Feykir


Feykir - 28.07.2011, Blaðsíða 8

Feykir - 28.07.2011, Blaðsíða 8
8 Feykir 28/2011 Fornleifarannsóknir í Skagafirði Fornleifavernd Ríkisins hefur veitt fjögur leyfi til fornleifarannsókna í Skagafirði þetta sumarið. Þá fengu Bandaríkjamennirnir John Steinberg og Douglas Bolander leyfi til að taka borkjarnasýni en þeir hafa stundað fornleifarannsóknir í Skagafirði um árabil. Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga fékk tvenn rann- sóknarleyfi í sumar. Annað þeirra er í samstarfi við Byggðasögu Skagafjarðar um rannsóknir á fornum byggða- leifum í Skagafirði. Fram að þessu hafa um 40 staðir verið skoðaðir þar sem gerðir voru könnunarskurðir og tekin borsýni. Í júní voru rannsakaðir sex staðir til við- bótar í Hjaltadal og Kolbeinsdal. Niðurstöðurnar munu birtast í sjötta í bindi Byggðasögunnar um Hólahrepp, sem kemur út á næsta ári. Einnig fékk Byggðasafnið leyfi til að halda áfram Skagfirsku kirkjurannsókninni sem er viðamesta rannsóknin á vegum fornleifadeildarinnar. Hún miðar að því að staðsetja elstu kristnu grafreiti í Skagafirði en vitað er um kirkju eða grafreit á um 120 stöðum í héraðinu og má reikna með að flestir þeirra séu frá elstu kristni. Þá geta fjöldi garða leynst neðanjarðar þó svo engar heimildir séu til um þá og engin ummerki sjáist á yfirborði. Tólf kristnir grafreitir frá 11. – 12. öld hafa þá verið rannsakaðir í héraðinu og níu þeirra fundist Kirkjugarðar og fornar hafnir efst á baugi eða verið staðsettir í tengslum við rannsóknina. Beint sjónum austan Vatna „Í ágúst er ætlunin að rannsaka þrjá staði til viðbótar. Nú er sjónum beint að svæðinu aust- an Vatna og eru staðirnir sem rannsaka á Bræðrá í Sléttuhlíð, Höfði á Höfðaströnd og Ósland í Óslandshlíð.“ segir Guðný Zoëga fornleifafræðingur. Á Bræðrá er vitað um affall- ið bænhús á 15. öld en þar eru engar heimildir til um grafreit. Þar verður grafið í svokallaðan Bænhúshól. Á Óslandi eru til óljósar heimildir um hálfkirkju til forna en engar heimildir um grafreit. Þar var hringlaga garðlag sjáanlegt fram á miðja 20. öld. Á Höfða var fyrrum sóknarkirkja en þar var grafið í kirkjugarðinn allt fram á 19. öld. Ætlunin er að grafa í óljóst hringlaga garðlag sem liggur undir yngri kirkjugarðinn, þar hafa komið upp mannabein við veituframkvæmdir. „Vonast er til að garðurinn gefi ljósari mynd af því hvort einhver munur er á kirkju- görðum sem urðu seinna sóknarkirkjugarðar eða þeim görðum sem fundist hafa umhverfis minni bænhús og kapellur frá elstu tíð.“ segir Guðný. Grafið í kapp við tímann Hólarannsóknin fékk leyfi til áframhaldandi fornleifarann- sókna á Kolkuósi. Björgunar- uppgreftinum við Kolkuós var haldið áfram í sumar níunda árið í röð.Við upphaf uppgraftarins í ár varð strax ljóst að hluti af svæðinu hafði farið illa og höfðu leifar fornra búða algerlega horfið. „Er miður fyrir einstakan stað eins og Kolkuós, en þarna var ein helsta höfn biskups- stólsins og Skagfirðinga frá landnámi fram á 16. öld, að ekki skuli vera hægt vegna fjárskorts að setja meiri kraft en raun ber vitni í uppgröftinn.“ segir Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur, sem hefur stjórnað rannsókninni frá upphafi. Fornleifarannsóknin, sem farið hefur fram í tengslum við Hólarannsóknina á Hólum í Hjaltadal, hefur að sögn Ragnheiðar aukið meira við þekkingu á hafnarmannvirkj- um og uppskipunarstöðum frá landnámi fram á 13. öld en nokkurn óraði fyrir, einkum þegar haft er í huga hve rýr jarðvegurinn er vegna ágangs sjávar. „Árangurinn í sumar er samt sem áður mjög góður þökk sé fórnfúsri vinnu tutt- ugu fornleifafræðinga og fornleifafræðinema.“ segir Ragnheiður. Vettvangsskóli var haldinn á Hólum í sam- starfi við Náttúrustofu Vest- fjarða. Er það annað árið í röð og komu þangað nem- endur í fornleifafræði frá ýmsum háskólum í Bretlandi. Vettvangsskóli hefur verið rekinn við Háskólann á Hólum frá því 2003 í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Osló. Lykillinn að uppbyggingu á Hólum Þessi meginhöfn Skagfirðinga á þjóðveldistíma hefur að mati fornleifafræðinganna ráðið úrslitum um það að Hólar í Hjaltadal urðu þéttbýl valdamiðstöð, biskupsstóll og fræðasetur. Fjöldinn allur af búðum og jarðhúsum frá því fyrir árið 1104 hefur komið í ljós en hvít aska úr Heklugosi liggur yfir þeim. Þykir spennandi að hafa svo nákvæma aldursgreiningu á mannvirkjunum sem hangir saman við upphaf biskups- stólsins á Hólum 1106 og áhugavert að sjá hvernig höfnin var skipulögð á þeim tíma. Ragnheiður segir að komin sé glögg mynd af svæðinu frá 12. og 13. öld og að rannsóknin í sumar sýni að það hafi ekki síður verið þaulskipulagt í árdaga en þegar fram í sótti. „Þær búðir sem hafa verið að koma í ljós í sumar eru frá 11. öld og enn eldri og virðist sem höfnin hafi alltaf verið mjög vel skipulögð þótt ekki hafi verið um steinlagðar götur að ræða í fyrstu eins og síðar varð. Búðirnar virðast vera aðeins minni en athafnalífið jafnfjölbreytt. Sumar hafa trúlega verið svefnbúðir, aðrar vinnustaðir, þar sem hefur verið saumað, verslað og unnið járn, enn aðrar matstaðir og svo auðvitað birgðageymslur.“ Fjöldi gripa eru nú orðin um 1500 af ýmsum gerðum. Þar hafa fundist ýmsar vík- ingaaldarminjar, akkeri, grafir heiðinna manna og fórnardýra, silfurpeningar, kambar, innflutt brýni, eldtinnur, bökunarhellur, nálar af öllum stærðum og gerðum, gripir úr hvalbeinum en töluvert hefur fundist af hvalspæni í einni búðinni; má gera ráð fyrir að menn hafi setið þar og tálgað úr hvalbeini. Hákarlatennur hafa komið úr eldstæðum við Kolkuós sem bendir eindregið til að menn hafi brætt þar lýsi á 13. öld og flutt út. Niðurstöðurnar bregða mikilvægu ljósi á samband Hólastaðar við umhverfi sitt og tengjast með því þeim þverfaglegu rannsóknum sem fara fram á Hólum. Fornar hafnarbúðir koma í ljós þegar horft er yfir uppgraftarsvæðið á Kolkuósi. Uppgröftur á 11. aldar kirkjugarði á Mið-Grund í Blönduhlíð. Fyllingin í gröfunum er öðruvísi á litinn en jarðvegurinn sem grafirnar hafa verið teknar í og þær eru því vel greinanlegar á yfirborði.Fyllingin í gröfunum er öðruvísi á litinn en jarðvegurinn sem grafirnar hafa verið teknar í og þær eru því vel greinanlegar á yfirborði. Hákarlatennur komu í ljós þegar jarðvegssýnum var fleytt í vatni.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.