Feykir


Feykir - 27.09.2012, Blaðsíða 9

Feykir - 27.09.2012, Blaðsíða 9
36/2012 Feykir 9 ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Valgerður Erlings NAFN: Valgerður Erlingsdóttir. ÁRGANGUR: Sá stóri 1977. FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Guðmundi Gylfasyni, eigum 3 börn; Hafþór Bjarka 11 ára, Fanneyju Rún 7 ára og Atla Heiðar 4 ára. BÚSETA: Heimsborgin hún Reykjavík. HVERRA MANNA ERTU: Erlings Péturssonar Pippa Imbu í Tindastól og Sigrúnar Skúladóttur frá Borgarfirði eystri. STARF / NÁM: Leikskólaliði, Bowentæknir frá E.C.B.S og er nú í Ljósheimaskólanum. BIFREIÐ: Volvo ´98 og Ottó seldi mér Pajero um daginn og færi ég honum bestu þakkir fyrir. HESTÖFL: Já allavega í Pajeronum, Wolfgang gengur á náttúruöflum. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Reyna að framkvæma eitthvað af því sem að mér dettur í hug, og það er margt, koma börnunum til manns og sjálfri mér til vits. Hvernig hefurðu það? Bara þokkalegt, þakka ykkur pent. Hvernig nemandi varstu? Mig grunar að kennararnir muni alveg eftir mér. Mín er sennilega ekki minnst sem náms- eða fróðleiksfúsri? Nema í einhverju sem ekki var ritað í skóla- bækurnar. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Það er tví- mælalaust bráðaofnæmið sem ég fékk úr ljósabekknum hjá Eddu, ég var algjörlega búin á því á fermingardaginn og sofnaði áður en síðustu gestir yfirgáfu Birkihlíðina. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Það fór alveg eftir því hvaða dagur var en ég var alltaf ákveðin í því að vinna við umönnun og verða mamma og það tókst. En ég á eftir að verða tónlistarmaður, rithöfundur og leikari, en það kemur. Hvað hræðistu mest? Hákarla, stend föst á því að ef ég fer í sjósund, laumar sér einn inn að strönd og ræðst á mig. ABBA eða Rolling Stones? Abba er hópband en Stones er einstaklings. Hlusta frekar á Stones. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Sú fyrsta sem ég keypti mér var að mig minnir The Greatest Rock Album Of All Times, sem ég á enn. Annaðhvort fengin í Rafsjá eða Hegra. Annars gaf Frímann mér á undan því eina plötu með Paul Simon og aðra með Donnu Summer sem við Arndís Berndsen ákváðum að eiga saman og deila forræðinu jafnt. Arndís ef þú lest þetta þá held ég að þú eigir að hafa þær núna, getur sótt þær til mín. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Hey Jude, ef ég væri á Króknum. Lag sem virðist hafa gróið fast við raddböndin á unglingsárunum. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Heimildarmyndum. Besta bíómyndin? Nei, nú fórstu alveg með´ða. Segjum bara Hárið því ég er búin að sjá hana 100 sinnum. Horfði mikið á hana sem barn á Króknum. Tónlistin heillaði mig svo rosalega og það kann að koma einhverjum á óvart en ég hef alltaf verið pínu hippi. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Selinn (var áður kallað ormurinn meðal okkar sem vorum í Breikinu). Hvert er snilldarverkið þitt í eld- húsinu? Ætli það sé ekki gufusoðnar laxabreiður með pótötum de la crèm´ á grænmetisbeði og annar hvunndagsmatur. Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossa- miðann? Suðusúkkulaði þessa dagana. Hvað er í morgunmatinn? Hafra- grautur eða Múslí. Hvernig er eggið best? Spælt. Uppáhalds málsháttur? Ef þú smælar framan í heiminn, smælar heimurinn framan í þig. Hvaða teiknimyndapersóna höfð- ar mest til þín? Hann Júlli kóngur í Madagaskar er dásamlegur. Hver er uppáhalds bókin þín? Gömul barnabók sem heitir Berin á lynginu, hef aðallega lesið barna- bækur síðustu árin. En var að klára Rokland, sem mér fannst mjög góð. Langar mikið að sjá myndina sem virðist ófáanleg. Veit það einhver? Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... bara austur á land, þar líður mér og mínum best. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Óskipulag og frest- unarárátta. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Hroki og sýndar- mennska. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Arsenal, fyrir strákana mína. En ég er algjörlega dottin út úr enska boltanum. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Börnunum mínum og Jóni Margeiri sundkappa. Svo er Birna Valgarðs alltaf flott Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera og af hverju? Ég er allt of meðvirk í þessa, en Tina Turner kæmi vel til greina, flott kona í alla staði, ef rétt er með farið. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Ætli það sé ekki Nelson Mandela eða Dalai Lama. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Ætli það yrði ekki bátur, pottur og vasahnífur. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? „Ég er eins og ég er“ eða „Við hliðina á sjálfri mér.“ Viltu taka þátt í Rabb-a-babbi? Langar þig að vera með eða þekkirðu einhvern sem þér finnst að ætti að vera í Rabb-a-babbi? Sendu okkur póst á feykir@feykir.is Ferðasumarið hjá Glaðheimum á Blönduósi Aldrei meira að gera í sumarhúsunum Á Glaðheimum á Blönduósi er rekið tjaldstæði, sumarhús og upplýsingarmiðstöð í alfaraleið sem hefur verið vinsæll viðkomustaður hjá ferðamönnum, innlendum sem erlendum. Feykir hafði samband við Lárus B. Jónsson hjá Glaðheimum og spurði út í ferðasumarið. „Sumarhúsin fóru seint á stað en seinni hlutinn hefur verið mjög góður og er enn,“ segir Lárus en sumarhúsin eru til leigu allt árið. Lárus segir ekki enn búið að taka saman endanlegar tölur yfir gestakomur þó segir hann gesti á tjaldstæðinu hafa verið færri en í fyrra en traffíkin var svipuð á upplýsingamiðstöðinni. „Mest var að gera í sumarhús- unum í ágúst og hefur aldrei verið meira,“ segir Lárus. Hvað þjóðerni gestanna varðar segir Lárus fjölda útlendinga hafa verið jafn mikinn og Íslendinga í sumar. Aðspurður um hvort hann hafi orðið vitni að einhverju skondnu atviki í starfi segir hann ýmislegt ske í þessari vinnu. „Sumt getur maður ekki sagt frá en mér finnst stundum skrýtið þegar útlendingar koma á flottum húsbílum og biðja um hús til leigu. Það gerist nokkrum sinnum á ári,“ segir hann. Þá hefur sú nýlund verið að færast í aukanna hjá Lárusi að honum berist hjálparbeiðnir vegna fastra ökutækja á fjallvegum í kring um Blönduós, bæði í snjó og aurbleytu. /BÞ Glaðheimar á Blönduósi. Geiturnar komu fyrr en venjulega sem reknar voru á fjall komu einnig heim en það er fyrr en vanalegt er. Fé kemur ágætt af fjalli en heldur rýrara en oft áður. Greinilegt er að veðurfar spilar þar inní og mátti sjá skepnur sem ekki höfðu fengið nóg að éta í einhvern tíma vegna snjóa. Ekki er enn ljóst hvað vantar af fé hjá bændum en þó er það vitað að töluvert vantar enn hjá sumum. /KH

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.