Feykir


Feykir - 07.02.2013, Síða 5

Feykir - 07.02.2013, Síða 5
05/2013 Feykir 5 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir Dominos-deildin í körfubolta: KFÍ - Tindastóll 92-85 Tindastóll beið lægri hlut gegn Ísfirðingum Lið Tindastóls sótti KFÍ heim á Ísafjörð á föstudaginn og þrátt fyrir að tefla fram splunkunýjum leikmanni höfðu strákarnir ekki erindi sem erfiði og töpuðu á endanum með sjö stiga mun, 92-85. Stólarnir fóru vel af stað og ekki hvað síst sá nýji, Roburt Sallie, sem gerði fyrstu sex stig liðsins. Leikurinn var hnífjafn í fyrsta leikhluta og leiddu Tindastólsmenn með einu stigi að honum loknum, 22-23. Heimamenn byrjuðu annan leikhluta með tveimur 3ja stiga körfum og náðu forystunni. Stólarnir þéttu vörnina og um miðjan leikhlutann jafnaði Helgi Rafn, 31- 31, og síðan var stál í stál fram að hléi en þá var staðan jöfn, 41-41. Tindastólsmenn komu ekki nógu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og á mínútu kafla breyttist staðan úr 46-45 í 55- 45 og heimamenn komnir með 10 stiga forskot. Stólarnir reyndu að koma sér inn í leikinn en skotin voru ekki að detta þannig að KFÍ bætti við og náði 14 stiga forskoti þegar tvær mínútur lifðu af þriðja fjórðungi. Valentine og Sallie gerðu hins vegar sex síðustu stigin í leikhlutanum og gáfu gestunum smá von. Staðan 66-58. Svabbi gerði 5 stig í upphafi fjórða og Arnar setti niður þrist og minnkaði muninn í 70-66 þegar um sjö og hálf mínúta var eftir af leiknum en heimamenn reyndust sterkari í leiknum, þeir komu muninum aftur í 10 stig og héldu út til leiksloka nokkuð öruggt. Lokatölur 92-85. Pitts var sterkur í liði KFÍ, gerði 33 stig í leiknum, og þá gerði Kristján Pétur Andrésson 20 stig og þar af 18 úr 3ja stiga skotum. Ísfirðingar spiluðu góða vörn gegn Stólunum og gekk okkur illa að skora innan teigs, sérstaklega átti Valentine erfitt uppdráttar. Sallie gerði 24 stig fyrir Stólana og tók 13 fráköst en stigahæstur hjá Tindastóli var Þröstur Leó sem setti niður fimm þrista í sjö tilraunum og endaði með 25 stig. Næsti leikur Tindastóls er gegn Fjölni hér heima annað kvöld. Feykir hvetur stuðningsmenn Stólanna til að fjölmenna því nú verða menn að fara að hala inn stig ef ekki á illa að fara. /ÓAB Meiri körfubolti Johnson til Stólanna Á heimasíðu Tindastóls segir að Stólarnir hafa tryggt sér starfskrafta bakvarðarins Tarick Johnson út þetta tímabil og verður hann því þriðji erlendi leikmaðurinn í liði Tindastóls en kappinn er með breskt vegabréf. Johnson er um 190 cm á hæð og getur spilað hvort sem er stöðu leikstjórnanda eða skotbakvarðar. Tarick er reyndur leikmaður, verður 32 ára á þessu ári og hefur spilað með mörgun liðum í Evrópu. Hann lék nú síðast með úrvalsdeildarliðinu Fribourg í Sviss. Sem fyrr segir er Tarick þriðji erlendi leikmaðurinn í leik- mannahópi Tindastóls, en aðeins má tefla fram tveimur á gólfinu í einu. Með tilkomu hans þéttist leikmannahópur liðsins til muna núna fyrir lokabaráttuna. Auk Taricks eru George Valentine og Drew Gibson er- lendir leikmenn Stólanna. /ÓAB Uppgjörsdagar KPMG Nú eru uppgjörsdagar á skrifstofum KPMG um land allt og geta stjórnendur minni og meðalstórra fyrirtækja fengið fast tilboð í gerð ársreiknings og skattframtals. Jafnframt er hægt að fá tilboð í önnur verkefni eins og bókhald og launavinnslu. Hringdu í síma 545 6000 eða sendu tölvupóst á uppgjor@kpmg.is og fáðu fast verðtilboð fyrir þinn rekstur. KPMG Borgarmýri 1a | 550 Sauðárkrókur kpmg.is Körfuboltinn Sátt milli Tindastóls og Sigtryggs Arnars Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að Roburt Sallie var látinn fara frá félaginu og þess að fullyrt var á samfélagsmiðlum að Sigtryggur Arnar Björnsson, ungur leikmað- ur Tindastóls, hafi einnig verið látinn fara. Nú hefur náðst full sátt milli Tindastóls og Sigtryggs Arnars og ekki um nein óleyst mál að ræða milli félagsins og hans, eins og segir í yfirlýsingunni. „Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls harmar þær umræður sem orðið hafa um ungan og efnilegan leikmann sem Tindastóll fékk í sínar raðir fyrir tímabilið, Sigtryggs Arnars Björnssonar, og nýleg samskipti stjórnar og þjálfara við hann. Sú krafa sem gerð er til liðs í efstu deild í hópíþrótt leiðir vissulega til þess að gerðar eru ríkar kröfur til leikmanna og krefst þess að gott traust sé á milli leikmanna, þjálfara og stjórnar. Það er því ekki óalgengt að einhver málefni komi upp sem talið er þörf á að taka á í samskiptum við leikmenn, en jafnframt leiðinlegt þegar umræða verður hávær og óvægin án allra upplýsinga um málið. Ekki er ætlunin að tíunda þau atriði sem urðu þess valdandi að ákveðinn brestur kom í samstarf félagsins og Sigtryggs Arnars, en eftir skoðun á málavöxtum hefur náðst full sátt og ekki um nein óleyst mál að ræða milli félagsins og hans.“ /PF

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.