Feykir - 28.07.2011, Blaðsíða 3
28/2011 Feykir 3
Eggjakartöflusalat
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
KS-bókin er með 3% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
Laugarbakki
Spes sveitamarkaður
Á Laugarbakka í Miðfirði
hefur verið Spes
sveitamarkaður í sumar og
gengið vel. Þar er í boði
matur úr héraði og handverk.
Kynningar á völdum
matvælum eru í boði um helgar.
Áhersla er lögð á hefðbundna
matargerð en þó leynist eitt og
annað nýstárlegt þar á milli, og
geta allir fengið eitthvað við sitt
hæfi. Boðið er upp á smakk á
flest öllu. Nýjung frá Kjöthorninu
á Hvammstanga er hrossaálegg
(www.kjothornid.net). Annar
nýr vöruflokkur er Sæluostur úr
sveitinni, frá Jörfa í Víðidal
(www.saeluostur.is).
Handverksmenn og konur
leggja áherslu á forn vinnubrögð
og þekkingu, og því er að finna
jurtalitað band á markaði og
flíkur úr því, þæfðar húfur og
vettlinga, sérhannaðar töskur
sem og peysur þar sem áhrif
Jóns Eiríkssonar á Búrfelli gera
vart við sig, kindur úr ull (!!),
selir, og margt fleira. Stöðugt
bætast nýir vöruflokkar við á
Spes sveitamarkaðinn, eins og
smyrsl frá Ýr álfavörum á Dæli í
Víðdal eða sumarblóm og
kryddjurtir í pottum frá
gróðurhúsinu að Reykjum í
Hrútafirði. Barnatjald er vinsæll
liður á Spes sveitamarkaði, þar
sem börnum gefst tækifæri til
að klæðast víkingabúningi og
leika sér að leggjum, skeljum og
öðrum gamaldags leikföngum.
Markaðurinn er opinn frá
miðvikudegi til sunnudags, kl.
12 – 18, til 14. ágúst. Það er
auðvelt að rata á sveitamarkaðinn,
aðeins ein beygja frá þjóðvegi.
Til gamans má geta að Spes
nafnið á sveitamarkaðinum
kemur úr í Grettis sögu, þar sem
Spes var kvenskörungur í
Miklagarði.
Það kennir margra grasa á Spes sveitamarkaði.
Skagfirsku frændurnir Albert Baldursson frá Páfastöðum og
Jónas Kr. Gunnarsson frá Stóragerði starfa saman sem
flugmenn hjá Air Atlanta. Hér stytta þeir sér stundir í Boeing
747 400 breiðþotu í 40 þúsund feta hæð yfir Asíu í góðum
félagsskap Feykis.
Utan úr heimi
Feykir í háloftunum
VERSLUNARMANNAHELGAR BALL
Geirmundur Valtýsson
spilar á dansleik
í Árgarði
sunnudagskvöldið 31. júlí
frá kl. 23-03
Aldurstakmark 18 ár
niður í 16 ára á árinu í fylgd með forráðamanni
Munið áfengislögin og skilríkin
Skagaströnd
Yfirlitssýning á verkum
Sveinbjörns H. Blöndal
Sveitarfélagið Skagaströnd stendur fyrir
yfirlitssýningu á verkum Sveinbjörns H.
Blöndal í íþróttahúsinu á Skagaströnd frá
23. júlí til 14. ágúst 2011.
Þar má sjá hluta af verkum Sveinbjörns sem
málara, en hann bjó stóran hluta ævi sinnar á
Skagaströnd. Sýndar eru teikningar, vatnslita-
myndir, akríl- og olíumálverk.Sýningin verður
opnuð laugardaginn 23. júlí kl. 14 og verður opið
til kl. 17 þann dag. Sýningin mun standa til 14.
ágúst 2011, opin alla daga frá kl. 13 til 17 og eru
allir velkomnir.
Á sýningunni eru fimmtíu og fjögur málverk
auk nokkurra teikninga. Myndirnar eru valdar
með það að markmiði að sýna þróun hans sem
listamanns og mismunandi litanotkun og
efnistök.
Sýningin er sett upp í samstarfi við fjölskyldu
Sveinbjörns. Fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki,
sveitarfélög og stofnanir hafa lánað myndir á
sýninguna. Sýningin er styrkt af Menningarsjóði
Norðurlands vestra.
Ein af teikningum Sveinbjörns sem gefur að líta á sýningunni.