Feykir - 03.06.2010, Page 11
21/2010 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Sandra og Haraldur kokka
Skagenröra á
íslensku rúgbrauði
FORRÉTTUR
Skagenröra á
íslensku rúgbrauði
200 gr. handpillaðar rækjur
1,5 dl. majónes
Ferskt dill
Safi úr ½ sítrónu
Kál
Majónesi, rækjum og sítrónusafa
er blandað saman. Kryddað með
salti og pipar. Berið fram á
íslensku rúgbrauði og skreytið
með káli, fersku dilli og gjarnan
sítrónusneið.
AÐALRÉTTUR
Fiskisúpa með
saffrans aioli
Saffrans aioli
2 dl. sýrður rjómi
1-2 hvítlauksrif
0,5gr. saffran (má sleppa)
Blandað saman í skál.
Fiskisúpa
Fiskur að eigin vali 400g
(t.d. ýsa eða lax)
Rækjur, humarhalar og/eða
kræklingar 1 dl. hvítvín
Gulrætur
Kartöflur
2 hvítlauksrif
3 matskeiðar tómatmauk
1 teningur fiskikraftur
2 ferskir tómatar
Salt og pipar
Það eru þau Sandra Magdalena Granquist og Haraldur Friðrik
Arason á Hvammstanga sem eiga uppskriftir vikunnar að
þessu sinni.
-Halli vinnur hjá Vörumiðlun við að keyra flutningabíl og ég
vinn hjá Veiðimálastofnun og Selasetri Íslands sem líffræðingur
(selarannsóknir) og við eigum saman einn strák, Friðrik Alvin,
segir Sandra. -Haraldur Friðrik hefur verið mikið á sjó og við höfum
því mjög gaman af því að borða fisk á okkar heimili, þó svo að hann
kjósi yfirleitt soðna ýsu með kartöflum og smjöri.
Þau Sandra og Haraldur ákváðu að elda með svolitlu sænsku ívafi
þar sem Sandra er fædd og uppalin í Svíþjóð. “Skagenröra” er mjög
klassískur forréttur í Svíþjóð, hér borinn fram á íslensku rúgbrauði.
Kryddið saffran er einnig mikið notað í matargerð og bakstur í
Svíþjóð.
Matgæðingarnir skora á hjónin Guðrúnu Helgu Marteinsdóttur
og Hörð Gylfason á Hvammstanga að koma með sínar uppáhalds-
uppskriftir að tveimur vikum liðnum. Uppskriftirnar eru fyrir 4.
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Kristbjörg Bjarnadóttir frá Litlu-
Brekku í Skagafirði sem leggur okkur til
fyrstu vísuna að þessu sinni. Er hún ort
í orlofsferð með skagfirskum konum þar
sem Sleitustaðamenn sáu um akstur á
dömunum.
Maginn er saddur og sólin skín glatt
og söngurinn hreint eftir vonum.
Gísli um þjóðvegi þýtur nú hratt
með þrjú tonn af skagfirskum konum.
Öðru sinni í orlofsferð með Sambandi
skagfirskra kvenna, þar sem okkar
Húnvetninga góði vinur Ævar
Klemensson var bílstjóri, mun hann hafa
óskað eftir vísu frá Kristbjörgu. Taldi hún
hægt að verða við því og orti svo.
Meinstríðinn og þrjóskur þrár
það er ljóti gallinn.
Annars er hann Ævar klár
alltaf seiglast kallinn.
Gamall vinur þessa þátta sem kýs að
yrkja undir dulnefninu X9, hlustaði
með skelfingarsvip á fréttaflutning
af bankahruni og hótunum eins af
forkólfum gamla Kaupþings um að neita
að koma til Íslands ef hann yrði tekinn
fastur við heimkomu. Er von að skáld
hugsi til Sigga sem var úti.
Siggi er úti í London að lúra
leikrit á Íslandi vill ekki sjá.
Við saksóknara og svoleiðis búra
segir hann oj bara og ýtir þeim frá.
Ég er frjáls segir Siggi og sefur.
Ég er frjáls því ég smýg eins og refur.
Aurinn í bankanum alsælu gefur
því held nú barasta ég fari aldrei heim.
Gott að heyra í framhaldinu frá Ingólfi
Ómari sem hlustaði á fréttaflutning af
skýrslunni dýru.
Víðtæk skýrsla vitni ber
um vinnureglur ljótar.
Arðrán framið höfðu hér
harðvítugir þrjótar.
Kannski gaman að taka næst upp léttara
hjal og rifja upp þessa kunnu vísu eftir
Jón Hansson sem mun hafa verið ort
í Hallormsstaðarskógi um 1967 er Jón
gekk þar fram á par í ástarleik.
Eðlið vakti unaðsþrá
ást sem lengi varði.
Adam þiggur epli hjá
Evu í rósagarði.
Önnur vísa kemur hér eftir Jón.
Mafíuna mynda þeir
meðan æru þrýtur.
Alvarlega augnageir
innri manninn lítur.
Það mun hafa verið séra Sigurður
Vísnaþáttur 523
Norðland sem orti svo fallega um
heimasveitina.
Fagurbúna bjarta vík
bær og túnið frjóa,
logn við dúna dýr og rík
drottning Húnaflóa.
Jón Guðmundsson sem kenndur var
við Hólmakot í Hraunhrepp hefur verið
svartsýnn er hann orti þessa.
Finnst mér lánið furðu valt
föl er engin meyja.
Bæði lund og bólið kalt,
best er því að deyja.
Jóhann Eyjólfsson í Sveinatungu hefur
kannski verið í kaupstaðarferð syðra er
hann orti þessa.
Mörgum Víkurmeyjunum
mætti ég inn við tjöldin.
Gaman er að þeim greyjunum
í góðu veðri á kvöldin.
Austur í Breiðdal yrkir Einar B. Björns-
son á svipuðum nótum.
Mesta sælu í heimi hér
hygg ég vera þetta.
Fljóð að vefja í faðmi sér
ef fundið er hið rétta.
Kennarinn Eiríkur Sigurðsson á Akureyri
mun hafa ort þessa.
Þeir segja að ástin eigi
undarlegt tungumál.
Mig dreymir á nótt og degi
um dýrðlega konusál.
Fjólmundur Karlsson á Hofsósi var einn
af snjöllum hagyrðingum Skagafjarðar.
Eftir því sem mér skilst hafa því miður
margar af hans ágætu vísum aldrei
verið skráðar á blað, komu eins og talað
orð hjá þessum hagyrðing í daglegu
striti, án þess að samferðamenn hvers
tíma, áttuðu sig á vísnasnilld hans. Ef
ég veit rétt átti hann og rak fyrirtækið
Stuðlaberg. Eftir að Guðbjörn Jónsson
hætti þar sem skrifstofumaður, birtist
mynd af honum í blaði sem barst inn á
kaffistofu fyrirtækisins. Tók sig einhver
til og teiknaði gleraugu á myndina. Orti
þá Fjólmundur.
Lýst mér þetta ljótur kjaftur
lítur augum gegn um gler.
Nú er hann Guðbjörn genginn aftur
og guð má vita hvenær hann fer.
Í miklu úrfelli vestur í Dalasýslu orti
Fjólmundur.
Regnið hrellir margan mann
mærðarskrána vekur.
Sá sem pontu á sundi fann
samt í nefið tekur.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Verið þar með
sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Byrjið á að skera gulrætur og
kartöflur í stóra teninga og
steikið í olíu og hvítvíni. Látið
svo sjóða í smá stund, saman
með tómatmauki, fiskikrafti og
smá vatni. Ferskum tómötum
er svo bætt við og loks fiskinum.
Látið sjóða við lágan hita þar til
fiskurinn er tilbúinn (ca. 10
mín). Rækjum, humarhölum
og/eða kræklingum er bætt við
í lokin.
Berið fram í djúpum diskum
og setjið smá aioli úti súpuna.
EFTIRRÉTTUR
Sumarlegur
ísdrykkur
0,5 l. vanilluís
3 dl. mjólk
1 banani
Súkkulaði með 70%
kakóinnihaldi (eða
suðusúkkulaði)
Blandað saman með töfra-
sprota. Berið fram í háum
glösum með röri.
Verði ykkur að góðu!