Feykir


Feykir - 03.06.2010, Blaðsíða 5

Feykir - 03.06.2010, Blaðsíða 5
21/2010 Feykir 5 Frjálslyndir og óháðir vilja þakka fyrir einstaklega hlýjar móttökur í kosninga- baráttunni og sömuleiðis mótframbjóðendum fyrir nær undantekningalausa drengilega baráttu. Liðlega tíundi hver kjósandi taldi dýrmætu atkvæði sínu best varið í að kjósa F-listann. Við sem skipum framvarðar- sveitina í Frjálslyndum munum kappkosta að endurgjalda traustið með vinnusemi og málefnalegum málflutningi í störfum okkar til að efla héraðið. Frjálslyndir leggja mikla áherslu á að Sveitarfélagið Skagafjörður fari varlega í stórframkvæmdir og frekari skuldasöfnun, sem Framsókn- arflokkurinn hefur boðað. Meirihluti Framsóknar og Samfylkingar hélt velli í ný- afstöðnum kosningum en það hefur orðið algjör endurnýjun á fulltrúum Framsóknar- flokksins í sveitarstjórninni. Það er von okkar í Frjálslyndum og óháðum að nýir sveitar- stjórnarfulltrúar fari rækilega yfir fjárhagslegar forsendur fyrirhugaðra stórframkvæmda áður en íbúum verður steypt í enn frekari skuldir. Það hlýtur að vera sanngjörn og eðlileg krafa að sjá til lands í því hver raunverulegur kostnaður verður við glæsilega leikskóla- byggingu áður en ráðist verður í frekari stórframkvæmdir. Í ágætri greinargerð Guð- Frjálslyndir og óháðir þakka traustið AÐSENT EFNI Sigurjón Þórðarson F-lista skrifar mundar Guðlaugssonar sveit- arstjóra frá 18. maí sl. var klykkt út með þeim varnaðarorðum að á viðsjárverðum tímum sem nú ríkja væri rík nauðsyn á að fara ítarlega yfir allar rekstrar- forsendur og fyrirhugaðar framkvæmdir. Hrunið hefur kallað á breytt vinnubrögð og lýðræðislegar endurbætur og nú er óskandi að ný sveitarstjórn svari kallinu um samvinnu og uppbyggilegt samstarf í stjórnmálum. Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins Með tilkomu endur- skoðunar kjarasamninga árið 2005 var farið af stað með verkefni sem kallast Þitt val – Þín leið, Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað. Um er að ræða samstarfsverkefni Menntamálaráðuneytisins, Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins, Samtaka Atvinnulífsins, ASÍ og símenntunarmiðstöðva um landið. Náms- og starfsráðgjafar á símenntunarmiðstöðvum um land allt hafa farið á vinnustaði til að vekja athygli á þessu verkefni, en erfitt hefur reynst að ná til sjómanna. Sólrún Bergþórsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Vestmanna- eyjum fékk þá hugmynd að hægt væri að ná til sjómanna með því að setja kynningu á verkefninu á mynddisk sem yrði sýndur um borð í bátunum. Hún hefur undanfarið unnið að þessu verkefni og er kynningin nú tilbúin. Sjómennt styrkti þetta verkefni ásamt Fræðslumiðstöð Atvinnulífs- ins, LÍÚ og Visku- Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vest- mannaeyja. Í þessari kynningu er vakin athygli sjómanna á ókeypis ráðgjöf sem þeim stendur til boða um nám og störf. Á Norðurlandi vestra er það Farskólinn – miðstöð símennt- unar á Norðurlandi vestra sem býður þessa ráðgjöf. Jafnframt er um að ræða hvatningu til sjómanna um að huga að sínum starfsferli, staldra við og skoða námsmöguleika. Á disknum er að finna almennar upplýsingar um út á hvað náms- og starfsráðgjöf gengur. Þá eru viðtöl við sjómenn sem hafa farið í nám samhliða störfum sínum. Þar segja þeir frá sínum kringumstæðum, hvernig námið hafi gengið og stöðu sinni í dag. Fræðslusjóð- ur sjómanna, Sjómennt, er kynntur og upplýsingar veittar um staðsetningu símenntunar- miðstöðva um landið þannig að sjómenn ættu að geta pantað ráðgjöf hvar sem þeir landa hverju sinni. Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hefur tekið að sér að dreifa disknum í alla stærri báta og togara á svæðinu og er það verkefni að hefjast. Einnig er stefnt að því að bjóða sjómönnum á smærri bátum á Þitt val – Þín leið Náms- og starfsráðgjöf fyrir sjómenn AÐSENT EFNI Margrét Björk Arnardóttir skrifar kynningu í landi. Áhugasamir geta einnig horft á vefútgáfu af kynningunni á http://viskave. is/. Það er von mín að þessi kynning verði til þess að sjómenn nýti sér tilboð um ráðgjöf og skoði þá náms- möguleika sem eru í boði því þegar allt kemur til alls þá er starfið eitt af mikilvægustu þáttum í lífi hvers manns og því vert að huga vel að því. Með bestu kveðju, Margrét Björk Arnardóttir Náms- og starfsráðgjafi Farskólanum – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra margret@farskolinn.is, www. farskolinn.is s. 455-6010 ( MITT LIÐ ) Nafn: Sævar Örn Hafsteinsson. Heimili: Reynimel. Starf: Sölustjóri. Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Manchester United. Mjög tapsár að eðlisfari þannig að það kemur sér einstaklega vel að halda með Rauðu djöflunum, kemur svo sjaldan fyrir að þeir tapi. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já undanfarin ár... það er svo mikið að Púllurum í kringum mann.. Hef reyndar lítið heyrt í þeim tala um fótbolta undanfarin 5 ár eða svo og þar á undan var það í kringum 1980 og eitthvað, þegar þeir unnu síðast Ensku deildina ;) Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Mjög erfitt val... langar að segja Roy Keane en Wayne Rooney hefur líklega vinninginn, klárlega bestur í heimi, krafturinn og hæfileikarnir eru aðdáunarverðir og svo skemmir ekki keppnisskapið... maðurinn hreinlega hatar að tapa og annaðhvert orð hjá honum er f**k off Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Skammarlegt að segja frá því en, nei við feðgarnir höfum lengi verið að plana ferð saman á leik en styrkleiki krónunar frestaði því eitthvað um sinn. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Bara þetta helsta boli, trefla, stuttbuxur, húfur og þess háttar. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Kærastan er lítið fyrir fótbolta en mundi sjálfsagt segjast halda með Man.Utd bara fyrir kærastann ;) enda hin fullkomna kærasta þar á fer sem gengur nú þessa dagana með okkar fyrsta barn sem er strákur. Það þarf ekkert að spyrja að því að þar er á ferðinni eldheitur Man.Utd stuðningsmaður, enda á maður að ala börnin sín upp sem sigurvegara ;) Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Já fór úr Glóðafeyki í Man.Utd Uppáhalds málsháttur? -Allt er hey í harðindum nema hey babí lúla she´s my Baby, og sjaldan er ein báran stök í 12 vindstigum. Einhver góð saga úr boltanum? -Uppáhalds sagan úr boltanum var að sjálfsögðu 1999 á móti Bayern Munich, Teddi og Solskjær. En tilburðir Johns Terry í Moskvu þegar hann rann á rassgatið og skaut í stöng og tveimur spyrnum síðar varði Van Der Sar og Man.Utd Evrópumeistarar, priceless. Annars yljar það manni alltaf um hjartaræturnar þegar maður sér myndbrotið af því þegar Garry Neville kyssti merkið fyrir framan Liverpool aðdáendur ;) Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? Þeir eru nú ekki margir svo ég muni eftir enda er ég með eindæmum hefnigjarn og aðeins þeir sem þola það að fá eitthvað hundraðfalt til baka hrekkja mig, og ég man svei mér þá ekki eftir neinu í augnablikinu. Spurning frá Þorsteini Frímanni. – Er MAN-UTD að fara á hausinn? Svar... Nei að sjálfsögðu ekki, peningarnir vaxa á trjánum á Old Trafford Hvern viltu sjá svara þessum spurningum? -Júlíus Jóhannsson Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hversu oft hefur Kóreumaður sem er rétt um 1 m á hæð skorað sigurmark á móti Liverpool með skalla? Fór úr Glóðafeyki í Man. Utd.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.