undir lok kjörtímabilsins
en nutu þá ekki stuðnings
samstarfsflokks síns, Sam-
fylkingarinnar.
Rauði Krossinn
Duglegir tombólustrákar
Atli Dagur Stefánsson, Kristófer H. Kjerúlf, Hákon Magnús Hjaltalín og Matthías
Rúnarsson ásamt Gunnari Jóhannssyni, formanni Rauða krossins í Skagafirði
Námskeið
fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva
og ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
Mánudaginn 7. júní 2010
á Hótel Varmahlíð kl. 10:00-16:00.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki upplýsingamiðstöðva og
starfsfólki ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi vestra.
Þátttökugjald er kr. 3.600,-. Innifalið í þátttökugjaldi eru öll
námskeiðsgögn og veitingar.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Guðrúnu Brynleifsdóttur
í síma 455 6000 / 898 9820 og á netfangið
gudrunb@skagafjordur.is
Allar skráningar þurfa að liggja fyrir
í síðasta lagi sunnudaginn 6. júní nk.
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
Nánari upplýsingar á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is og í síma 568-2929.
m
ag
g
i@
12
o
g
3.
is
-2
48
.1
33
Ungmennafélag
Íslands starfrækir
frjálsíþróttaskóla
víðsvegar í sumar
fyrir ungmenni 11
til 18 ára.
VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
Nemendur
í vélstjórn
Getum bætt við okkur nemendun í C- og
D-réttindanám (3. og 4. stig) í vélstjórn.
Bjóðum upp á glæsilega heimavist.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans www.vma.is
og hjá áfangastjórum í síma 4640300.
Einnig má senda fyrirspurnir
á netfangið vma@vma.is
Skólameistari
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Stefán Vagn Stefánsson,
oddviti Framsóknarmanna
staðfesti við Feyki að hlé hefði
verið gert á viðræðum. -Við
munum ræða við alla flokka,
segir Stefán Vagn og væntanlega
munum við byrja á VG. En við
ætlum að ræða við alla flokka
og meta framhaldið út frá því.
Frambjóðendurnir Jón Magnússon og Stefán Vagn Stefánsson spjalla saman í
höfuðstöðvum Feykis fyrir kosningar.
Það voru fjörugir drengir sem
mættu á lokagrill Rauða
krossins í Skagafirði nú á
dögunum til þess að fagna
afrakstri sínum, en þeir
söfnuðu 12.692 krónum til
styrktar Rauða krossinum.
Rauði krossinn í Skagafirði
þakkar þeim kærlega fyrir
gott framtak