Feykir


Feykir - 07.02.2013, Side 6

Feykir - 07.02.2013, Side 6
6 Feykir 05/2013 í þetta sinn af Guðmundi á Illugastöðum. „Við krakkarnir litum alltaf upp til bændanna á Vatnsnesi – þeir voru hetjur og duglegir menn. Guðmundur á Illugastöðum kom hingað eitt sinn til að ná sér í tunnu af steinolíu. Þetta var á stríðsárunum og þá var allt skammtað og hann fékk þau tilsvör að hann gæti ekki fengið svo mikið af steinolíu, ekki nema að hann gæti borið hana sjálfur, sem var í raun sagt í háði. Þá tók hann tunnuna upp og hélt á henni að bátnum sínum,“ segir Sigurður og hlær. „Hann var stór og hraustur maður. En þegar hann steig í bátinn sinn, sem var fjögurra manna far, með tunnuna í fanginu þá lak sjór í bátinn og hann þurfti að setja tunnuna á land aftur. Hann gerði þá við bátinn og sigldi svo með steinolíutunnuna í Illugastaði. Þetta voru allt saman hetjur og duglegir menn,“ endurtekur Sigurður. Síðar var lagður vegur út á Vatnsnesið og segir Sigurður það hafa verið gert í áföngum. „Vegurinn lá eftir fjörunni. Oft keyrði maður kambinn en ef það var hálka og bíllinn byrjaði að renna þá endaði hann bara í fjörunni. Eitt sinn þegar ég var orðin fullorðinn þá var ég ásamt fleirum á leið út á Vatnsnes með rekaviðarstaura á pallinum. Þarna voru háir bakkar með undirlendið allt í svelli og þar fyrir neðan var fjaran. Þá fór bíllinn að renna og bílstjórinn hrópaði: „Hvað eigum við að gera?“ –„Spýttu bara í,“ svöruðum við, sem hann þá gerði og við sluppum með skrekkinn. Þetta var mikil ögurstund því við hefðum ekki getað komist út úr bílnum þar sem staurarnir lágu meðfram gluggunum báðum megin,“ rifjar Sigurður upp. Flugvél með hakakrossi og sprengjum Sigurður lýsir því hvernig höfnin á Hvammstanga iðaði af lífi á fyrri hluta 20. aldarinnar. Þegar skip komu að höfninni var skipslúðurinn þeyttur til að kalla mannskap til í vinnu. Þá þustu menn að til starfa, réru að skipinu og lönduðu varningnum upp á bryggjuna. Þaðan var hann borinn í bíla og ekið upp í pakkhús. Á vorin komu m.a. skip frá Hollandi sem fluttu sement til landsins og því var öllu landað á Hvammstanga. Sigurður rifjar upp þegar hann vann við að landa 600 tonnum af sementi vorið 1946. „Þetta var þrælavinna. Við fórum út í skip VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir Sigurður Helgi Eiríksson hefur eytt lunganum af ævi sinni á Hvamms- tanga. Hann hefur haft fjölbreytt störf með höndum og fylgst með bæjarbragnum og mannlífinu frá því á fyrri hluta 20. aldar til dagsins í dag og þeim miklu breytingum sem þar hafa orðið í áranna rás. Blaðamaður Feykis heimsótti Sigurð á heimili hans í hjarta bæjarins og fékk að heyra nokkrar skemmtilegar sögur. Lífið á Strandgötunni Sigurður og eiginkona hans Ingibjörg Pálsdóttir, eða Lilla Páls eins og hún er gjarnan kölluð, búa á Strandgötu 6 á Hvammstanga. Sama húsi og Sigurður fæddist í fyrir 83 árum, þann 5. nóvember 1930. „Ég var pínulítíll að ég held um sex merkur, það hefði mátt stinga mér í vettling,“ segir Sigurður um sjálfan sig og brosir. Sigurður var langyngsta barn foreldra sinna, þeirra Eiríks Hjartarsonar og Jónu Guðrúnar Gísladóttur. Fyrir höfðu þau eignast þrjá syni; Sigurð árið 1912 en hann lést úr lungnabólgu árið 1929, Hjört árið 1914 og Gísla árið 1918 en þeir eru einnig fallnir frá. Sigurður segist hafa haft það mjög gott á uppeldisárum sínum á Strandgötunni. „Það voru svosem ekki gerðar miklar kröfur í gamladaga, ég fékk nóg að borða og svona,“ segir hann. Sigurður segist muna vel eftir því þegar rafmagnið kom á Hvammstanga. „Ég var á fjórða ári og lá í rúminu í einhverri pest þegar þeir voru að leggja rafmagnið í húsið. Það var mjög mikil breyting.“ Hann lék sér mikið við krakkana sem bjuggu í næsta húsi og saman smíðuðu þau báta og bíla og fóru í vegavinnuleik. En þau fylgdust einnig vel með lífinu við bryggjuna og með bátunum sem komu og fóru. „Við fylgdumst með bændunum koma frá Vatnsnesi og Heggstaðanesi. Við þekktum bátana langar leiðir og vissum frá hvaða bæjum hver bátur kom. Þeir komu hingað á árabátum til að leggja inn fiskinn og að sækja vörur en þá var enginn vegur út á Vatnsnesið. Ég man eftir því þegar ég sá bóndann frá Heggstöðum koma siglandi. Við sáum alltaf í hausinn á honum, honum fannst svo gaman að sigla,“ segir hann og hlær. Sigurður rifjar upp sögu af góðmennsku Jóns á Heggstöðum. Faðir Sigurðar stofnaði verkalýðsfélagið Hvöt á Hvammstanga árið 1926. Í þá daga voru verkalýðsfélög fátíð og litin hornauga af atvinnurekendum. Þeir átta til tíu félagar sem þá voru í verkalýðsfélaginu voru útskúfaðir frá vinnu, þar á meðal Eiríkur faðir Sigurðar. „Þá kom Jón beint til mömmu með mat því hann vissi að enginn matur var til, svo veitti hann stundum pabba vinnu á bænum þegar hann hafði eitthvað að gera fyrir hann. Hann var enginn verkalýðsmaður eða neitt svoleiðis, hann vildi bara ekki vita af svöngu fólki. Hann var einstaklega góður maður,“ segir Sigurður. Hann rifjar upp aðra sögu Sigurður rifjar upp sögur frá Hvammstanga Gömul mynd af Hvammstanga. Síld á bryggjunni við Hvammstanga uppúr 1950. Myndir frá Hvammstanga eru úr einkasafni Björns Þórs Sigurðssonar.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.