Feykir


Feykir - 07.02.2013, Síða 2

Feykir - 07.02.2013, Síða 2
2 Feykir 05/2013 Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Kyrrstaða er ekki valkostur „Í byggðamálum þarf jafnaðarflokkur Íslands að sinna réttindum íbúa landsbyggðanna vegna þess að fólk í landsbyggðunum býr við lakari kjör, minni áhrif og lakari félagslega stöðu. Það er sígilt jafnréttismál að jafna þann aðstöðumun,“ sagði Árni Páll Árnason nýr formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um helgina. Þar sagði hann einnig að alvöru byggðastefnu þurfi og almennar aðgerðir í ætt við jöfnun flutningskostnaðar, til að jafna samkeppnisstöðu landsbyggðanna. Hér má heyra nýjan tón í jafnaðarmannaflokknum sem fengið hefur á sig gagnrýni fyrir að fækka opinberum störfum á landsbyggðinni og setja á hækkandi skatta sem kemur fyrirtækjum hinna dreifðu byggða afar illa. Á fundi ASÍ sem haldinn var á Sauðárkróki sl. þriðjudag og fjallaði um atvinnumál kom fram að það eina sem gæti hjálpað landsbyggðinni væri að núverandi ríkisstjórn færi frá þar sem svo stór gjá væri þar á milli að skaði væri af. Þó svo að Árni segði á landsfundinum að fyrsta verkefni næstu ríkisstjórnar í efnahagsmálum verði að tryggja þjóðarsátt um efnahagslegan stöðugleika þá nefndi hann aldrei sjávarútveg í sinni ræðu. Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sagði á áðurnefndum fundi að nýr landsbyggðaskattur sé kominn á í formi veiðileyfagjalds sem hafi hækkað um hálfan milljarð en FISK Seafood sem dæmi þarf að greiða um 800 milljónir króna á ári í ríkissjóð eingöngu vegna þess. Ásta B. Pálmadóttir sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar kvartaði undan skilningsleysi stjórnvalda og taldi rýran hlut verða eftir af þeim tekjum sem yrði til í héraðinu. Allt sogast á suðvestur hornið. „Kyrrstaða er ekki valkostur,“ sagði nýi formaðurinn í Samfylkingunni og það er rétt hjá honum. Landsbyggðin hefur sýnt fádæma biðlund í efnahagskreppunni og þarf á því að halda að hlúð sé að henni svo byggð fái að blómstra í landinu. Hvaðan koma annars helstu útflutningstekjur okkar? Páll Friðriksson, ritstjóri Vinstri græn á Norðurlandi vestra Lilja Rafney í efsta sæti Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, mun leiða lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Lilja Rafney hlaut flest atkvæði í 1. sætið í prófkjöri sem fram fór síðastliðinn laugardag. Í öðru sæti lenti Lárus Ástmar Hannesson, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir 3. sæti, Matthías Sævar Lýðsson í 4. sæti, Reynir Eyvindarson í 5. sæti og Ragnar Frank Kristjánsson í 6. sæti. /PF Kaupfélag Skagfirðinga lánar Svf. Skagafirði Fá lán allt að 600 milljónum Sveitarstjórn Svf. Skaga- fjarðar hefur samþykkt að taka lán hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, vegna viðbyggingar og viðhalds- framkvæmda við Árskóla á Sauðárkróki. Er það gert með það að markmiði að sameina á einum stað skólahald Árskóla og til að bæta aðbúnað skólabarna og starfsmanna. Kaupfélagið lánar til verkefnisins allt að sexhundruð milljónir króna. Miklar umræður sköpuðust um málið á fundi sveitar- stjórnar og taldi Sigurjón Þórðarson, sveitarstjórnar- fulltrúi Frjálslyndra og óháðra, að meirihluti Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafi staðið mjög óeðlilega að stærstu fram- kvæmd sveitarfélagsins á kjör- tímabilinu. Stefán Vagn Stefánsson formaður Byggðarráðs sagði að mikilvægt væri að rétt sé með farið þegar rætt væri um tölur og staðreyndir. Sagði hann að engum gögnum hafi verið haldið frá fulltrúum minnihlutans í þessu máli þrátt fyrir ásakanir Sigurjóns um annað. /PF Fleiri störf – betri störf Vel mætt á fund SA Samtök atvinnulífsins héldu fund á Sauðárkróki um atvinnumál á Íslandi en nú stendur yfir fundaherferð samtakanna um landið. Er sjónum beint að mikilvægi þess að skapa fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum og bæta lífskjör þjóðarinnar. Vilmundur Jósefsson, for- maður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA töluðu um tækifærin sem til staðar eru í atvinnulífinu og hvað þurfi að gera til að árangur náist. Var helst á þeim að skiljast að einungis væri beðið eftir því að landsstjórnin færi frá en hún var sökuð um svik á yfir- standandi kjörtímabili og hamlandi aðgerðir við að koma hjólum atvinnulífsins í gang á ný eftir efnahagslægðina. Var hækkun veiðileyfagjaldsins gagnrýnd harðlega og tók Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri Fisk Seafood, það fyrir í skörulegu erindi sem hann Líkamsárás á Skagaströnd Tengist kynferðis- brotamáli Tveir ungir karlmenn voru handteknir fyrir alvarlega líkamárás á Skagaströnd en árásin átti sér stað um hálfsexleytið sl. sunnudags- morgun. Sá sem fyrir árásinni varð tilkynnti hana til lögreglu en hann liggur nú á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Brotist var inn á heimili karlmanns á áttræðisaldri og honum veittir alvarlegir áverkar á andliti og höfði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri tengist árásin kynferðisbrotamáli en annar árásaraðila tengist manninum fjölskyldubönd- um. Hafa þeir verið í haldi lögreglunnar á Akureyri, sem fer með rannsókn málsins. /BÞ Sauðárkrókur Hálsbrotnaði eftir fall á svelli Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar maður missti fótanna á svelli á leið heim eftir Króksblótið á Sauðárkróki sl. laugardag. Skall hann á hnakkann og tvíhálsbrotnaði. Það er talið lán í óláni að hálsliðurinn hafi tvíbrotnað því ella hefði ekki þurft að spyrja að leikslokun. Maðurinn gat staðið á fætur og gengið heim og haft samband við lækni en við nánari skoðun daginn eftir kom brotið í ljós og maðurinn fluttur með sjúkravél suður þar sem hann gekkst undir aðgerð. Maðurinn er rólfær og á von á því að komast heim fljótlega. /PF Dagur kvenfélagskonunnar Bráðnauðsynleg kvenfélög Dagur kvenfélagskonunnar var haldinn hátíðlegur þann 1. febrúar um land allt og var svo einnig á Sauðárkróki. Í Skátaheimilið komu margar konur í tilefni dagsins og segir Helga Sigurbjörnsdóttir formaður Kvenfélags Sauðárkróks að félögin séu bráðnauðsynleg nú ekki síður en áður. Helga segir að verkefni kvenfélaga séu mörg í sam- félaginu bæði hvað varðar líknarmál, menningarmál sem og hverskonar önnur þjóð- þrifaverk og virðist vera ótæmandi brunnur. Nýliðun í kvenfélög er þokkaleg að mati Helgu, gangi hægt en örugg- lega. –Við gerum okkur alveg grein fyrir því, þessar gömlu, að við þurfum að vinna með yngra fólkinu til þess að koma sumu á skrið. Þannig að við höldum að þessi nýliðun verði búin að skila sér eftir eitt til tvö ár. Helga var ánægð með dag- inn, fjölmargar konur mættu og áttu góðan dag saman. M.a. komu margar þeirra með handavinnu sína og sýndu gestum og gangandi. /PF flutti. Kom fram að hækkun veiðileyfagjaldsins næmi um hálfum milljarði króna hjá FISK og um 800.000.000 milljónir króna sem fyrirtækið þyrfti þá að reiða fram í þann „lands- byggðaskatt“ eins og Jón kallaði það. Ekki var annað að heyra en fundarmenn væru sammála um að stjórnvöld þyrftu að beina kröftum sínum í ríkari mæli út á landsbyggðina. /PF Jón E. Friðriksson hélt þrumandi ræðu og sakaði stjórnvöld um að búa til nýjan landsbyggðaskatt í formi veiðileyfagjalda.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.