Feykir - 07.02.2013, Qupperneq 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 4
Kokkakeppni Árskóla 2013
fór fram á dögunum
Þorskur með
pistasíusalsa
átti vinninginn
BLS. 8
Sigurður Helgi Eiríksson
rifjar upp sögur frá
Hvammstanga í opnuviðtali
Lífið á
Strandgötunni
Inga Heiða er
áskorendapenninn
Ætlar að heim-
sækja allar sund-
laugar landsins
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
05
TBL
7. febrúar 2013
33. árgangur : Stofnað 1981
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Gelmottur til Færeyja
Ísgel fær NORA styrk
Norræna Atlantssamstarfið, NORA,
úthlutaði styrkjum til níu sam-
starfsverkefna á síðari úthlutun
síðasta árs en NORA hefur það að
markmiði að efla samstarf á
Norður-Atlantssvæðinu.
Veittir eru styrkir tvisvar á ári til
samstarfsverkefna með þátttöku að
lágmarki tveggja af fjórum aðildar-
löndum NORA (Grænlandi, Íslandi,
Færeyjum og sjávarbyggðum Noregs).
Íslendingar tóku þátt í átta verkefnum
af þeim níu sem nú fengu styrk og eitt
þeirra er Ísgel á Blönduósi sem sótti um
samstarfsstyrkinn ásamt p/f Luna,
Sörvogi í Færeyjum.
-Verkefnið verður til í framhaldi af
öðru verkefni sem við vorum að vinna
að í Færeyjum ásamt fjórum öðrum
fyrirtækjum hér á Blönduósi. Það
verkefni fólst í því að kanna markað í
Færeyjum með það að markmiði að
koma okkar vörum á markað í Fær-
eyjum, segir Zophonías Ari Lárusson
hjá Ísgel. Í ljós kom að Færeyingar
senda sinn fisk mestallan heilan frá sér
á markað í kæligámum með skipum
ásamt því að nota ís til þess að halda
fiskinum ferskum.
-Viðskiptavinir okkar á Íslandi eru
að nota okkar vöru til þess að halda
fiski ferskum í flugi á markað út um
allan heim. Verkefnið miðast að því að
koma þessari aðferð inn hjá Færey-
ingum með rannsóknum ásamt því að
aðlaga vöruna okkar að þeirra þörfum,
segir Zophonías.
Aðal framleiðsluvara Ísgels eru
gelmottur sem framleiddar eru í
nokkrum stærðum til þess að halda
fiski og öðrum matvælum köldum á
meðan á flutningi stendur, þá aðallega í
flugi á milli landa. Einnig er fyrirtækið
með svokallaða sjúkralínu sem eru
margnota kæli og hitagelbakstrar sem
eru settir á eymsli til þess að draga úr
verkjum og minnka bólgu.
Zophonías segir að aðalmarkaðs-
svæðið sé Ísland en viðskiptavinir
fyrirtækisins eru fiskvinnslur og fiskút-
flytjendur um allt land, einnig hafa
farið nokkrar sendingar til Noregs.
Rekstur Ísgels hefur gengið ágætlega
að sögn Zophaníasar og sala aukist
jafnt og þétt. Hjá fyrirtækinu starfa
fimm manns. /PF
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Canon PIXMA MG6250
Er há-afkasta Wi-Fi ljósmynda fjölnota prentari og skilar
framúrskarandi prentgæðum.
Tilvalinn fyrir áhugaljósmyndara.
Framköllunargæði fyrir
heimilið með sex blekhylkjum.
T I L B O Ð S V E R Ð
kr. 27.900.-
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur um land allt í gær. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf
leikskólakennara og kynna starfsemina út á við. Í tilefni dagsins tóku nemendur leikskólans Ársala á Sauðárkróki nokkur lög í Skagfirðingabúð og kom fjöldi fólks í
búðina til að hlusta á kórsöng barnanna. /BÞ
Sönggleði í Skagfirðingabúð