Feykir


Feykir - 07.02.2013, Qupperneq 7

Feykir - 07.02.2013, Qupperneq 7
05/2013 Feykir 7 kl. 6 á morgnanna og unnum til miðnættis. Við vorum sex strákar að vinna saman í lestinni og handlönguðum 50 kg poka á bretti og svo voru þeir hífðir upp. Þetta var mjög erfið vinna og maður var marga daga að jafna sig á eftir,“ segir hann. Á stríðsárunum vann Sigurður við byggingarvinnu en á þeim árum var sláturhúsið byggt, sem nú er pakkhús. „Ég vann við að rétta nagla svo hægt væri að nota þá aftur, en það var erfitt að fá nagla á þessum árum. Svo keyrðum við í fjöruna til að ná í möl til að steypa. Það var mikið puð að moka mölinni á bílana en skóflurnar voru stórar og þungar í þá daga. Svo var tínt grjót hérna upp á Ás til að drýgja steypuna. Þetta var þrælavinna,“ segir hann. Aðspurður um hvernig stríðsárin hafi verið á Hvammstanga segir hann frá sex breskum hermönnum sem bjuggu í bragga þar í bænum. „Þetta voru bara strákagrey frá Hjaltlandseyjum. Ég man að þeir drukku stundum kaffi hjá bæjarbúum og fengu konurnar til að þvo fyrir sig. Stundum gáfu þeir okkur epli og appelsínur, þetta voru bestu strákar. En okkur var bannað að vera í kringum þá. Kennarinn okkar sagði að við værum hernumin þjóð og ættum ekki að vera að sniglast í kringum hermennina, við tókum það alvarlega,“ segir Sigurður. Hann segist muna vel eftir því þegar þýsk flugvél flaug eitt sinn yfir bæinn. „Hún flaug hér yfir og við sáum hakakrossinn á vélinni og sprengjurnar undir henni, þá urðum við krakkarnir logandi hræddir,“ segir hann. „Ég man eitt sinn þegar einn skipslúðurinn kallaði fólk til vinnu, þá kom vinur minn Gústi í Gröf, Ágúst Jakobsson, hlaupandi yfir túnið og á leiðinni sá hann eitthvað liggjandi í grasinu. Hann stakk því í vasann í hugsunarleysi og hélt áfram að bryggjunni. Svo þegar hann fór að sýna fólki hvað þetta var þá kom í ljós að þetta var ósprungin íkveikjusprengja,“ segir Sigurður. „Bretarnir voru kallaðir til og þeir fjarlægðu hana en þeir héldu sprengjunni langt frá sér og voru greinilega hræddir. Þá hafa Þjóðverjarnir sennilega varpað henni úr flugvélinni og hún lent í mýri og þess vegna sprakk hún ekki,“ bætir hann við. Sigurður talar vel um hjónin Ágúst og Helgu frá Gröf, þar sem hann var tíður gestur á sínum æskuárum. „Það var alltaf gaman að koma þangað. Þau áttu margar dætur og Helga hélt stundum ball fyrir stelpurnar sínar og spilaði þá á hárgreiðu. Þá snópuðumst við strákarnir að,“ segir Sigurður kankvís á svip. Hjálpaði til á ögurstundum Sigurði er ýmislegt til lista lagt en hann lærði bæði vélvirkjun og vélstjórnun og er menntaður suðumaður. Menntun sína sótti hann til Akureyrar og Ísafjarðar og hann vann mest á verkstæðinu á Hvammstanga. Um 1960 kom í hlut Sigurðar fremur óvenjuleg og oft á tíðum erfið vinna. Sigurður var bílstjóri Harðar Þorleifssonar læknis á Hvammstanga í læknisheimsóknum. Þeim varð vel til vina og var Sigurður lækninum oft innan handar þegar mikið lá við. Þegar bráðatilfelli kröfðust skurðaaðgerðar þá voru kallaðir til menn frá Blönduósi til að hjálpa til við uppskurðinn og að svæfa sjúklingana. Hörður vildi hafa Sigurð viðstaddan svo hann myndi sjá hvernig ferlið væri, þannig að ef sú staða kæmi upp að ekki væri hægt að flytja sjúklingana eða fá utanaðkomandi aðstoð þá gæti Sigurður verið til aðstoðar. Sú varð reyndar raunin og aðstoðaði Sigurður við nokkra uppskurði. Síðar tók Frosti Sigurjóns- son héraðslæknir við starfi Harðar og Sigurður hélt áfram að aðstoða stöku sinnum í neyðartilfellum. „Frosti var lungnaskurðlæknir, alveg geysilega flinkur maður,“ segir hann. Sigurður segir frá því þegar bankað var upp á hjá honum um miðja nótt í stórhríð og hann beðinn um að koma upp á sjúkrahús. Þar var kona sem gat ekki fætt barn og Frosti þurfti að framkvæma keisaraskurð. „Ég man að það var kolvitlaust veður og ljósin komu og fóru af sjúkrahúsinu,“ segir hann en læknirinn tók á móti barninu og allt gekk vel. Sigurður rifjar upp aðra stund á spítalanum sem hann var viðstaddur og reyndi mikið á Sigurð. „Þetta var þegar síðasta kolaskipið kom hingað á Hvammstanga. Það var verið að landa þegar það skall á hvínandi rok, skipið slitnaði frá og rak út fjörðinn áður en lönduninni var lokið, með vinnumennina frá Hvammstanga um borð. Skipið sigldi til Hólmavíkur þar sem það beið óveðrið af sér áður en það gat snúið aftur með mennina. Á Hólmavík var fársjúkt barn sem þurfti að komast undir læknishendur og skipstjórinn ákvað að flytja móður og barn til læknisins á Hvammstanga. Frosti hringir í mig og segir mér að koma upp á sjúkrahús í hvelli. Þegar ég kem þangað sé ég að sjúklingurinn er barn á öðru ári, það fékk mikið á mig þar sem ég átti barn á saman aldri. Mig langaði helst bara að fara aftur heim,“ segir Sigurður og heldur áfram: „Frosti segir við mig að þetta sé ekkert grín. „Þetta barn er búið að vera veikt í marga sólarhringa og getur dáið hvenær sem er. Ég ætla að vera tíu mínútur að skera það upp.“ Barnið var með botnlangakast og þegar Frosti sker þá vellur gröfturinn upp úr skurðinum. Frosti kallar þá til hjúkrunarkonunnar: „Sog strax.“ En þá svarar hún að það sé ekki til neitt alvöru sog, bara lítið rör til að soga úr vitum nýbura. Þá sagði hann við mig: „Sogaðu“. Það gerði ég án þess að blikna, þetta var bara þannig stund. Svo spurði Frosti um silkið til að sauma. „Guð minn almáttugur,“ svarar hjúkrunarkonan. „Ég gleymdi að setja það í sótthreinsun.“ – „Farðu fram í eldhús og settu það í hraðsuðuketilinn,“ skipar Frosti. Til allrar hamingju var ketillinn á suðu og hún snéri fljótt aftur með silkið. Eftir að hann hafði lokað skurðinum leit ég á klukkuna og hann hafði verið nákvæmlega tíu mínútur,“ segir Sigurður og bætir við að barninu hafi heilsast vel eftir þetta. Þegar Sigurður kom heim eftir þessa lífsreynslu segist hann hafa þurft að fara úr öllum fötunum þar sem hann hafi verið kófsveittur. Honum hafði ekki liðið vel. Frumkvöðlastarf í skógrækt Sigurður og Ingibjörg kvænt- ust árið 1956. Ingibjörg er frá Bjargi í Miðfirði og lýsir Sigurður henni sem músíkant af guðs náð. „Hún hefur verið með músík í fingrunum alveg frá því ég kynntist henni en þá var hún að spila á orgelið í kirkjunni í Melstað en hún byrjaði 13 ára að spila í kirkju,“ segir hann. „Þá hefur hún einnig verið að stjórna kórum alveg frá því ég kynntist henni og útsett fyrir þá,“ bætir hann við. Saman eignuðust þau tvo stráka, þá Odd og Skúla Sigurðssyni, og í dag eiga þau níu barnabörn og þrjú barnabarnabörn sem þau segjast vera afar hreykin af. Hjónin hafa notið ýmissa sameiginlegra áhugamála í gegnum tíðina, til að mynda skógrækt en þau stofnuðu ásamt fleirum Fegrunarfélagið, sem hafði það að markmiði að koma á skógrækt í bænum. Sjálf réðust þau í að gróðursetja sunnan við bæinn árið 1958 en frá því Sigurður var á Akureyri setti hann sér það markmið að láta reyna á skógrækt á Hvammstanga. „Það var alltaf sagt að það væri ekkert hægt að græða hér, vegna roks og norðanáttar. Ég var alveg staðráðinn í að afsanna það,“ segir hann og ber gróskumikill skógarlundurinn, sem prýðir innkeyrsluna á Hvammstanga, vitni um að þær sögusagnir áttu ekki við rök að styðjast. Sigurður og Ingibjörg fluttu á Strandgötuna á aðfangadag 1956 en faðir hans hafði arfleitt hann að húsinu. „Þetta var svona kastarholubúskapur til að byrja með. Við vorum í gamla húsinu áður en við byggðum við, þar var ansi þröngt fyrstu árin en við höfum lifað góðu lífi,“ segir hann í lokin og brosir. Tvö stór skip við bryggjuna á Hvammstanga um 1950-1960. Hjónin Ingibjörg og Sigurður um 1970. Siglt í heimsókn að Heggstöðum á bátnum Svan frá Mörk. Sigurður Gestsson, Hörður Jóhannsson en nafn þess þriðja er óþekkt.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.