Feykir - 15.03.2012, Síða 19
11/2012 Feykir 19
Heilir og sælir lesendur góðir.
Langar mikið til að byrja þáttinn á að rýna
í blöðin sem ég fékk send úr Skagafirði
og getið var um í síðasta þætti. Þar er til
dæmis þessi ágæta kunna vísa eftir Kristján
Samsonarson frá Bugðustöðum.
Nú skal vakka vegum á
venja blakka káta.
Strjúka makka strengi slá
stöku flakka láta.
Ekki minnist ég þess að hafa heyrt illa talað
um þá mögnuðu bræður og athafnamenn
Svein og Pétur á Egilsstöðum. Benjamín
Sigvaldason er á annarri skoðun eftir þessari
vísu að dæma.
Dygðum fleygir djúpt í ál
á djöfulsvegi hröðum.
Þessi regin svíðingssál
Sveinn á Egilsstöðum.
Næst kemur ótrúlega mögnuð hringhenda,
án þess að getið sé um höfund. Gaman að fá
frá lesendum línu ef þið þekkið vísuna.
Þúsund lampa ljósum frá
í loga glampa brotum.
Aldan hampar úti hjá
ægi kampa votum.
Næsta vísa á þessu blessaða blaði er sögð
vera eftir Sigmund Sigurðsson frá Hofsósi.
Tel ég það vera af og frá að svo sé. Vísa þessi
er mörgum kunn og minnir mig að hún sé
ættuð úr Þingeyjarsýslu án þess að þora að
fullyrða þar um. Bið lesendur endilega að
hjálpa mér með upplýsingarnar ef þeir muna
betur en ég.
Upp er skorið engu sáð
allt er í varga ginum.
Þeir sem aldrei þekktu ráð
þeir eiga að bjarga hinum.
Næst í röð á þessu dásamlega blaði kemur
falleg bæn sem því miður er höfundarlaus.
Niður ég beygi höfuð hljóður.
Helga leið þú á bata stig.
Ég bið þig svo sjaldan Guð minn góður
gerðu nú þetta fyrir mig.
Ekki skemmir þáttinn sú sem næst er á
dagskrá þessa dýrmæta blaðs. Vel gerð
hringhenda þar á ferð.
Við skulum halda heim í kvöld
hrinda vanda öllum.
Að verki standa myrkra völd
verði strand hjá köllum.
Næsta innlegg í þessum vísnagátum er
höfundarlaust en hljómar mjög vel og er
reyndar það sem við margir karlar vissum að
væri kannski ágætur lendingarstaður.
Það sem prýðir meyna mest
má ei upphátt ræða.
Vísnaþáttur 566
Það er ekkert sem að sést
svona utan klæða.
Endalaust gaman virðist vera á þessu
blaði, eftir þessari að dæma sem líka er
höfundarlaus.
Undir komu út á sjó
Alda litla og Bára.
En í tjaldi Tóti bjó
til þá Storm og Kára.
Enn kemur undarleg vísa af þessu ágæta
blaði, er hún eins og fleiri höfundarlaus.
Stendur reyndar undir Sveinn.
Flest er gleymt, en fáu leift
farið sleipt úr mörgu hlaði.
Oft var keypt og stömpum steypt
stundum hleypt á tæpu vaði.
Eina vísu í viðbót langar mig til að birta
af þessu ágæta blaði. Er höfundur hennar
skráður Birna Ólafsdóttir frá Ferjubakka.
Þykir mér ekki líklegt að þar sé mikill
sannleikur á ferð. Veit þó ekki um höfund
þessarar ágætu hringhendu.
Upp við breiða á til heiða
ýmsir skeiða holdsins leið.
Hórur beiða halir veiða
hátt þeir greiða nætur reið.
Gott í bili af þessu gulnaða blaði sem ég tel
mikinn fjársjóð okkar vísnavina. Ágætt að
hressa sig næst með þessari mögnuðu limru
eftir Eystein Gíslason í Skáleyjum.
Hann Sigurður heitinn á Hamri
var hrjáður af síbylgjuglamri.
Er heyrð´ann í Bubba
hann byrjaði að gubba
og andaðist úti á kamri.
Þegar rætt er um hina svokölluðu kvenna-
guðfræði, er ekki skrítið þó Skáleyjarbónda
detti limra í hug.
Faðir vor ku vera kvenmaður
og kona var sonurinn blessaður.
Efum samt ei
að María mey
var mikill og harðsnúinn karlmaður.
Minnir að það hafi verið Óli í Forsæludal
sem orti þessa.
Verð ég oft í lífsins leik
leiða og ergi gripinn.
Þar sem hræsnin hangir bleik
með hátíðleika svipinn.
Gott að enda með þessari fallegu játningu.
Höfundur Ósk Skarphéðinsdóttir á
Blönduósi.
Oft þó hafi illu kynnst
á það hiklaust treysti.
Að búi í hvers manns eðli innst
einhver góður neisti.
Verið þar með
sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is
Herdís og Óskar kokka
Hversdagsleikinn
í matargerð
FORRÉTTUR
Kjúklingasúpa
fyrir 6 manns
2 kjúklingabringur
½ blaðlaukur
1 rauð paprika
1-2 hvítlauksrif
1 msk olía
1-2 l vatn
1 dós saxaðir tómatar
5-6 msk Sweet Chili sósa
3 msk tómatþykkni
1 kjúklingatening
nachos flögur, t.d. Doritos
krydd eftir smekk
ostur, rifinn
Aðferð: Skerið kjúklingabringur
í teninga, kryddið og steikið
við vægan hita. Setjið svo
kjúklingateninginn út í vatnið og
hitið, svo er blaðlaukur, paprika
og hvítlaukur settur út. Næst eru
tómatarnir og tómatþykknin sett
út í og rjómaostur eftir smekk.
Soðið í 10 til 30 mínútur.
Gott að mylja nachos flögur
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru þau Herdís
Jakobsdóttir leikskólakennari á Vallabóli á Húnavöllum
og Óskar Ólafsson bóndi á Steiná II í Svartárdal. Þau
skora á Turid Rós Gunnarsdóttur og Þórhall Haraldsson í
Húnaveri í Svartárdal að koma með næstu uppskrift.
„Allir á heimilinu eru fyrir hversdagsleikann í matargerð og
hér koma nokkrar auðveldar og fljótlegar uppskriftir. Einnig
látum við fylgja tvær uppskriftir af salötum sem eru einstaklega
góðar með reyktu og gröfnu kjöti.“ út í ásamt rifnum osti áður en
súpan er borin fram.
AÐALRÉTTUR
Lambapottréttur
Lambasúpukjöt eða sneiðar
3 tsk kjötkraftur
1 l vatn
kartöflur
rófur
gulrætur
laukur
Aðferð: Lambasúpukjöt eða
sneiðar eru kryddaðar og settar
í ofnpott. Kjötkraftur settur í
skál leystur upp í vatni. Kartöflur
soðnar í 10 mín. og skrældar og
settar í ofnpott, ásamt rófum,
gulrótum og lauk. Látið malla í
svona 3-4 tíma við 150 gráður.
EFTIRRÉTTUR
Cherry terta
1 hvítur botn
cherry- eða jarðaberjasafi
3 eggjarauður
3 msk sykur
1 dós jarðaber
1 peli rjómi, þeyttur
súkkulaði
Aðferð: 1 hvítur botn bleyttur
með cherry eða jarðaberjasafa.
Eggjarauður og sykur þeyttur
vel saman í svona 10 mín.
Jarðarberin eru stöppuð og
sett yfir botninn, því næst
eru eggjarauðurnar og þeytta
rjómanum blandað varlega
saman og sett svo yfir berin.
Skreytt með bræddu súkkulaði.
Forréttasalat
Þetta er gott með reyktu og
gröfnu kjöti, einnig gott með
silung.
Tvær dósir sýrður rjómi og
einn rauður pakki horseraddish
piparrót. Blandið þessu vel
saman, tvö til þrjú græn epli
skorin niður og bætt út í. Saltið
og piprið eftir smekk.
Forréttastappa
Þessi stappa er góð með reyktu
og gröfnu kjöti, líka með
hreindýri.
Gulrætur, kirsuberjatómatar
og snjóbaunir settar í pott og
soðnar í svona 15 til 30 mín.
Stappað og borið fram.
Verði ykkur að góðu!