Feykir


Feykir - 07.02.2013, Síða 8

Feykir - 07.02.2013, Síða 8
8 Feykir 05/2013 Hjónin Bergur Axelsson og Jóna Guðrún Ívarsdóttir voru stödd á Sauðárkróki fyrir helgi en þau eru eigendur Eyjaflugs ásamt Einari Aðalsteinssyni. Þau Bergur og Jóna eiga ættir að rekja til Norðurlands vestra, hann í Gröf á Höfðaströnd en hún af Haukdalsætt á Skagaströnd. Komu þau m.a. til að sjá um afgreiðslu á flugvellinum og leita að starfskrafti í það starf. Feykir settist niður með þeim hjónum og spurði út í flugævintýrið. -Við stofnuðum þetta félag árið 2011 þegar við keyptum flugvélaflota Flugfélags Vestmannaeyja ásamt skýlinu í Vestmannaeyjum. Við fengum flug- rekstarleyfi fyrsta ágúst 2012 og byrjuðum þann 3. ágúst að fljúga á Þjóðhátíð. Þá helgina fluttum við um 300 farþega milli lands og Eyja. Einnig buðum við upp á útsýnisflug og þá mest yfir Eyjafjallajökul, segir Bergur en fram að áramótum hélt félagið úti flugi milli Bakka og Vestmannaeyja. Reynt var að hefja áætlun til Vestmannaeyja en vegna ónógrar eftirspurnar var hætt við það. Nú er notuð tíu sæta flugvél af Piper Chieftain gerð í áætlunarflugið en ef vel gengur og ásóknin verður mikil segir Bergur það koma til greina að fá stærri vél. -Okkur hefur verið tekið frábærlega vel hér og mikið um pantanir. Við munum fljúga hingað sjö sinnum í viku á þessari tíu sæta vél. Hvernig stóð á því að þið ákváðu að kaupa flugfélag? -Þetta er gamall draumur sem ég er búinn að vera með í maganum lengi. Langaði að prófa, segir Bergur en hann hefur verið flugmaður í 25 ár. -Ég byrjaði hjá Arnarflugi innanlands og var síðar hjá Íslandsflugi og er flugstjóri hjá Atlanta í dag. Eyjaflug er hobbýið. Bergur segir að flugið á Krókinn hafi svo komið óvænt upp í hendurnar á þeim. -Stefán Vagn er mikill áhugamaður um þetta flug og við höfðum samband við hann. Hann er búinn að hjálpa okkur rosalega mikið til að koma þessu heim og saman og á mikinn heiður skilinn, segir Bergur. Jómfrúarferðin á Sauðárkrók byrjaði með smá brasi og komst í fréttirnar vegna óvænts atviks. -Við fengum viðvörun á að eitt hjólið væri ekki niðri og snérum frá. Svo var þetta bara lítill míkrósviss sem stóð á sér og engin hætta á ferðum, segir Bergur en engin áhætta er tekin í þessum tilfellum. Þrátt fyrir þessa óvæntu byrjun var þetta góð auglýsing fyrir flugið, síminn tók kipp og fólk vildi bóka sig í ferð. Fyrstu fréttir hermdu að flugfélagið héti Air Arctic og segir Bergur flug- rekstrarleyfið vera á því nafni en ætlunin sé að nota Eyjaflug, enda er það þjált í munni. Afgreiðsla Eyjaflugs verður hjá Flugfélagi Íslands í Reykjavík en á Sauðárkróki á flugstöðinni og pakka- afgreiðsla verður hjá N1. Létu gamlan draum rætast Bergur og Jóna Guðrún eigendur Eyjaflugs VIÐTAL Páll Friðriksson Kokkakeppni Árskóla 2013 Þorskur með pistasíusalsa átti vinninginn UMSJÓN berglindth@feykir.is skólans fór fram. Fimm lið reiddu fram girnilega rétti sem dómararnir Eiður Baldursson matreiðslumeistari, Ágúst Andrésson kjötiðnaðarmeistari og Kolbrún Þórðardóttir kennari í Árskóla smökkuðu á áður en þeir gáfu út úrskurð sinn um hver þeirra ætti vinninginn. Matarilmurinn angaði um Árskóla sl. fimmtudag þegar hin árlega kokkakeppni Samkvæmt Ástu Búadóttur matreiðslukennara er mikil áhugi og gróska fyrir heimilisfræði í skólanum en hefðin fyrir keppninni hófst árið 2005. „Mikil eftirvænting ríkti hjá krökkunum. Af matseðlunum mátti sjá að mikill metnaður var lagður í matargerðina. Maturinn var sérstaklega vel heppnaður og var allt sem nemendur elduðu mjög bragðgott,“ sagði hún. Það kemur ánægjulega á óvart að sjá hversu mikil gróska er í matreiðslukennslu í grunn- skólunum og ef þetta er matreiðslan hjá yngri kynslóðinni má búast við að við matgæðingar horfum fram á bjarta framtíð sem við getum hlakkað til!“ sagði Ásta. Fyrsta sætið hreppti lið Matthildar Kemp Guðna- dóttur, Brynju Sif Harðardóttur og Jónu Maríu Eiríksdóttur en þær elduðu ofnbakaðan þorsk með pistasíusalsa sætkartöflu- mús og sojasmjörsósu. Í öðru sæti voru þær Sunna Líf Óskarsdóttir, Bergrún Sóla Áskelsdóttir og Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir með lakkrískryddað lambafille, og í þriðja sæti voru strákarnir Hinrik Pétur Helgason, Sigurður Jóhann Árnason og Elvar Ingi Hjartarson sem voru með sykurbrúnaðan þorsk borinn fram með sætukartöflu- mús með rifnum piparosti, en þeir áttu sjálfir hugmyndina að uppskriftinni. „Það var gaman að sjá hvað krakkarnir lögðu sig vel fram og gæðin voru ekki af verri endanum. Svona til gamans er MasterChef inn núna og gengur matreiðslan út á það að vera eins og í þeirri frægu keppni,“ sagði Ásta í lokin.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.