Feykir


Feykir - 12.07.2012, Síða 1

Feykir - 12.07.2012, Síða 1
fff BLS. 7 BLS. 4 Jón Geirmundsson varð Landsmótsmeistari í þolreið Sigraði þrátt fyrir að villast BLS. 5 Helga Hinriks og Páll Sigurður á Hvammstanga eru matgæðingar vikunnar Sushi og nauta- kjöt í Guinness Erla Ísafold Sigurðardóttir mundar áskorendapennann frá Blönduósi Tími til að vakna? Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra 27 TBL 12. júlí 2012 32. árgangur : Stofnað 1981 Lið Tindastóls er nú í fimmta sæti í 1. deildinni í knattspyrnu Fullt af mörkum hjá Stólunum Meistaraflokkslið karla hjá Tindastóli hefur staðið sig framar vonum í 1. deildinni í sumar en liðið er í fimmta sæti deildarinnar að loknum níu umferðum. Fyrsta deildin er reyndar hnífjöfn og spennandi og það skilja aðeins þrjú stig að Tindastól og lið BÍ/Bolungarvíkur sem vermir 11. sætið. Stólarnir hafa hins vegar glatt augað og boðið stuðningsmönnum sínum upp á fínan fótbolta og hafa erlendir leikmenn liðsins verið að blómstra. Leikmenn Tindastóls hafa gert 19 mörk í deildinni og hefur ekkert lið gert fleiri mörk. Þá hafa verið gerð að meðaltali 4 mörk í þeim níu leikjum sem Stólarnir hafa spilað í sumar. Fimm erlendir leikmenn eru í liði Tindastóls, einn frá Haítí og fjórir Englendingar, þar af þrír bræður; Sebastian, Dominic og Theodor Furness. Theo og Ben Everson eru markahæstir í 1. deild með 6 mörk hvor. Miðjumaðurinn Dominic var valinn leikmaður 9. umferðar hjá Fótbolti.net á dögunum. /Sjá bls. 3 BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200 G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N Hér er ný, sneggri MacBook Air Jíha! GoPro er leiðandi merki í heiminum á sviði myndavéla sem nota má við alls konar íþróttir eða jaðarsport og í raun allt sem mönnum dettur í hug að gera. Frábært úrval af minnismerkjum! Fagmennska - Gæði - Gott verð Steinsmiðja Akureyrar Glerárgötu 36 Akureyri Sími 466 2800 sala@minnismerki.is www.minnismerki.is Ástand túna misjafnt á milli svæða Norðurland vestra Útlit er fyrir betri heyuppskeru í Skagafirði þetta sumarið en í fyrra samkvæmt Eiríki Loftssyni ráðunauti hjá Leiðbeiningarmiðstöðinni í Skagafirði. „Það sem af er hefur uppskeran verið þokkaleg og eru það ný tún og mýrlendi sem hafa verið að koma best út,“ segir Eiríkur en það eru fyrst og fremst kúabændur sem hafa verið í heybúskap. Ólíkt og í fyrra þá segir Eiríkur hlýindin í sumar hafa gert gæfumun- inn. „Túnin eru auðvitað í misjöfnu ásigkomulagi, meira hefur rignt til fjalla en þurrara er í útsveitum, t.d. út á Skaga, Fljótum, Viðvíkursveit og Hegranesi, en útlitið er almennt þokkalegt,“ segir Eiríkur. Ekki er sömu söguna að segja úr Húnaþingi en þar hefur jafnvel rignt minna en í Skagafirði. Samkvæmt Eiríki hefur jarðvegurinn mikið að segja, t.d. í Hrútafirði er hann mjög þunnur en þar er ástandið sérlega slæmt. Rúv.is greindi frá því að miklir þurrkar valda bændum í Húnaþingi áhyggjum en þar hefur lítil grasspretta verið og sláttur því ekki kominn á fullt, eins og annars væri á þessum árstíma. Að sögn Gunnars Rík- harðssonar, framkvæmdastjóra Bún- aðarsambands Húnaþings og Stranda, eru tún víða orðin brún og ljót. Stór hluti Hrútafjarðar sé einn gulur fláki yfir að líta. Gunnar segir að á sumum bæjum er stærsti hluti túnanna illa farinn vegna þurrkanna og útlit því ekki gott með heyfeng þar í ár. Þrátt fyrir að vor síðustu ára hafi verið óvenju þurr hafi ástandið aldrei verið svo slæmt, segir Gunnar. Nokkrar áhyggjur eru því af heyforða á svæðinu fyrir næsta vetur vegna þessa. /BÞ Tindastólsmenn fagna fræknum sigri

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.