Feykir - 21.03.2013, Qupperneq 3
11/2013 Feykir 3
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS-bókin er með 2% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3,50% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
MYNDAALBÚMIÐ
Skyggnst í ljósmyndaalbúm Sigurðar Kr. Jónssonar á Blönduósi
Knattspyrnulið Hvatar á Blönduósi fyrir einhverjum árum.
Í efri röð frá vinstri eru þeir Indriði, Ari Guðmundur, Vilhelm, Guðmundur Þór, Hilmar
Þór, Örn, Ragnar Z, Kristinn og Hermann. Neðri röð: Axel Rúnar, Sigurjón Ingi,
Auðunn Steinn, Gísli Torfi, Þormóður Orri og Sigurður D.
Til styrktar fjölskyldu Stefáns
Vel safnaðist í sjóðinn
Kvenfélag Seyluhrepps hélt
sl. sunnudag basar í Lauftúni
til styrktar fjölskyldu Stefáns
Jökuls Jónssonar frá
Miðhúsum en hann lést eftir
erfið veikindi fyrir skömmu.
Basarinn gekk framar
björtustu vonum og segir
Harpa Hafsteinsdóttir ein
kvenfélagskvenna dásamlegt
að sjá hvernig fólk tekur vel í
svona málefni. Dagurinn var
að hennar sögn stórskemmti-
legur og vel safnaðist í sjóðinn.
Söfnunarreikningi sem var
á nafni Stefáns hefur verið
breytt og er nú á nafni Sigrúnar
Böðvarsdóttur: 1125 15 201102,
kt. 110285 2649.
Útför Stefáns Jökuls fer fram
frá Miklabæjarkirkju laugar-
daginn 23. mars kl. 14. /PF
Vel var mætt á basar Kvenfélags Seyluhrepps í Lauftúni sl. sunnudag. Mynd: Marinó H. Þórisson.
Varmahlíð
Svartþrestir
með vetursetu
Tveir svartþrestir hafa átt
vetursetu að Skógarstíg í
Varmahlíð en svartþrestir
eru sjaldséðir gestir hér á
slóðum.
„Það eru miklar bollalegg-
ingar hjá heimilisfólkinu
hvort þeir verpi hjá okkur í
vor,“ segir Kári Gunnarsson
sem sendi Feyki mynd af
öðrum svartþrastanna.
Samkvæmt Vísindavef
Háskóla Íslands er svart-
þröstur (Turdus merula, e.
blackbird) afar algengur víða
í Evrópu en nýlegur land-
nemi á Íslandi.
Hér á landi verpir hann
meðal annars á innnesjum
svo sem í Reykjavík og er
talið að varpstofn hans á
höfuðborgarsvæðinu sé á
bilinu 60 til 100 pör. /BÞ
Svartþröstur (Turdus merula, e. blackbird). Ljósm./Kári Gunnarsson.
Ársþing UMSS
Kári Marísson fær starfsmerki UMFÍ
93. ársþing Ungmenna-
sambands Skagafjarðar var
haldið í Melsgili sl. sunnudag
í boði Hestamannafélagsins
Stíganda. Þingið var vel sótt
og var það með hefðbundnu
sniði.
Nýr formaður var kjörinn
þar sem Sigurjón Leifsson bauð
ekki kost á sér áfram. Í stól
formanns sest Jón Daníel
Jónsson en aðrir í stjórn eru
Rúnar Vífilsson sem situr áfram
og nýir eru: Heiðrún Jakobínu-
dóttir, Guðmundur Þór Elías-
son og Guðríður Magnúsdóttir.
Tap varð á rekstri sambandsins
upp á tæpar þrettánhundruð
þúsund krónur og ljóst að halda
þarf þétt um sjóði þess á
komandi árum. Á þinginu var
Kári Marísson, sem oft hefur
verið nefndur faðir körfuboltans
á Sauðárkróki, sæmdur starfs-
merki UMFÍ og er hann vel að
þeirri sæmd kominn. Sagði
hann við það tækifæri að þetta
hvetti hann áfram til að taka þátt
í frekara íþróttastarfi í fram-
tíðinni. /PF
Bolli Gunnarsson sæmir Kára Maríssyni starfsmerki UMFÍ